« febrúar 2009 | Heim | október 2009 »

ágúst 2009 Archives

Miðvikudagur 5. ágúst 2009

Spakmæli og speki ;)

Fæst orð hafa minnsta ábyrgð sagði mér ein vinkona mín um daginn, já svaraði ég, það er rétt .
Svo hugsaði ég , fæst orð hafa álíka litla ábyrgð og heimskulegt blaður sem enginn vill hlusta á, þetta fellur í sama flokk hjá mér, að segja ekki neitt og segja allt upphátt sem flýtur inní hausskelinni á manni.
Ef maður vill ekki bera neina ábyrgð á því sem maður segir, hvað er þá að marka það sem maður segir loksins þegar maður segir það sem virkilega liggur manni á hjarta.

Stundum hættir maður að hlusta á þann sem er símalandi , það er eðlilegt, ef maður heyrir sömu setninguna oft þá kannski trúir maður henni á endanum og svo ef maður heyrir hana enn oftar þá fer maður að leiða það sem sagt er hjá sér og hættir að taka mark á viðkomandi sem er hvort sem er alltaf að segja það sama.

Svolítið einsog ofsatrúarfólkið, það tyggur það sama endalaust þar til öll merking er dottin úr því sem það er að segja og eftir stendur einhver afbökuð heimatilbúin lumma sem er túlkuð á einhvern óskiljanlegan hátt.
Og svo eru það þeir sem taka það til sín sem er ekki ætlað fyrir þeirra augu og snúa því þannig að þeir taka það allt saman til sín og kvarta yfir ósanngirni og rógburði.

Já mikið er nú gott að vera saklaus einsog lítið hvítt lamb sem hefur bara séð sólina og ekkert ljótt, hefur aldrei mátt vamm sitt vita....en er svo bara alveg óvart úlfur í sauðagæru .

Já, það er margt sem á dagana hefur drifið og ég er að hugsa mikið um þá sem hafa staðið mér næst þegar byrlega hefur blásið.
Þetta minnir mig á spakmælið : Elskaðu mig þegar ég á það síst skilið því þá þarf ég mest á því að halda.

Þetta er ekki spakmæli útaf engu, ekki langar mig til að faðma og knúsa manneskju sem á ekkert skilið að hún sé knúsuð og kysst, en þetta er kannski það sem mun lækna allt sem er að.
Fyrirgefningin er það sterkt fyrirbæri að sá sem sannlega iðrast fær fyrirgefningu, kannski ekki frá öðrum , en hann lærir að fyrirgefa sjálfum sér.

Sá sem getur ekki fyrirgefið sjálfum sér er ekki fær um að fyrirgefa öðrum og þá spyr ég af hverju getur manneskja sem er vön að predika þessa gömlu góðu tuggu sína ekki farið eftir henni sjálf ?

Um ágúst 2009

This page contains all entries posted to Dula in ágúst 2009.

febrúar 2009 is the previous archive.

október 2009 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 1
Gestir í gær: 1
Þennan mánuð: 55

Færslur: 78
Álit: 151

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme