« Langur tími ekkert séð! | Heim | Árshátíðin er á morgun »

Kreppa skreppa hreppa...ISSS PISSS

Nú er aftur byrjað að finnast matarilmur í stigagöngum almennings þegar hin svokallaða kreppa er gengin í garð, nú kemur maður útá gang í blokkinni sem maður býr í og finnur fiskibollulykt á þriðjudögum, kjötbollulykt á fimmtudögum einsog þetta var alltaf hjá ömmu í gamla daga. Ég er alveg að fíla þetta, ekki lengur biðraðir á matsölustöðunum allan daginn óháð tíma heldur bara alvöru heimilismatur á boðstólnum á matartímum. Ég hefði nú haldið að kreppa væri þegar fólk ætti ekki lengur mat til að elda sér heima hjá sér.

Já ég er ekki frá því að það sé vel til fundið að skella áramótaskaupum á dagskrá ríkissjónvarpsins á sunnudögum og rifja upp kreppufílinginn síðan 1983-1986 og svo kom þarna aftur einhverskonar kreppa í kringum 1990-1992 minnir mig , þá var galað og gólað um blankheit og lægð í atvinnulífinu.

Síðan þá hafa matsölustaðir sprottið einsog gorkúlur uppum alla veggi og maður hefur hugsað sér gott til glóðarinnar að fá sér heimsendar pítsur í staðinn fyrir soðna ýsu, það er mega , gíga ,ofur tilboðs vika á öðrum hverjum pítsustað í hverjum mánuði og maður sér ekki sólina fyrir þessu kínverska, indverska,ítalska, tælenska og ameríska jukki sem tröllríður auglýsingatímum fjölmiðlanna.
Í mörg ár var ógeðslega leim og púkó að taka slátur og í mörg ár varstu hallærislegur ef þú gast komið niður soðinni ýsu og það var hreinlega gubbað framan í þig ef þú vogaðir þér að steikja uppúr smjöri en ekki Omega 6,5,8,6, og 3 fitusýrum fyrir hitt og þetta hitastigið.

Árin 2000 -2007 varstu náttúrlega bara fábjáni ef þú hristir þér ekki búst eða herbalæf sjeik í alla mata og keyptir þína rándýru orkudrykki til að skvetta í ginið á þér eftir hlaup á brettinu á rándýra heimsklassa staðnum sem var byggður fyrir litlar 578 milljónir og þú varst nú ekki manneska með viti ef þú keyrðir ekki um á jeppa sem var keyptur fyrir myntkörfulán í evrum , jenum og dollurum og þá er ekki einusinni verið að tala um alla flatskjáina, gemsana, tíslufatnaðinn og leikföngin sem var hægt að fá með vísa rað í lange baner og svo ef þú gast ekki borgað þá hringdirðu í bankann og þjónustufulltrúinn ýtti bara á einverja takka og þá gastu keypt þér enn meira af rusli og drasli sem þér fannst seinna svo ljótt og úrelt að það fór í öskutunnuna já eða til að hugsa. betur um jörðina þá fórstu á rándýra jeppanum þínum með það útí sorpu.

Nú er allt í einu einsog þyrmi yfir fólk, það á ekki greiðan aðgang að eyðslufé vegna þess að það er búið að hjálpa ríkisstjórninni ásamt auðmönnum Íslands að setja skerið okkar á höfuðið, íslenska útrásin er bara einsog tyggjókúla sem er svo búin að springa yfir andlitið á mér og þér og núna sitjum við með sletturnar í hárinu og grenjum yfir því að þetta hafi nú aldrei verið planið og bendum á alla aðra en sjálf okkur með sakleysissvip.

Nú eru Bretar alltíeinu vondi kallinn og við skiljum ekkert í af hverju við erum orðuð við terrorisma, nei auðvitað ekki, við almenningurinn áttum engan hlut að máli og að við þurfum að fara að borga þær skuldir sem við höfum komið okkur í er auðvitað bara fásinna.

