Eins og flestir vita þá er ég í skólanum alla daga, ég er með fólki í bekk sem er jafngamalt og ég , munar svona tíu árum til og frá en það er misjafn þroskinn og ástandið á fólkinu hér einsog annarstaðar í lífinu.
Þegar ég kom í Keili þá var þar fyrir fullt af fólki , um 160 manns sem voru einsog ég að koma í skóla í fyrsta sinn í mörg ár, það vissi ekki hvað það vara að fara í og bjóst kannski við því að þetta yrði einsog vinnustaður þar sem hægt væri að eiga samskipti á eðlilegu nótununm... allavega hélt ég að tíundi bekkur væri yfirstaðinn.
Núna er ég búin að kynnast eiginlega öllum þarna og flestir eru ljómandi fínir karakterar, það eru auðvitað ekki heilir einstaklingar þarna innum einsog annarstaðar og maður metur það bara strax hverja maður ætlar að hunsa og hverjum maður vill kynnast, svona rétt einsog í öllu öðru.
Stundum lendir meður í bekk eða hóp með fólki sem maður getur ekki þolað nálægt sér, en hópaskiptingin býður eingöngu uppá að vera í hóp og vinnugrúppu með akkúrat þessari manneskju.
Nú er ég mjög svo umburðarlynd kona og hef haft manngæsku að leiðarljósi, ég er ekki að kippa mér upp við aðra og leiði bara hjá mér karaktera sem ég þoli illa.
Umræðan hefur stundum verið bæði baknag og rógburður á milli fólks og þar sem maður sogast stundum inní umræðuna þá hefur maður kannski tekið undir með einstaka setningum um viðkomandi.
Svo fær maður auðvitað það beint í andlitið að þessi rógur sé frá manni sjálfum komið þar sem maður stóð og jánkaði eða tók undir eitthvað sem var fyndið á þeim tímapunkti.
Og svo fær maður að heyra það að ef maður er að segja svona um einn þá segi maður svona um ALLA,,, ég er ekki sammála svona fullyrðingum.
Þú getur alveg haft horn í síðu einnar tilteknar persónu þó svo þú sért algjört gæðablóð og ef þú ert skíthæll og drullusokkur þá eru kannski ekki allir sem þekkja þig sem skíthælinn og drullusokkinn sem ég þekki. Þannig að ef maður er að láta móðann mása um einhvern sem er búinn að koma illa fram þá er ekki þar með sagt a maður bara blaðri svoleiðis um alla sem maður talar við um leið og sá hinn sami snýr bakinu í mann.
Já ég er greinilega komin í einhvern menntaskóladrama sem ætlar engan endi að taka, hér virðist sumt fólk ekki gera greinarmun á einstaklingsbundnu mati manns á fólki.
Maður getur ekki verið vinur allra , maður getur heldur ekki þolað alla , maður getur ekki umborið allt og maður getur ekki hunsað alla sem fara í manns fínustu.
Ég get svarið það að þó ég hafi þetta álit á þessari manneskju þá er ekki þar með sagt að allir mínir vinir eigi von á útreiðinni sem ég hef í undirbúningi fyirir manneskjuna sem ég gjösamlega er að fara að snappa á.
Ef maður getur gert einhvern ósanngjarnan hlut við einn þá er maður (skv almenningsálitinu) sjálfkrafa að fara að gera sama hlut við alla vini sína og ættingja... ég vildi að fólk væri jafn viljugt að yfirfæra það á alla aðra ef maður er svona næs og yndislegur við einn að maður sé það sjálfkrafa við alla aðra.
Kannski er ég að misskilja þetta, er þetta alltaf yfirfæranlegt ?
Ef þú hefur einusinni svikið manninn eða konuna þína þá ertu forritaður til að gera það við næsta maka og næsta maka og næsta.?
Ef þú hefur lent í eldsvoða, ertu þá bara bad luck í sambandi við eldsvoða ?
Ef þú hefur verið mjög óheppinn í lífinu , ertu þá bara dæmdur til að vera álitinn aumingi alltaf?
Ef þú drekkur og verður þunnur , ertu þá dæmdur til að verða alltaf þunnur eftir fyllerí?
Nei ég held að svarið sé að við lærum af mistökunum, auðvitað detta sumir alltaf í sömu gildruna , aftur og aftur og þá eru þeir teknir og þeim bent á að þetta sé vandamál hjá þeim og þeir þurfi að sjá þetta vandamál sitt skýrt og greinilega.
Það lagast ekki neitt ef þú stendur og bendir öðrum á að laga hitt og þetta , þessir sem eiga við vandamálin að stríða verða að laga sig sjálfir eftir eigin sjálfviljugu ákvörðun.
Já´.. þetta er langur pistill og öruglega mjög týpískt kvennablaður. En mér er létt .
kv Sirrý


