bebe
Nýtt blogg fyrir strákana...
Allt mögulegt!
Björgvin byrjaði á leikskólanum Bæjarbóli mánudaginn 17. ágúst og aðlögunin gekk súper vel. Núna að tveim vikum liðnum er eins og hann hafi verið þarna alltaf :)
Ein af kennurunum er Erla Bára sem er mamma Ægis sem var með Sigríði Ástu í bekk. Ekki að það skipti máli, en ég varð að koma því að þar sem hún þekkti mig í sjón þegar hún sá mig fyrst... spurði hvort ég væri ekki frá Ólafsfirði og þegar ég svaraði játandi þá vissi hún strax hverra manna ég væri og sagði að ættarsvipurinn (úr Miðbæjarættinni þá örugglega) leyndi sér ekki :)
En BH er dýrkaður og dáður á leikskólanum. Þær keppast við að dásama hvað hann er duglegur og klár og kátur... ég er alltaf með sólskinsbros þegar ég fer út frá þeim :)
BH er líka farinn að tala óendanlega mikið.
Hann segir reyndar mamma við alla, mig, pabba sinn, ömmu Sillu, leikskólakennarana... ég held að hann haldi að mamma þýði bara fullorðin eða eitthvað í þá áttina :)
Hann segir reyndar stundum mammi þegar hann er að tala við pabba sinn.... þetta hlýtur að fara að koma :þ
Orðin hjá honum eru snilld... hann kallar öll húsdýr mumu, sama hvort það eru hestar eða kindur. Reyndar kallar hann svín "gís" og meinar þá væntanlega grís :)
Í dag var fyrsti dagurinn sem hann sá kind og sagði meme en ekki mumu.
Dekka (drekka), nammnamm (eitthvað gott), dund (sund), gúkkúla (súkkulaði), míómjá (teiknimyndin Mio Mao), meija (meira, aftur)... þetta eru orðin sem hann er að segja ný núna.
En hann "talar" allan daginn!
BH á líka bestu vinkonu á leikskólanum. Hún heitir Anna Karítas (minnir mig, skal komast að því á mánudaginn) og er á annari deild.
Þau eru búin að vera eins og samlokur síðan BH byrjaði á leikskólanum og fóstrurnar (já, já, mjög un PC) héldu að þau hefðu eftirvill verið á sama dagheimili.... en ég hef aldrei séð þetta barn fyrr svo ekki er það málið. Þau eru eins og lítil hjón segja þær, elta hvort annað út um allt og eru almennt mjög fúl yfir að fá ekki að vera saman alltaf :)
Þau strjúka meira að segja stundum af deildinni sinni til að fara og vera hjá hinu!
Ætli tengdadóttirin sé fundin?
Við byrjuðum líka á framhaldsnámskeiði í sundi fyrir 3 vikum. Það er algjört æði og mínum finnst nú ekki leiðinlegt að fá að fara í sund 2x í viku :D
Hann er sundfífl eins og mamman :)
Litli snillingurinn
<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/xd12hR68sWM&hl=en&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/xd12hR68sWM&hl=en&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>
Besti vinur
Snudduskipti
Snudduskipti
Originally uploaded by Nornin
Sofið einn
Hann sofnaði þar í gær, með pabba sinn hjá sér og vaknaði ekki fyrr en um kl. 5 og kom þá uppí.
Reyndar var ekki mikið sofið eftir kl. 5 því Þorgeir var að drekka og Björgvin því bara vel vakandi og hress :-)
Morgunhaninn minn!
Hann og Unnar fóru því á fætur um 6 leytið en ég og Þorgeir kúrðum áfram til 9.
Stóri bróðir / Big brother (english version below)
Björgvin sýnir ekki mikil merki þess að vera afbrýðisamur, en hann er dálítið lítill í sér á dagheimilinu og þarf að láta "kela" sig aðeins meira en venjulega.
Að öðru leyti hefur hann lítinn áhuga á litla bróður en veit þó að við erum að tala um Þorgeir þegar við segjum "brói" við hann.
Annars er hreyfi- og félagsþroski í fullri þróun þessa dagana og orðið pabbi heyrist æ oftar (annars hefur það alltaf verið mamma yfir okkur bæði). Björgvin er farinn að setja upp "þrautabrautir" fyrir sig (með að rusla öllu til í stofunni og klifra svo í dótinu) og er orðinn ansi fær í að henda og sparka boltum.
Unnar tók sig til og keypti sand í sandkassann okkar og lagaði og málaði kofann í garðinum svo nú getur Björgvin fengið að rasa út heima hjá sér um helgar :-)
Fyrstu kynni af yngri bróður
Nú eru 17 og 1/2 mánuður á milli þeirra og óvíst að það sé nógu þroskað til að verða afbrýðisamur.  Eftir því sem okkur skilst þá er mesta hættan á afbrýðisemi þegar eldra systkinið er á milli 2 og 6 ára gamalt.  Björgvin hefur félagsþroska á við 2ja ára (hann er byrjaður að "leika með" öðrum börnum) og hugsanlega hefði það áhrif á viðbrögð hans við nýju systkini.
Þorgeir kom heim í dag.  Við Björgvin fórum saman að sækja hann, (já, það var búið að aflétta banni við komu barna á Kvennadeildina! Vei!! :-) ),  Björgvin fékk að sjá Þorgeir og snerta hann en Björgvin var reyndar ekki alveg viss "hvað" þetta eiginlega væri, enda Þorgeir sofandi.
Á leiðinni heim var Björgvin afar forvitinn og langaði mikið að sjá betur hvað þetta litla sem væri að ferðast með honum væri að gera.
Þegar heim var komið fékk Björgvin nær óskipta athygli mína á meðan Andrea sinnti Þorgeiri og svo öfugt.  Okkur fannst á sumum viðbrögðum að Björgvin væri já, pínu abbó út í Þorgeir.  Þarna væri þetta "skrýtna litla" komið inn á heimilið mitt.  Alla vegana fór Björgvin iðulega í burtu þegar við kölluðum á hann, hann draslaði til af meiri krafti en oftast áður og virstist vera almennt frekar órór.  Einnig tók hann upp á ýmsum nýjungum eins og t.d. "hindrunarhlaup" (setti alls kyns hindranir upp og prílaði yfir þær.  Notaði einna helst hirslubox úr sjónvarpshillunni, IKEA "tunnugorm" og óhreinatauskörfuna fyrir hindranir), setti snudduna í munnvikið (nokkuð sem ég hef aldrei séð hann gera áður), fór í skóna mína og hann sagði nokkur ný "orð" (hjóðasamsetningar).
Allan tíman var hann samt örlítið forvitinn en vildi fara jafn harðan og hann var búinn að sjá hvað litli bróðir var að gera.  Við leyfum Björgvini auðvitað að sjá allt og erum meðvituð um að hann vilji kannski ekkert vera að glápa endalaust þannig að Björgvin fékk mikið frelsi í dag á heimilinu auk endalausrar athygli frá því okkar sem ekki var að sinna Þorgeiri.
Í kvöld komust við að því að þetta verður að öllum líkindum ekkert mál.  Þorgeir var eitthvað órólegur í vöggunni sinni og tek ég hann upp og hef á öxlinni.  Björgvin vill koma líka í fangið á mér þannig að ég ákveð að setjast niður á gólf svo að Björgvin sjái sem allra best hvað litli bróðir er að gera á öxlinni hans pabba.  Björgvin fékk líka að koma við Þorgeir eins og hann vildi og varð ég fljótt var við það að Björgvin strauk litla bróður blíðlega (var "ahh" við litla bróður).  Þegar Björgvin fékk hrós og hvatningu varð hann ofsalega kátur og hljóp fram, kom inn aftur, skríkti ennþá meir og fór þannig nokkrar ferðir fram og til baka. Skömmu seinna spyr Andrea Björgvin hvort þau ættu finna snuddu fyrir litla bróður.  Björgvin tekur þá sína eigin snuddu út úr sér og réttir að Þorgeiri sem þá var kominn aftur í vögguna.  Við urðum ekkert smá stolt af okkar manni enda fátt sem Björgvin elskar meira en snuðið sitt og það að hann sé tilbúinn að gefa litla (skrýtna) bróður snuðið sitt segir nánast allt sem segja þarf. Björgvin fékk auðvitað fullt af kossum og mikið hrós frá okkur báðum fyrir örlætið og varð klárlega afar stoltur af sjálfum sér.
"Stóri" bróðir
Hann kann ekki að tala, finnst best að sofa upp í og fær ennþá 1 pela fyrir svefninn... en samt á hann núna að fara að verða stóri bróðir... mömmu hjartað tekur kipp í hvert sinn sem ég hugsa um það að kannski fái hann ekki næga athygli eftir að nýji ormurinn kemur í heiminn og ég er þvílíkt hrædd um að hann "verði útundan" fyrstu dagana, svona rétt á meðan við Unnar erum að koma okkur í gírinn að vera tveggja barna foreldrar.
Hann er svo mikill mömmu strákur þessi elska (ekki sjúklega háður mér samt) og ég er svo mikill Björgvins-Mamma að ég kvíði bara fyrir að geta ekki verið að sinna honum allan daginn út og inn.
En svona er þetta víst ef maður ákveður að eignast fleiri börn, það breytist allt.
BH er samt orðinn svakalega stór og er farinn að leika við hina krakkana á dagheimilinu, ekki bara við hliðina á þeim eins og önnur börn á hans aldri, heldur leika með þeim stærri :-)
Enn um labbakút
Hlutirnir í hillunum okkar færast ofar og dótið á borðunum innar til samræmis við gríðarlegan vöxt Björgvins.  Ég held í alvöru að hann sé búinn að taka vaxtarkipp einu sinni í viku síðasta mánuðinn.  Allavegana eigum við núna fullt af samfellum sem pössuðu fyrir örfáum vikum en eru eins og prýðis spandexgalli utan á honum akkúrat núna.  Það þýðir bara það að við þurfum að sækja fatalagerinn hans niður í kjallara og "uppfæra" fataskúffurnar hans. Gott að hafa þennan svakalega lager í kreppunni :-)
Sofið í sínu eigin rúmi
Við byrjuðum á þessu ferli í síðustu viku (á fimmtudaginni nánar tiltekið og það gekk vonum framar). Hann vaknar reyndar af og til á næturnar og þá þarf að hlaupa inn til hans og finna snudduna... en þá róast hann venjulega um leið :-)
Næsta skref er að venja hann af pela O_o
Hann fær reyndar bara einn á dag fyrir svefninn en það þarf að fara að kötta hann út líka.
Þar kom að því :-)
Björgvin er byrjaður að labba af stað.  Það gerðist um klukkan hálf sex inni í herberginu hans hér á Austurveginum. Hann einfaldlega stóð upp úti á miðju gólfi, gekk fimm skref og beygði sig eftir trébílakallinum sínum.  Hann náði að vísu ekki að grípa kallinn áður en hann pompaði á rassinn en það er allt í lagi.  Ég náði myndum af honum á gemsann þegar hann reyndi nokkrum sinnum enn þetta síðdegi og koma þær um leið og ég veit hvernig ég næ þeim inn á bloggið Komnar :).  Ég er svo ánægður með litla manninn !!
27012009.jpg
Originally uploaded by Unnar
Byrjaður að labba af stað :-)
27012009_001_.jpg
Hlaðið niður af Unnar
Úps..!
27012009_002_.jpg
Originally uploaded by Unnar
Sko mig !!
Stand og labb
Svo í dag tók hann 2 skref!
Það er ekki langt í að hann fari að ganga!
Jóla jóla
Hann fékk jafnvel meira af gjöfum en í fyrra og þótti okkur þó nóg um þá!
Mamma og pabbi = 4 DVD diskar (2x Maggi mörgæs, latibær og Bubbi byggir)
Amma Silla og afi Steinar = Hluti af nýja vagninum, gjafabréf í Kringlunni, traktor með dýrum, jólaskraut.
Afi Ævar og Una = Samfella og gammosíur.
Langafi Olli = Hluti af nýja vagninum, bók og sokkabuxur.
Langamma Svava = Kubbapúsl.
Jögga ömmusystir = Húfa með nafninu hans.
Rögnvaldur frændi = Hundur í bandi.
Þorfinna Ellen = Bra bra bók.
Linda og Lárus = DVD með Bubba byggi
Jósef Dagur = Handklæði með hettu.
Rún "frænka" = Bangsi.
Hulda "frænka" = Bókin Fyrstu orðin.
Fanney "frænka" = Unicef myndabækur.
Amma Stína = Handklæði með nafninum hans, bolti og bók.
Langamma Þórhildur = Lest sem keyrir sjálf, bolur.
Bjössi ömmubróðir og co = Mjá mjá bók.
Við héldum í alvöru að pakkaflóðið myndi aldrei stöðvast!
Björgvin hafði lítinn áhuga á pökkunum sjálfum en var alltaf voða hrifinn þegar innihaldið kom í ljós :-)
Þá úh-aði hann og ah-aði af hrifningu.