Svo núna eru húsmæður og feður þessa lands alltíeinu farin að streyma í bónus að kaupa sér hjartasnitsel í raspi sem áður hefði nú verið hlegið að og taka slátur, margir í fyrsta sinn.
Taka strætó og sauma sér föt alveg einsog var gert hér lengi vel og þótti sjálfsagður hlutur, sumir taka uppá því að leggja þurrkaranum og uppþvottavélinni, láta bara duga að hafa heimasíma og rúv, segja upp tímaritum og fjölvarpi. Já þetta þykir alveg hreinasta kreppa og volæði mikið að þurfa skyndilega að neita sér um enn einn óþarfann á heimilinu.

Ég skal viðurkenna að sé komin kreppa þegar ég þarf að veiða sjálf í matinn niðri við höfn.

Athugasemdir (5)

yokan:

Jáh það munar ekki um skrifin hjá þér núna.
Best að vera sammála um að vera ósammála í þetta skiptið mín kæra :)
En ég hef nú svo sem eitt eða tvennt að segja því ekki er ég fræg fyrir að þegja
Það er komin kreppa, þó fólk sé kannski ekki byrjað að svelta hér þá er ekki þar með sagt að það sé ekki kreppa.
Þó við sjáum ekki það ekki er ekki þar með sagt að það sé ekki til.
Ég vona að það verði ekki eins slæmt og menn spá þessu öllu, því þá eru ansi margir í mjög vondum málum í lengri tíma.

En ég held áfram að mæta í mótmælin gegn Davíð og vil þessa kalla út úr seðlabankanum. Seðlabankinn er ekki vettvangur fyrir fólk sem er ekki með þekkingu eða kunnáttu á fjármálum. Við viljum dýralækna á dýraspítala ekki seðlabankann.
En knús af Skaganum á Keili krútt

Já það er kannski fjármálakreppa sem tröllríður heimilum í landinu okkar, en við erum ekki í hungursneyð enn.
Það er móðgun fyrir fólk sem hefur lifað alvöru KREPPU að kalla þennann tittlingaskít kreppu.
Við erum að lesa um stríðsárin í skólanum og þetta krepputal í dag er hlægilegt miðað við þær virkilegu hörmungar sem fólk mátti þola, þá átti fólk ekki mat og áti ekki möguleika á að nálgast hann, þá missti fólk heilsuna eða/og börnin sín , þá gat fólk ekki verið öruggt um að sjá næsta dag.... það heitir kreppa..... þetta ástand í dag er svokölluð lægð að mínu mati.
Já Yokan sín , við höfum nú haft þann háttinn á að vera sammála um að vera ósammála í eldfimum málum, ég elska þig í ræmur sæta ;) knús og kram

Einhvern tíman hefði ég verið sammála þér. En kreppa er ekki bara ákveðið mikið af slæmu ástandi. Þó ég t.d. verði ekkert verulega mikið var við blessaða kreppuna (sem byrjaði samt í sumar hjá mér) þá verður að horfast í augu við það að það er kreppa. Jafnvel þó svo að við séum ekki farin að leggja okkur skótau til munns.

Hinsvegar finnst mér að það sé ekki sama hvernig er talað um kreppuna, það er auðvelt að láta fólk skíta á sig úr hræðslu ef óvarlega er farið að. En það á samt ekki að fela sannleikann eða staðreyndir.
Það er mikil hætta á að einhverjar fjölskyldur eigi eftir að missa mikið.

Jú mikið rétt Óli , auðvitað er kreppa í fjármálalegum og eignalegum skilningi þess orðs, fólk er að missa allt sem það á vegna þess að það brennur upp, en á maður að detta ofaní þunglyndið og barma sér.... ég er allavega ekki aleg orðin þunglynd enn og reyni að halda í vonina að þetta batni fyrir tilstilli samstöðu og vináttuhugar landanna sem eru ennþá vinveitt okkur.
Ég er alveg á kúpunni líka, en ég reyni að létta lundina.

Rattati:

zZzZzZzZzZz.... voðaleg langloka var þetta hjá þér.

En frábær pistill! Meira svona.

Post a comment


Um

This page contains a single entry from the blog posted on 28. október 2008 18:08.

The previous post in this blog was Langur tími ekkert séð!.

The next post in this blog is Árshátíðin er á morgun.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 0
Gestir í gær: 3
Þennan mánuð: 16

Færslur: 71
Álit: 141

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme