eignalosun
Jæja, forsmekkur að vorhreingerningu. Eftir að hafa farið í gegnum geymsluna sá ég nokkra hluti sem ég vil endilega losna við (því þeir taka pláss).
ANTONIUS grind 102 cm silfurlituð, 2 stk. ANTONIUS skúffur 42x53x14 cm.
Upphækkanlegt, festingar fylgja með. Stillanlegir fætur; gera hirsluna stöðuga – líka á ósléttu gólfi. Hægt að bæta við ANTONIUS hjólum. Hægt að bæta við allskyns hillum og grindum.
Grind kostar 2.290 kr. í IKEA, skúffurnar 895 kr. stykkið, eða samtals 4.080 kr.
Selst hér á 2.000 kr.

[Reiðhjólið er farið, rölti sér út um garðshliðið í dag í fylgd með manni]
120x200x14 cm. svampdýna frá H.Gæðasvampi. Rúml. 2ja ára gömul, lítur vel út, eggjabakkalag efst.
Keypt ný á 19.500 kr., selst á 7.000 kr.

Hraðsuðuketill sem hægt er að sjóða pasta í (er með sérstakri stillingu fyrir það).
Selst á 2.000 kr.

JÄLL fatarekki hvítur
Passar með PLAGGIS tauhillum og SVAJS fatapokum.
Kostar 895 kr. í IKEA, selst á 400 kr.

2 stk. BOALT geisladiskarekki. 59x15x12 cm. Ómeðhöndlaður viður; hægt að meðhöndla með olíu, vaxi eða glansmálningu fyrir lengri endingu og persónulegt yfirbragð.
Kosta 995 kr. í IKEA, seljast á 300 kr. stk.




