« Fæðingarsagan (now with english translation!!!) | Main | Ótrúlegt »

Fyrsta baðið (english version below)

Þorgeir fór í bað í fyrsta skiptið í kvöld.
Við byrjuðum á að koma Björgvini í rúmið og svo áttum við þrjú (foreldrar+Þorgeir) ljómandi góða stund saman á baðinu :-)
Þorgeir var ljós eins og venjulega, æmti hvorki né skræmti í baðinu, var rólegur á meðan Unnar þurrkaði honum og fannst ljómandi gott á meðan ég nuddaði hann.

Þessi fyrsta vika er búin að ganga eins og í sögu.
Unnar fékk verkefnalista og er búinn að vera að dunda sér við hann og ég hef bara verið að dúllast heima með Þorgeir á meðan Björgvin er á dagheimilinu.

Við erum farin að hlakka mikið til að fara út í gönguferðir og svoleiðis, mamman er ekki alveg týpan í að hanga heima í margar vikur ;-)

Þorgeir had a bath for the first time tonight.
We started by getting Björgvin into bed and then the three of us had a cosy moment in the bathroom.
Þorgeir was so good (as always) and didn't make a sound while in the bath, was calm while Unnar dried him and loved it when I gave him a massage.

This first week has been really good.
Unnar got a list of chores to do while on leave and I have been poking about with Þorgeir while Björgvin is at the daycare centre.

We are looking forward to going outside for walks with the little one, his mommy isn't the kind you keep cooped up in the house for weeks on end ;-)

Post a comment


Færslan

Þessi færsla var rituð maí 8, 2009 11:08 EH.

Síðasta færsla var Fæðingarsagan (now with english translation!!!).

Næsta færsla er Ótrúlegt.

Þú getur séð fleiri færslur á forsíðunni eða með að nýta þér tímavélina.

Knúið af
Movable Type 3.32