Svo er best að taka það fram að á jóladag fundust 3 nýjar tennur (tennurnar fyrir aftan augntennurnar, sem eru ekki komnar upp) og 3 aðrar eru að láta á sér kræla.
Þratt fyrir að vera að taka 6 tennur, hefur drengurinn verið eins og engill og sagði 3 ný orð í morgun!
Þau voru Bíbí (sem hljómaði reyndar eins og babí), nebbi og klappa.
Hann er bara að verða altalandi barnið :-p
Fyrsta sjúkrahússdvölin
Ég gerði það svo þar sem litli ormurinn var ennþá með 40° á föstudagsmorguninn.
Á Barnaspítalanum var tekin þvagprufa og smá blóðprufa (stungutest) og niðurstöðurnar voru ekki nægilega góðar. Það var hækkun á CPR gildi og líka á hvítum blóðkornum, sem bendir eindregið til einhverrar sýkingar. Læknarnir giskuðu helst á þvagfærasýkingu eða væga lungnabólgu.
Björgvin fór í lungnamyndatöku og þar sem ég er ófrísk mátti ég ekki vera hjá honum á meðan... mínum var sko slétt sama og heillaði hjúkkurnar upp úr skónum með því að liggja bara alveg grafkyrr á meðan þær tóku myndina og leyfði þeim að klæða sig í aftur og allt :-)
Þvílíku hrósin sem hann fékk frá þeim, það mætti halda að drengurinn væri gerður úr gulli!! (Mamma brjálað stolt að sjálfsögðu :-D )
Á lungnamyndinni sást bara ponsulítill blettur svo lungnabólga var fljótlega afskrifuð sem orsökin. Þá var þvagfærasýking það næst líklegasta og til að ná í "hreint" þvag varð að setja upp þvaglegg.
Það tókst nú ekki í fyrstu tilraun því Björgvin hefur líklegast verið nýbúinn að pissa þegar þær reyndu að ná í þvagið.
Önnur tilraun var gerð klukkutíma seinna, tókst betur og náðist nóg þvag til að senda í ræktun.
Þá tóku blóðprufu raunirnar við.
Fyrsti læknirinn sem reyndi fann ekki æð.
Næsti fann æð en hún rifnaði, svo fann hann aðra æð sem rifnaði líka.
Það var gefist upp eftir að aðeins náðist nóg í 2 litlar blóðprufur.
Þegar þarna var komið sögu var Unnar mættur á svæðið og ég skrapp út í Keflavík til að sækja "gistitöskurnar" þar sem búið var að ákveða að við yrðum á staðnum þar sýkingin finndist.
Björgvin náði að sofna í svona klukkutíma og amma Silla kom að fylgjast með litla gullinu sínu.
Þegar hann vaknaði kom einn læknir í viðbót og náði að setja upp æðalegg í æð í höfðinu á honum. Þá loksins náðust góðar blóðprufur og Björgvin fékk breiðvirk sýklalyf í æð.
Á þeim þvagprufum sem búið var að skoða sást að hann var dálítið þurr og fékk því næringu í æð. Náttúrulega búinn að vera með 40° hita í 5 daga og búinn að vera lystarlaus og kannski ekki alveg nógu duglegur að drekka.
Þegar ég kom til baka voru þeir feðgar komnir upp á deild og Björgvin kominn með næringu í æðina :-)
Ég gat nú ekki annað en brosað af honum. Hann lítur út eins og lítill álfur :-D
Að venju var hann hress og kátur, alveg sama um þetta snúru drasl, svo framarlega sem pabbi nennti að ganga á eftir honum með súluna með dælunni :-)
Mamman fékk náðarsamlegast að fara heim til mömmu sinnar að sofa um kl. 10 og pabbinn varð eftir á deildinni.
Björgvin sofnaði um 10.40 og vaknaði nokkrum sinnum yfir nóttina, aðallega til að láta skipta á sér, þar sem næring í æð veldur miklu þvagláti.
Þegar ég kom aftur á sjúkrahúsið um klukkan hálf 12, tjáði Unnar mér að búið væri að útskrifa Björgvin!
Sýkingin reyndist ekki vera þvagfærasýking né nokkur önnur sýkning, heldur sennilegast einhver hitavírus sem veldur hækkun á CPR gildum og fjölgum hvítra blóðkorna.
Hann var líka hitalaus og búinn að vera það frá miðnætti.