Já það er ekki tekið út með sitjandi sældinni að vera eins afspyrnu lélegur í stærðfræði og ég. Ég er fallin aftur í stærðfræði, en ég á möguleika á að ná í upptökuprófinu einsog seinast.
Ég ætla ekkert að grenja yfir þessu því ég fékk 9 í ensku, 8 í íslensku og 8 í líffræði og ég get stært mig að því að meðaleinkuninn var mun lægri en það sem ég fékk í þessum fögum þannig að ég má sátt við una.
Ég mun hafa krakkana mína yfir jólafríið eða allavega á meða þau eru í fríi og ég er alveg ótrúlega glöð með það, enn sem komið er hehehe.
Ótrúlega gott að hafa verið helgarmamma í haust og vetur í þessari námstörn og allri hópavinnuinni og dramatíkinni sem maður hefur verið að upplifa.
já við byrjuðum vel og svo fór karakter sumra að koma í ljós og þeir sem duttu út úr náminu gerðu það á fyrstu vikunum, það er alveg magnað að sjá 120 manns hristast saman og verða ein heild en samt svo ólíkt fólk í ólíkum deildum.
Við í skessuhorninu sem er verk og raun erum sko ekki eins penar og háhælaðar einsog gellurnar í fluffudeildinni.
Ég get ekki annað sagt en ég sé búin að standa mig vel og ég vona að ég fái tækifæri til að sanna að ég geti þetta allt saman og verði vel menntuð á mínu sviði þegar upp verður staðiðeftir einhver ár.
Kallamálin standa bara í stað , nema það kemur svona einn og einn yfirleitt á facebook sem er eitthvað að gera hosurnar grænar, en ég er bara alveg orðin úrkula vonar, það vilja allir eitthvað annað en ég vil, og ég veit ekkert hvað ég vil lengur.
Ef maðurinn ér einhver sem ég þekkti þegar ég var á föstu með honum Hlyni fyrir meira en fimmtán árum síðan þá eru þeir orðnir tannlausir, sköllóttir eða mikilmennskubrjálaðir hrokagikkir með kústskaftið grafið uppí rassinum.
Ef ég sé einhvern sem er eldri þá á hann mörg börn og einhverjar af fyrrverandi eiginkonum sem gætu gert manni lífið leitt, foreldrarnir orðnir gamlir og lúnir og margt annað.
Ef ég hitti barnlausan þá er hann líklegast alltof mikill lúði, eða býr of langt í burtu eða alltof ungur, nú eða bara að leita af einhverri til að pota í.
Nei ég er orðin löt við að spá í þessu, ég get ekki orðið ánægð með neitt og þá er ég ekkert að pirra mig á þessu. Prinsinn mætir bara þegar hann mætir og ég bíð bara róleg og prjóna sokka eða eitthvað.
En hvað er þetta , ég virðist ekki getað bloggað um neitt nema karlmenn , ég meina það!
Hér eru óteljandi mál í gangi á Íslandi og ég spái bara í hversu glötuð karlamálin mín eru.
Já það er nú gott á meðan ég bý ekki í pappakassa úti á götu í þessari tíð.
Ég á nú enn í mig og á en ég sé að verðin eru nú ekki að lækka í kreppunni.
En það á samt eftir að versna er mér sagt að fróðara fólki og verður ekki til að hrópa húrra fyrir ástandið næstu 5 til 10 árin.
Gott að vera námsmaður næstu árin held ég :)
JKH er á hvammstanga og líkar alveg glimrandi vel þar og vonast til að geta klárað tíunda bekkinn með þeim bræðrum Helga og Sölva s ér við hlið, svo er stefnan sett á framhald strax eftir tíundabekk í verkmenntaskólanum á Akureyri, sem mér líst vel á.
Haraldur minn lenti í einelti í rimaskóla fyrstu vikurnar, hann Dabbi kann sko tökin á þessum einelturum og snaraði sér einsog naut í flagi að laga þetta leiðinda mál. Það tókst með miklum ágætum og má hann eiga það sem hann á að þetta tók hann ekki langan tíma.
Gyða mín er söm við sig og hún er líklegast sú sem allir bera óttablandna virðingu fyrir því skvísan sú lætur ekki segja sér fyrir verkum og ég heyri á öllum að það sé hollast að vera ekkert að skipta sér alltof mikið af henni, en hún er hvers manns hugljúfi þegar sú hliðin snýr upp.
Já ég hugsa að jólahugvekjan sé farin að styttast í annann endann pog vil ég bara senda hugheilar jólakveðjur yfir borg og bý, ég vonast til að öllum líði vel um hátíðarnar og bið kærlega að heilsa og óska öllum gleðilegs árs og þakka fyrir gömlu og góðu stundirnar.
Kv Sirrý og börn.


