Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi sungu Stuðmenn hér í denn.
Þessi spurning er farin að skjóta sér af og til upp á yfirborðið í kollinum á mér og jafnan verður fátt um svör.
En þó dettur mér helst í hug, að maður fæðist til að læra, vinna, eldast og drepast svo að lokum. En hvaða tilgangi þjónar það? Fólk sem vinnur þrælavinnu eða baslast í skóla á bestu árum æfi sinnar til að sanka að sér dauðum hlutum sem það hefur síðan minnst gagn af í ellinni og drepst að lokum frá.
En spurningunni er samt sem áður ósvarað.



Komment (1)
Ég held að tilgangurinn sé fyrst og fremst að vera öðrum til gleði. Þá gleðst maður líka oftast sjálfur og allt er svo gaman.
Já ég veit, Pollýanna mætt á svæðið...
Skráð af Hexia | 08.07.08 13:35