« nóvember 2008 | Heim | febrúar 2009 »

desember 2008 Archives

Sunnudagur 21. desember 2008

Fallin með 4,3 í stæ

Já það er ekki tekið út með sitjandi sældinni að vera eins afspyrnu lélegur í stærðfræði og ég. Ég er fallin aftur í stærðfræði, en ég á möguleika á að ná í upptökuprófinu einsog seinast.
Ég ætla ekkert að grenja yfir þessu því ég fékk 9 í ensku, 8 í íslensku og 8 í líffræði og ég get stært mig að því að meðaleinkuninn var mun lægri en það sem ég fékk í þessum fögum þannig að ég má sátt við una.

Ég mun hafa krakkana mína yfir jólafríið eða allavega á meða þau eru í fríi og ég er alveg ótrúlega glöð með það, enn sem komið er hehehe.
Ótrúlega gott að hafa verið helgarmamma í haust og vetur í þessari námstörn og allri hópavinnuinni og dramatíkinni sem maður hefur verið að upplifa.
já við byrjuðum vel og svo fór karakter sumra að koma í ljós og þeir sem duttu út úr náminu gerðu það á fyrstu vikunum, það er alveg magnað að sjá 120 manns hristast saman og verða ein heild en samt svo ólíkt fólk í ólíkum deildum.
Við í skessuhorninu sem er verk og raun erum sko ekki eins penar og háhælaðar einsog gellurnar í fluffudeildinni.
Ég get ekki annað sagt en ég sé búin að standa mig vel og ég vona að ég fái tækifæri til að sanna að ég geti þetta allt saman og verði vel menntuð á mínu sviði þegar upp verður staðiðeftir einhver ár.

Kallamálin standa bara í stað , nema það kemur svona einn og einn yfirleitt á facebook sem er eitthvað að gera hosurnar grænar, en ég er bara alveg orðin úrkula vonar, það vilja allir eitthvað annað en ég vil, og ég veit ekkert hvað ég vil lengur.
Ef maðurinn ér einhver sem ég þekkti þegar ég var á föstu með honum Hlyni fyrir meira en fimmtán árum síðan þá eru þeir orðnir tannlausir, sköllóttir eða mikilmennskubrjálaðir hrokagikkir með kústskaftið grafið uppí rassinum.
Ef ég sé einhvern sem er eldri þá á hann mörg börn og einhverjar af fyrrverandi eiginkonum sem gætu gert manni lífið leitt, foreldrarnir orðnir gamlir og lúnir og margt annað.
Ef ég hitti barnlausan þá er hann líklegast alltof mikill lúði, eða býr of langt í burtu eða alltof ungur, nú eða bara að leita af einhverri til að pota í.

Nei ég er orðin löt við að spá í þessu, ég get ekki orðið ánægð með neitt og þá er ég ekkert að pirra mig á þessu. Prinsinn mætir bara þegar hann mætir og ég bíð bara róleg og prjóna sokka eða eitthvað.

En hvað er þetta , ég virðist ekki getað bloggað um neitt nema karlmenn , ég meina það!
Hér eru óteljandi mál í gangi á Íslandi og ég spái bara í hversu glötuð karlamálin mín eru.

Já það er nú gott á meðan ég bý ekki í pappakassa úti á götu í þessari tíð.

Ég á nú enn í mig og á en ég sé að verðin eru nú ekki að lækka í kreppunni.
En það á samt eftir að versna er mér sagt að fróðara fólki og verður ekki til að hrópa húrra fyrir ástandið næstu 5 til 10 árin.
Gott að vera námsmaður næstu árin held ég :)

JKH er á hvammstanga og líkar alveg glimrandi vel þar og vonast til að geta klárað tíunda bekkinn með þeim bræðrum Helga og Sölva s ér við hlið, svo er stefnan sett á framhald strax eftir tíundabekk í verkmenntaskólanum á Akureyri, sem mér líst vel á.

Haraldur minn lenti í einelti í rimaskóla fyrstu vikurnar, hann Dabbi kann sko tökin á þessum einelturum og snaraði sér einsog naut í flagi að laga þetta leiðinda mál. Það tókst með miklum ágætum og má hann eiga það sem hann á að þetta tók hann ekki langan tíma.

Gyða mín er söm við sig og hún er líklegast sú sem allir bera óttablandna virðingu fyrir því skvísan sú lætur ekki segja sér fyrir verkum og ég heyri á öllum að það sé hollast að vera ekkert að skipta sér alltof mikið af henni, en hún er hvers manns hugljúfi þegar sú hliðin snýr upp.

Já ég hugsa að jólahugvekjan sé farin að styttast í annann endann pog vil ég bara senda hugheilar jólakveðjur yfir borg og bý, ég vonast til að öllum líði vel um hátíðarnar og bið kærlega að heilsa og óska öllum gleðilegs árs og þakka fyrir gömlu og góðu stundirnar.

Kv Sirrý og börn.

Mánudagur 29. desember 2008

Áramótaannáll árið 2008

Í janúar byrjaði víst þetta blessaða ár og ég var viss um að þar sem þetta er nú slétt tala og allt svoleiðis þá myndi nú árið verða létt og skemmtilegt, í janúar var ég dagmóðir með full pláss og hafði sirka 400 þúsund krónur á mánuði og gat veitt mér ýmsan munað einsog það að fara í lit, plokk og vax ásamt tíðum kaffihúsaferðum með vinkonum mínum og útstáelsi um þær helgar sem ég hafði ekki börnin, ég var með krakkana mína tvær vikur í einu og bjó í klukkurima í grafarvoginum. Allt gekk einsog það hafði gengið seinasta eina og hálfa árið og var ekkert á leiðinni að fara að breytast.
Í febrúar rofaði aðeins til í kallamálunum og ég eignaðist svona semi kærasta, já kannski ekki alveg sú týpa sem ég var vön að vilja en ég ákvað að prufa, en það entist ekki nema sem vinasamband, kannski bara best fyrir alla aðila.
Á hlaupársdag fór ég í svokallað SVETT sem var frábær lífsreynsla og er ég alveg óð að komast aftur í svoleiðis.
Á árinu er ég búin að kynnast fullt af hressu og skemmtilegu fólki og passað fullt af æðislegum börnum.
Í mars var fermingarundirbúningurinn á fullu og dóttir mín varð 4 ára þann 18. og dóttir systur minnar 3 ára viku seinna.
Svo gekk fermingin ljómandi vel í alla staði og við græddum alveg .... nei nei ekki alveg. Held að svona meðal ferming kosti alveg hönd og fót þó maður sé ekki að gylla sálmabækur og senda krakkana í myndatöku.
Í vor fórum við norður í tvær fermingar, aðra hjá Sölva á Hvammstanga og hina hjá Bryndísi frænku í Öxarfirði, ég á mínum slitnu sumardekkjum var næstum komin útaf á Tjörnesinu og var með hjartað í brókinni fram að afleggjaranum til Akureyrar og þá tók þurr vegur við alla leið suður til Reykjavíkur.
Í júní fékk ég þá flugu í hausinn að selja allt, fara í skóla, hætta að vinna sem dagmamma og gera eitthvað úr sjálfri mér, hætti í herþjálfuninni með Elínu sem við vorum búnar að stunda saman frá því í október 07 og fór í einkaþjálfun til hennar Gyðu sem var búin að vera að þjálfa okkur í heilsuakademíunni.
Við Elín fórum saman í einkaþjálfun hjá henni svo í sporthúsinu og vorum þar í allt sumar.
Svo fékk ég inni í Keili í verk og raunvísindadeildinni og var alsæl þegar Ingó bróðir minn ákvað að kaupa af mér íbúðina, en þá var líka farið að halla undan fæti í fjármálunum svo um munaði því að ég var náttúrlega ekki búin að vera með vanaleg laun í tvo eða þrjá mánuði

. Mútta mín varð fimmtíuogeitthvað og við systkinin buðum henni út að borða og fórum með hana á Mama Mia sem sló í gegn.

Frumburðurinn varð svo 14 ára í júlí við mikinn fögnuð, við fórum út að borða með pabba hans og Sölva í tilefni dagsins. Og svo var hann bara farinn norður fljótlega eftir það.

Ég fór með nokkrum stórkostlega skemmtilegum vinum mínum í sumarbústað um miðjan ágúst og kunna þeir allar bestu þakkir fyrir yndislega skemmtun. Hlakka til að koma næst ;)

Ég fékk nú svona sénsa og lán héðan og þaðan sem hefur náð að fleyta mér ansi langt í skólanum, ég flutti svo 1.september hér uppá völl og hef búið hér í þessu rokrassgati síðan.

Féll algjörlega fyrir náminu og mig langar að læra meira og meira, er búin að vera mikið í hópavinnu með öllu skemmtilega fólkinu sem er méð mér í bekk og það tekur nú bara meira og strangara við eftir áramótin.
Við barnsfeður mínir ákváðum að það væri best fyrir frumburðinn að vera fyrir norðan í skóla og litlu börnin að vera hjá mér aðra hverja helgi.
Það voru miklar vangaveltur búnar að vera í sambandi við það hvort ég ætti að hafa Gyðu og Haraldur yrði þá hjá pabba sínum og ég veit ekki hvað og hvað, en svo urðum við sátt við niðurstöðuna að þau yrðu hjá mér aðra hverja helgi og það hefur reynst mjög vel.

Júlíus vildi vera þar sem Sölvi og Helgi væru þá með honum í bekk og Lísa vinkona gekk honum í móðurstað og þar með er hann hamingjusamur og sáttur.

Hann er á Hvammstanga í 9. bekk. Haraldur byrjaði í sex ára bekk í ágústlok og er núna í Rimaskóla í fyrsta sé, hann lenti nú að vísu í einelti til að byrja með en það var fyrir harðfylgi pabba hans að það gekk vel og fljótt yfir og núna eru allir orðnir meðvitaðir um að vera vinir.

Gyða mín er í leikskólanum og hún stjórnar einsog herforingi þar sem og annarstaðar, ég held að ég sé sú eina sem get tjónkað við dömuna án teljandi áhættuatriða.
Ég varð 34 ára í október og er ekki enn farin að finna grá hár enda lita ég samviskusamlega reglulega.
Pabbi minn varð svo 60 ára í byrjun nóvember og hélt mikla drakúlaveislu af því tilefni þar sem mikið var borðað og sérlega mikið drukkið, mamma þekkti mig allavega ekki í ástandinu sem ég var í þegar ég kom heim, en sem betur fer er ég ekki vön að drekka svo mikið að ég sé í vandræðum LOL.
Svo tók við hin stórkostlega árshátíð gestapó sem er algjörlega einstakur viðburður á alheimsvísu og ég er enn brosandi við tilhugsunina.
Svo varð sonur minn 6 ára í lok nóvember, það var tvöföld veisla og ég veit ekki hvað og hvað.

Síðan fljótlega eftir það tóku prófin við, mér gekk vel í öllu nema stærðfræðinni en ég skal bara fara að skila þetta, þetta á að vera við allra hæfi og ég skil ekki af hverju ég er svona ógeðslega heft í tölum.

Núna eru jólin yfirstaðin og ég vil senda mínar besu kveðjur til allra sem ég þekki og þeirra sem þekkja mig.
Áramótin á næsta leyti og bróðir minn á afmæli þann dag og það er meira að segja farið að rofa pínu til í karla málunum, peningamálunum, og ég get ekki annað gert en að horfa bjartsýn fram á nýtt ár og taka því opnum örmum.

Gleðilegt ár öllsömul elskurnar mínar. Hafið það gott og gangið hægt um gleðinnar dyr.


Um desember 2008

This page contains all entries posted to Dula in desember 2008.

nóvember 2008 is the previous archive.

febrúar 2009 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 1
Gestir í gær: 1
Þennan mánuð: 55

Færslur: 75
Álit: 148

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme