« maí 2008 | Heim | júlí 2008 »

júní 2008 Gamalt

Sunnudagur 1. júní 2008

Þá er það búið

Þrjár vikur liðnar og ég að fara af landinu í fyrrmálið. Snemma.
Þetta er búinn að vera ágætis tími, nóg hefur maður haft fyrir stafni að smakka á vínbirgðum landsins og aðstoða við að keyra upp tölurnar á þessu ári fyrir neyslu áfengs öls enda ófáir lítrarnir sem maður hefur svolgrað í sig á þessum tíma.
Ég vil bara þakka þeim sem nenntu að umbera mig meðan á dvöl minni stóð og þetta var bara helvíti gaman hjá okkur.
Skrifa síðan eitthvað skemmtilegt um veðurfar og hitastig þegar heim er komið.

Miðvikudagur 4. júní 2008

Þreyttur

Skil ekki þessa svakalegu þreytu sem helltist allt í einu yfir mig í gærkvöld.
Vaknaði í morgunn jafn þreyttur ef ekki þreyttari en þegar ég fór að sofa og hef ekki komið mér að neinu því sem ég þarf að gera og komið hádegi.
Mest langar mig bara að skríða í bælið og halda áfram að sofa.
Það er ekki út af hitanum hérna, það er ekki nema rétt rúmlega 20 stig í dag og sæmilegur blástur þannig að það kælir aðeins.
Ætla samt að reyna að koma mér í sturtu og klæða mig þó ég nenni því engan veginn.

Þriðjudagur 17. júní 2008

Svartur hundur

Hef undanfarið verið að slást við svartan hund og því ekki haft mig í það að skrifa neitt hérna.
Vona að mér sé að takast að hrekja kvikindið á brott í bili svo kanski kemur eitthvað frá mér hérna fljótelega.

Mánudagur 23. júní 2008

Tattoo

Útlínurnar komnar.
IMG_6760.jpg
Síðan bætist bara við seinna.
Kem til með að koma með myndir svona af og til af því hvernig myndin þróast.

Um júní 2008

This page contains all entries posted to Galdri in júní 2008.

maí 2008 is the previous archive.

júlí 2008 is the next archive.

Margar fleiri er hægt að finna á aðalsíðunni eða með því að þvælast í gegnum gamalt.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 1
Gestir í gær: 0
Þennan mánuð: 31

Færslur: 34
Álit: 36

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme