Holy crap

dvergur.acme.to.png
Mánudagur 29. september
Þennan dag: | 2006 | 2003

Glitnir skeindur

Ætlar einhver að mótmæla því að öfgaofurlaun og græðgi hafi ekkert með ástandð að gera? Kannski ekki algjörlega eina ástæðan, en klárlega öflugur þáttur...

Skeining

Fékk þessa snilldarmynd í mail rétt áðan.


Update:
Nenni ekki að búa til nýja færslu, en ég var að fá nýtt logo...

2008_09_29_Glitnir_sigd_SM.jpg


Sunnudagur 14. september
Þennan dag: | 2006 | 2004 | 2002

Banna og banna

2008-prohibited-sign.jpg Nú er kominn fram hópur fólks sem vilja banna veiðar við Reykjavíkurhöfn. Það er víst formaður siglingaklúbbsins Brokeyjar sem ætlar að sannfæra hafnarstjóra um að koma slíku banni á. Aðal ástæðan sem gefin er upp er að skútunum er siglt inn og út úr höfninni á mótor og þeir eru hræddir um að fá veiðigirnið í skrúfuna. Ég hélt að öllum bátum væri siglt þarna í gegn á mótor, ekki bara seglskútum. En hvað um það, það er ekkert grín að fá í skrúfuna. Þekki það af eigin raun þó það atvik hafi verið lítilfjörlegt þegar upp var staðið. Það kemur fram í fréttinni að þetta séu nær eingöngu útlendingar sem þetta stundi. Ég velti ósjálfrátt hvort það hafi eitthvað með tilvonandi bann að gera.

Fari svo að þetta bann verði sett á vona ég að mönnum beri gæfa til þess að láta ekki nægja að banna, heldur koma með einhverja lausn á móti. Vísa á einhvern annan góðan stað fyrir veiðarnar.

Það hefur nefnilega verið lenska að banna eða setja strangar takmarkanir og láta þar við sitja. Færa "vandamálið" úr augsýn eða á hendur einhvers annars. Ágætt dæmi er fræga tjaldstæða málið á Akureyri, sem var að vísu ekki bundið við Akureyri því aldurstakmörk voru sett mun víðar og jafnvel hærri. Þar hefði að sjálfsögðu átt að finna aðra lausn en að vísa fólki frá, t.d. með að bjóða upp á önnur tjaldstæði með betri gæslu svo eitthvað sé nefnt.
Annað dæmi frá Keflavík þar sem húsbílafólki var vísað frá hafnarsvæðinu. Þeir fóru í fýlu vegna þess að það var stuggað við þeim þarna, því í nokkur ár höfðu þeir fengið að vera óáreittir þarna sem gefur svosem engan rétt til þess að vera þarna að eilífu. En var þeim boðið að vera annarstaðar, eða bara reknir á brott? Án þess að þekkja málið skal mig ekki undra að þeir hafi bara verið reknir á brott.



Föstudagur 12. september
Þennan dag: | 2003 | 2002

Dilkakjöt

Ég hélt að ég yrði ekki eldri þegar ég sá þetta.

Dilkakjot_sm.png
Smella á mynd til að stækka

Það er alltaf hægt finna eitthvað til að hlægja að þarna.



Þriðjudagur 2. september
Þennan dag: | 2003 | 2002

Svartsýnishjal

Mikið finnst mér allt þetta krepputal óábyrgt. Eins og hálfgerð múgæsing. Ég hef það á tilfinninguni að það sé verið að tala íslenskan efnahag vísvitandi niður. Vissulega er niðursveifla, og engin ástæða til að fara hamförum í eyðsluni, en það er staðreynd að svartsýnishjal smitar útfrá sér, og gerir illt verra. Það er ekki komið að ragnarrökum enn. Því ætti ekki að mála skrattan á vegginn þó svo að hann sé eitthvað að kíkja fyrir horn. Það hlýtur að vera ábyrgðarhlutverk að fjalla um slík mál í fjölmiðlumn, hvort heldur sem það eru fjölmiðlamenn eða stjórnmálamenn.

Kannski svipurinn á nýbökuðum þríbura foreldrun, sérstaklega pabbanum lýsi ástandinu aðeins.

200809_barnager-sm.jpg
Smella á mynd til að stækka.



Föstudagur 8. ágúst
Þennan dag: | 2006 | 2002

Tískuvit

Það verður nú seint sagt um mig að ég búi yfir einhverju sérstöku tískuviti. Ég hef samt tekið eftir einu sem virðist þykja nokkuð nýmóðins þessa dagana, og það er að vera með breitt belti og hafa það svo hátt uppi að girða mætti brjóstin ofan í það.

Fyrir mína parta þykir mér það nú svo sem ekkert endilega smart. Minnir mig svolítið þegar brjóstin eru orðin það sigin að hægt væri í raun að girða þau í buxnastrenginn. En hvað veit ég.



Fimmtudagur 17. júlí
Þennan dag: | 2007 | 2006 | 2005 | 2003

Nei, ekki dauður enn

Hópsnesviti Vá, þetta er meira svona "ég er ekki dauður" blogg. Hef ekki veið duglegur við það frekar en hinn daginn. Ég hef samt ekki verið alveg aðgerðarlaus, búinn að vera í mánaðar sumarfríi. Tók allan Júní í sumarfrí, eyddi honum með dóttir minni í afslöppun hér í borg og smá fyrir norðan. Búinn að vera dulegur að taka myndir, en ekki eins duglegur að flokka og vinna þær þannig að það hafa ekki margar verið til sýnis. Skrapp rétt eftir síðustu mánaðarmót t.d. í smá ljósmyndarúnt til Grindavíkur, myndin af vitanum er þaðan, og að Krýsuvíkurbjargi. Og síðustu helgi skutlaðist ég norður aftur, skrapp m.a. með félaga mínum til Hjalteyrar. Tilgangurinn var að taka myndir, en það var frekar lágskýjað og rigndi mest allan tímann þannig að afraksrurinn er ekki eins mikill og vonir stóðu til.

albin kl [ 22:43] lokað á komment


Sunnudagur 6. júlí
Þennan dag: | 2006 | 2005 | 2003

Skítt með kerfið.

Skítt með kerfið. Smá myndband hér með pönk ívafi. Já og þetta er núna nýjasti hringitónninn hjá mér..

Smelltu á myndina til að gefa skít í kerfið.
logo



Laugardagur 5. júlí
Þennan dag: | 2004 | 2003

Leoncie er ekki til í þríkant

Ég er svo sem ekkert fyrstur með fréttirnar, Þetta myndband er búið að ganga í nokkurn tíma á netinu, t.d. á jútúb. Enda prýðis myndband á ferð með einhverjum þeim mesta tónlistarsnilling sem á Íslandi hefur búið... pause NOT. En hvað um það. Þetta er náttúrulega ótrúlega fyndið myndband og textinn er einnig algjört gull.

Smelltu á myndina til að skoða.
logo
Enginn þríkantur hér. Leoncie er upp á sitt besta.

Ég hef séð nokkur myndbönd frá henni, og svo virðist sem að meiri hlutinn af þeim sé tekinn upp heim hjá henni, einnig virðist Viktor, maðurinn hennar oft "leika" í þeim eins og í þessu myndbandi.



Sunnudagur 29. júní
Þennan dag: | 2007

Enn um mjólkurvörur

Það er ekki langt síðan að ég nöldraði hér yfir engjaþykkni sem myglaði áður en að best fyrir dagsetningin rann upp. Ég er farinn að halda að þetta sé eitthvað tengt við mig og mjólkurvörur. Eins og á venjulegum sunnudags morgni ætlaði ég að fá mér smá morgunkorn. Greip óopnaða mjólkurfernu með dagsetninguna 29.06.08 úr ísskápnum, reif hana opna og byrjaði að hella. Eitthvað rann nú mjólkin hægt. Hún var orðin svo hlaupin og kekkjótt að eingöngu óhært skyr og ostur eru þykkri.
Hvað er eiginlega málið? Maður er nú meira vanur því að mjólkin getur verið nothæf 3-5 dögum lengur ef hún er alltaf sett strax í ísskápinn.



Laugardagur 28. júní
Þennan dag: | 2006 | 2004

Veður og tíska.

