« ágúst 2008 | Heim | október 2008 »

september 2008 Archives

Fimmtudagur 11. september 2008

Syndandi konfektmolar

Nú bý ég uppi á Vallarheiði, þar eru fullt af æðislegum krökkum á öllum aldri, við erum búin að hristast vel saman og þetta nám er alveg að gera sig, það er stærðfræðipróf á morgun og fyrirlestur í næstu viku.
Ég og Elín búum saman þar til þessi elska flytur til seyðisfjarðar í október, ég veit nú ekki alveg hvernig égverð því að við erum búnar að dekra okkur í drep, förum út að borða á hverjum degi, förum í sund og gerum allt saman.
Alveg einsog við Yokan mín gerðum forðum daga, mikið var það nú yndislegt.

Við Elín tókum eftir því um daginn að við (sem fyrirlítum samstæða krumpugalla á hjónum og pörum )vorum nú alveg eins klæddar, báðar í dökkum gallabuxum, rauðum bol og svartri peysu/jakka yfir og báðar í puma skóm og með ljóst hár, þvílíkur skandall.

Við skruppum í sund og vorum eitthvað að spjalla saman í pottinum þegar heilt fótboltalið af unaðslega fallegum karlmönnum kom í laugina og þeir hnykluðu brúnkukremsbrúna vöðvana framan í okkur og voru ekki feimnir við að tölta fram og aftur um bakkann.
Eins gott að við vorum holdvotar fyrir því við héldum ekki vatni, vökva eða vindum yfir .essum konfektmolum.
Kannski vorum við bara með egglos eða eitthvað allavega höfðum við ekki séð annað eins klobbakonfekt í marga daga, en ég er alveg búin að gefa skít í þessa pásu sem ég talaði um fyrir einhverjum bloggum síðan vegna þess að okkur var hreinlega ráðlagt í byrjun skólans að slaka á í formi líkamsæfinga, kynlífs eða einhvers sem ég man ekki lengur hvað var. Og sérstaklega fyrir próf og eftir krefjndi verkefni.

Þannig að ég þarf svona slökunarfélaga sem ég get notast við þegar ég er að fara í próf og svoleiðis... er einhver sjálfboðaliði !?

kær kveðja Dulan ykkar.

Um september 2008

This page contains all entries posted to Dula in september 2008.

ágúst 2008 is the previous archive.

október 2008 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 1
Gestir í gær: 1
Þennan mánuð: 55

Færslur: 70
Álit: 136

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme