júlí 5, 2008
Leoncie er ekki til í þríkant
Ég er svo sem ekkert fyrstur með fréttirnar, Þetta myndband er búið að ganga í nokkurn tíma á netinu, t.d. á jútúb. Enda prýðis myndband á ferð með einhverjum þeim mesta tónlistarsnilling sem á Íslandi hefur búið... pause NOT. En hvað um það. Þetta er náttúrulega ótrúlega fyndið myndband og textinn er einnig algjört gull.

Enginn þríkantur hér. Leoncie er upp á sitt besta.
Ég hef séð nokkur myndbönd frá henni, og svo virðist sem að meiri hlutinn af þeim sé tekinn upp heim hjá henni, einnig virðist Viktor, maðurinn hennar oft "leika" í þeim eins og í þessu myndbandi.
Sent af albin kl [13:20] [breyta]Úff.. maður tekur það aldrei til baka að hafa horft á myndbönd með henni.
Krotað af: Birgitta @ 05.07.08 20:17 Ég gjörsamlega elska þessa konu skilyrðislaust enda er hún með ótrúlega hæfileika og ég kann þetta lag utanað ,
þetta dásamlega lag er símhringingin mín, hafiði séð Love messages from overseas, það er einnig rándýrt myndband.
Sirrý: Leitaðu þér læknis.
Krotað af: albin @ 06.07.08 01:36Sammála albin.
Ég gjörsamlega þoli þessa manneskju ekki og tónlistarmaður? Nei. Aldrei.
LOL eruði að trúa mér ? Að vísu kann ég lagið og hef það sem símhringingu , en konan er snargeðveik og manngreyið hennar er nú ekki beittasti hnífurinn í skúffunnni. hahahaha
Krotað af: Sirrý @ 06.07.08 10:46Auðvitað trúum við þér. Ekki ertu að segja okkur að þú leggir í vana þinn að ljúga opinberlega.
Krotað af: albin @ 06.07.08 15:40Ég lýg aldrei opinberlega, en ég er andskotanum gleymnari þannig að ég man yfirleitt ekki hvort ég lýg eða segi satt.
Krotað af: Sirrý @ 06.07.08 22:20


