« ágúst 2007 | Heim | janúar 2008 »

október 2007 Archives

Föstudagur 19. október 2007

(Ó)læsi á Íslandi

Mjög oft (allavega í hverri viku) spyr ég sjálfa mig að því hvort fólk hér á landi, fætt eftir 1980, eigi erfitt með lestur og lesskilning. Hvort þetta fólk, sem alið er upp í umhverfi alnetsins, kunni ekki að
a) leita að upplýsingum
b) lesa þær upplýsingar sem kunna að koma fram með þeirri leit
c) skilja og vinna úr þeim upplýsingum sem það (unga fólkið) les.

Hluti starfs míns felst í því að svara hinum og þessum fyrirspurnum varðandi ferðir, ferðalög og aðrar vörur sem við bjóðum upp á, og það er alveg með ólíkindum hvað maður virðist stundum þurfa að mata fólk með teskeið (allt í ofursmáum skömmtum) á upplýsingum, og útskýra það sem stendur á heimasíðu fyrirtækisins eða í síðasta skeyti frá mér.

Í dag fékk ég t.d. skeyti þar sem ritari spyrst fyrir um styrkina sem séu í boði á heimasíðunni okkar; hvort þeir séu bara fyrir þá sem ætli í nám til Sviss, því hún sé að fara í mastersnám í "developement and education" og slíkt sé svo dýrt því Ísland er ekki í EU og hún þá overseas nemandi (og já, allt svona í belg og biðu). Ég og kollegar mínir komum af fjöllum, og ég svaraði skeytinu og spurði á móti hvaða styrki hún væri að tala um; við værum ekki með neina námsstyrki á okkar vegum. En forvitni mín hafði kviknað. Og ég opnaði hina margvísu leitarvél Google og sló inn "styrkir í boði". Sú leit skilaði mér ekki þeim niðurstöðum sem ég leitaði að svo ég sló inn í aðra leit. Leitarorðið "skólastyrkir" varð fyrir valinu, og nú sá ég það. Númer 5 af u.þ.b. 118 niðurstöðum var:

Skolastyrkir_Google_nidurstodur.jpg

Þarna var komin skýringin á tenginunni "skólastyrkir" og "Sviss". En ef maður smellir á sjálfa síðuna kemur þessi texti (að vísu á ensku, kannski hefur það ruglað hana):

The TRINITY International Hospitality Studies.

Skólastyrkir
TRINITY makes financial aid available to six qualified students every year in the form of full-tuition scholarships for one academic year. Those scholarships are granted either directly ... [og svo heldur textinn áfram]

Nú spyr ég: Las viðkomandi ekkert meira en þær niðurstöður sem fram komu á Google-síðunni?? Ætlast fólk til að fá upplýsingar án þess að leita að þeim?

Lesa meira "(Ó)læsi á Íslandi" »

Um október 2007

This page contains all entries posted to illfygli in október 2007.

ágúst 2007 is the previous archive.

janúar 2008 is the next archive.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Talning


Gestir online: 0
Gestir í dag: 4
Gestir í gær: 1
Þennan mánuð: 59

Færslur: 12
Álit: 10

Drifið af
Movable Type 3.32

SpamPoison Fáðu Firefox! acme acme