« Bréf til Þorgeirs Úlfars | Main | Nýtt blogg fyrir strákana... »

Nafngjöf

Þorgeir Úlfar fékk nafnið sitt formlega 25. júní, á Þórsblóti Ásatrúarfélagsins.
Það var æðisleg stemming á Þingvöllum þar sem það voru tvær nafngjafir, ein siðfesta og brúðkaup.
Hinn strákurinn sem fékk nafn heitir Birnir Snær og það verður gaman að sjá í framtíðinni ef þeir verða báðir áfram í Ásatrúarfélaginu... kannski eru þetta verðandi goðar :-)
Þeir stóðu sig báðir rosalega vel bræðurnir... Þorgeir svaf bara þar til komið var að athöfninni og Björgvin lék við hvern sinn fingur og alla viðstadda í leiðinni :-)

Athöfnin var falleg og Jóhanna Harðar Kjalarnesgoði mælti nokkur falleg orð um hversu sterkan grunn börn þurfa til að þau verði sterkir einstaklingar í framtíðinni.
Eitthvað sem allir foreldrar verða að vera meðvitaðir um.

Þetta var alveg yndislegur dagur á Þingvöllum og hlökkum við til að eiga marga fleiri svona daga saman.

Post a comment


Færslan

Þessi færsla var rituð júní 30, 2009 11:23 EH.

Síðasta færsla var Bréf til Þorgeirs Úlfars.

Næsta færsla er Nýtt blogg fyrir strákana....

Þú getur séð fleiri færslur á forsíðunni eða með að nýta þér tímavélina.

Knúið af
Movable Type 3.32