2008-leather-boots.jpg Mikið skelfilega er búið að vera gott veður hér í borg síðast liðna daga, sól og hlýindi dag eftir dag. Ég er búinn að vera duglegur að rölta um og skoða mannlífið, fuglana og taka ljósmyndir. Öðrum sögum fer af gæðunum.
Þegar maður sest niður á Austurvelli með kaffi í hönd kemst maður ekki hjá því að fylgjast með fjölbreyttu mannlífinu. Þarna er að sjá allar tegundir af fólki, listaspírur, rónar, ömmur, mömmur, pabbar og börn. Þangað kemur í góðu veðri fólk eftir vinnu til að sitja í sólinni og lepja bjór eða bara sleikja sólina.

Og klæðaburðurinn er jafn fjölbreyttur og fólkið. Þó ég hafi ekki mikið tískuvit hef ég gaman að því að fylgjast með hvernig fólk er til fara. Einu hef ég tekið eftir, en það er þessi blessaða stígvélatíska sem mér hefur fundist nokkuð áberandi um nokkuð skeið. Ég hef einmitt tekið eftir því að konur klæðast þessum stígvélum sínum einnig í hitanum í sumar og á ég erfitt með að ímynda mér að það sé þægilegt þegar heitast er.
Eftir að hafa velt þessu svolítið fyrir mér hef ég komið mér upp einni kenningu.
Konur í háum leðurstígvélum eru líklega bara með svona loðnar lappir. A.m.k. er það skásta notagildið sem ég fæ séð fyrir há leðurstígvél í 20°c hita eða meira.



Mánudagur 23. júní
Þennan dag: | 2005 | 2004 | 2003

Fljúgandi Súkka

Redneck's og bjór. Já og galin hugmynd. Ótrúlegt að þeir slasi sig ekki á þessu á þessu.

Smelltu á myndina - api.
youtube thumbnail

Þetta er ekki til eftirbreytni, en það má hlægja að þessu.



Laugardagur 21. júní
Þennan dag: | 2005 | 2004

Til minningar um lúkasarmálið

Þar sem Lúkarsarmálið í fyrra hefur fengið næga umfjöllun, þá ætla ég ekki að rifja það neitt sérstaklega upp. En ég rakst á smá graffitti á Akureyri sem er ágætur minnisvarði um Lúkasar málið.


Lúkas

Ég hef að vísu séð þessa mynd víðar á akureyri, en án hundsins. Svo virðist sem að honum hafi verið bætt við þarna. Er þó ekki alveg hund viss þar sem ég þekki ekki til hver gerði þetta.



Mánudagur 16. júní
Þennan dag: | 2007 | 2006 | 2004 | 2003

Hótanir borgaryfirvalda

Nú hafa borgaryfirvöld sent 500 íbúum á miðborgarsvæðinu bréf þess efnis að lagfæra hús sín. Þar er víst gerð krafa um að húseignir séu lagfærðar fyrir 1 ágúst n.k.

"Jón B. Einarsson, íbúi á Hverfisgötu 101 í Reykjavík, finnst lítið til vinnubragða borgaryfirvalda koma en þau sendu íbúum Hverfisgötu bréf fyrir stuttu þar sem þess var krafist að ytra byrði húsa við götuna yrði lagfært fyrir 1. ágúst. Sé það ekki gert muni yfirvöld athuga að grípa til þvingunarúrræða sem þau hafa heimild til." [Vísir.is]

Það er gott og vel að hafa áhuga á fallegri miðborg og hvetja íbúa til að snyrta til og viðhalda eignum sínum.
En eru borgaryfirvöld ekki að gleyma einhverju? Mér finnast barnamyndirnar sem hylja brunarústir miðbæjarins ekki koma í stað fyrir lagfæringar á þessu sviðna horni. Ég nenni nú ekki að vitna aftur í fyrrv. borgarstjóra þar sem hann sagði áherslu verða lagða á að þetta sár stæði ekki lengi í borgini. Hvað með byggingar í Bankastræti og við laugarveg sem standa auðar og afgirtar? Hús sem þarfnast málningar eru hjóm eitt við hlið þessa sorabletta miðborgarinnar. Borgaryfirvöld hljóta að bera einhverja ábyrgð í þessum málum. Ef þau geta skikkað almenning til að mála húsin sín hljóta þau að geta skikkað eigendur þessa húsa til að gera eitthvað í sínum málum eða jafnvel gripið inní.
Miðbærinn er hreinlega niðurdrepandi, þrátt fyrir myndirnar af kátum krökkum sem eiga að fela þennan ósóma.

