« Kannski þetta sé allt að ganga upp. | Heim | Enn einn pistill um samskipti kynjanna.... rétt upp hönd sem hefur áhuga. »

Sogblettir.

Já ég er búin að sjá nokkra sobba núna undanfarið, ekki á mér heldur elskulegri vinkonu minni sem var að hössla sér til yndisauka og skemmtunar á laugardagskvöldið, já það er alltaf gaman að hössla , ég er alavega komin í hösslfrí í 10 mánuði eða svo .... ég ætla að mæta fersk í skólann og ekki vera í neinu karlastússi.... það er bara aðeins of mikill athyglisbrestur innifalinn í svona karlastandi.

Ég fór svo í bakaríið áðan og afgreiðslustúlkubarnið þar var/er ekki deginum eldra en 16 ára, ég tók sérstaklega efti því að hún var ennþá í nátfötunum, mjög flegnum bol sem var nærbuxnableikur og blúndur yfir spæleggin(verðandi brjóst), ekki alveg sá klæðnaður sem ég myndi senda táningsbarnið mitt í í vinnuna.
En einsog var nú mikið um meik í andlitinu á þessari stúlku þá steingleymdi hún að meika yfir RISA sogblett á hálsinum á sér, kannski var meikið búið, enda hefði þurft töluvert magn af farða yfir þennan risavaxna sogblett.

Talandi um laugardagskvöld, ég fór í partý til kunnungjakonu okkar Ellu gellu, partýið byrjaði hægt en örugglega og endaði í svaðalegu trúnói og fylleríi , algjörlega unaðslegt bara.
Við dönsuðum og skemmtum okkur, öll símanúmerin sem við fengum frá sætu strákunum fylltu minnið á símanum okkar og við vorum í skýjunum með kvöldið. Frábært partý,frábær félagsskapur, frábærir karlmenn og allt.

Post a comment


Um

This page contains a single entry from the blog posted on 28. júlí 2008 11:57.

The previous post in this blog was Kannski þetta sé allt að ganga upp..

The next post in this blog is Enn einn pistill um samskipti kynjanna.... rétt upp hönd sem hefur áhuga..

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 0
Gestir í gær: 3
Þennan mánuð: 16

Færslur: 63
Álit: 114

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme