Nú eru bara 11 dagar eftir en ég er búin að vera með samdrætti og verki síðan á miðvikudagskvöldið (15. apríl). Þeir eru reyndar mjög óreglulegir og verkirnir sem fylgja eru ekkert óbærilegir, en mér finnst samt að þetta sé nokkuð gott merki þess að ormurinn ætli ekki að bíða fram til 28. með að koma í heiminn :-)
Það er ótrúlega spes að finna fæðinguna fara af stað. Ég var náttúrulega sett í gang með Björgvin Hrafnar og veit því ekkert við hverju er að búast þegar þetta gerist bara að sjálfu sér, er bara eins og frumbyrja... reynsluboltinn sjálfur :-p
Tilfinningin er svolítið eins og ég sé svöng, jafnvel þótt ég sé nýbúin að borða, svo er þrýstingur niður í legið og í átt að lífbeininu og nokkuð sterkur verkur vinstramegin í leginu sem fylgir þessu.
Sá verkur gæti reyndar stafað af klemmdri taug eða eitthvað þannig, amk er hann öðruvísi en hinir verkirnir sem ég finn.
Ég setti vögguna saman í gær og er búin að vera að þvo föt í dag, til að vera nú með eitthvað tilbúið þegar gríslingurinn kemur í heiminn... var alls óviðbúin því að fara af stað svona snemma, en hlakka mikið til.
Comments (1)
þú átt eftir að rúlla þessu upp að koma frænda í heiminn - á hvaða hátt sem það fer:) Hann sver sig allavega í ættina ef hann ætlar að verða um 19 merkur því báðir mínir voru svo stórir - fínt að hafa þá svona búttaða því þá halda þeir haus á hnakkaspikinu;)
Hlakka til að heyra fréttir!!
Posted by Hildur | 21.04.09 22:05
Posted on apríl 21, 2009 22:05