albin kl [ 14:29] lokað á komment


Fimmtudagur 12. júní
Þennan dag: | 2004

Hasar á Drullutá

Bannað að snúa við á AkranesiÉg er búinn að rekast á tvær greinar á emm bjé ell í dag um eftirförina "miklu" á Akranesi. Bílstjóri sem sá lögguna "snéri við" hann var ekki vopnaður og veitti ekki mótspyrnu við handtöku. Já og sem betur fer voru sérsveitarmenn kallaðir til. Það er eins gott að vera ekkert að snúa við á Akranesi. Sérstaklega ekki ef að þú hefur verið stoppaður af lögguni áður.
Aldrei að vita nema nema kallað verði á sérsveitina og þér veitt eftirför og stungið í steininn.
Þessi frétt er ekki beinlínis að segja manni neitt af viti annað en að maðurinn hefur áður komið við sögu lögregu. Þá er klárlega mál að elta hann uppi fyrst hann snéri við. Spurning um að úða kannski smá varnarúða til öryggis líka svona fyrst búið er að kalla út S.S.*

"Maðurinn var samkvæmt upplýsingum lögreglu ekki vopnaður við handtöku og veitti ekki mótspyrnu. Frekari upplýsingar um málið hafa ekki verið gefnar út en fyrr í dag greindi lögregla frá því að maðurinn hafi verið á leið út úr bænum en snúið við er hann mætti lögreglubíl. Honum hafi því verið fylgt eftir en ekki hafi náðst til hans fyrr en eftir töluverða leit."
Annars er þetta voðalega furðulegt, eitthvað hlýtur hann að vera grunaður um því síðast þegar ég vissi var ekki lögbrot að snúa við. Ekki einu sinni þó löggan sjái, nema sérstök umferðarmerki boði annað.

*SérSveitina.

Uppfært:
Nú er komið í ljós að maðurinn var m.a. grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, einnig mældist hann á ofsahraða eftir að hann snéri við. Nú er maður aðeins betur farinn að skilja hvað lögreglunni gekk til, en það var nú ekki alveg ljóst í fyrstu. En svona er kappið í fréttaflutningnum, greinilega betra að fara af stað með frétt um nánast ekkert til að vera ekki seinni. Og fylla upp í eyðurnar síðar.

albin kl [ 15:21] lokað á komment


Þriðjudagur 3. júní
Þennan dag: | 2003

Frábært fyrirtæki

Það er ekki nokkur spurning að núna er ég að vinna hjá besta fyrirtæki sem ég unnið hjá. í fyrra var árshátíðin hjá okkur haldin í Kaupmannahöfn Og nú er rétt nýbúið að halda árshátíðina okkar þetta árið. Og var nú ekki lakari staður fyrir valinu en Spánn, nánar tiltekið Alicante. Ég fór út aðfaranótt föstudagsins 23. mai og kom heim aðfaranótt þriðjudagsins 27. mai. Aðfaranótt föstudagsins varð að vísu fyrir rest bara föstudagsmorgun, því í stað þess að fara í loftið 04:10 var auglýst seinkun til 07:00 og eftir að vélin yfirgaf flugstöðina kom í ljós minniháttar bilun sem olli frekari töf í einn og hálfan tíma. En að lokum komumst við til spánar. Veðrið var svo sem ekkert sérstakt en alveg í lagi.
Sjálf árshátíðin var haldin utandyra við hótelið í ljómandi fínu veðri. Stemmingin var alveg mögnuð og klikkt var út með svakalegri flugeldasýningu. Því verður nú ekki neitað að vel var tekið á djamminu og seinni tvo morgnana var farið að sofa EFTIR morgunmatinn á hótelinu og farið á fætur aftur um hádegi. Úfff... maður var orðinn ögn þreyttur þegar heim var komið. En frábær ferð alveg.
Miðað við yfirlýsingar má búast við að árshátíðin verði haldin annað hvert ár erlendis sem er frábært.

albin kl [ 15:11] lokað á komment


Bender
Bender: Like most of life's problems, this one can be solved with bending.




Flickr myndir


Það var lagið

Get the Flash Player to see this player.

Efnisflokkar

Skrif eftir mánuðum


Leita á síðuni



Teljari og static

 

Færslur: 1384
Comment: 1410


albin.png



SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme

Knúið af MovableType 3.32