maí 8, 2005
góður túr
jæja, þetta var magnaður túr. Veðrið var bara í einu orði sagt frábært, sléttur sjór og sólskin. Nóg var af fugli, enda náðum við fjórir rétt yfir 200 fuglum. Núna suðar eða réttara sagt ýlir þvílíkt í eyrum mér, aðallega vinstramegin, svo mikið var skotið, og ég klikkaði á að nota eyrnatappa fyrr en of seint.
Á morgun tekur svo við að ganga frá aflanum sem er álka, lundi og langvía, það verður líklega einhver handagangur.
Komment
Má ég kaupa af þér svartfugl. Langar svo að smakka.
Krotað af: spritti @ 09.05.05 14:09


