Mánudagur 11. desember
Öflug í blogginu :P
Þar sem ég hef ekki verið sú duglegasta við að skrifa hingað inn þá ákvað ég að skrifa boring dagbókarfærslu :P Veit hvað þið fáu hræðurnar sem kíkið kannski hingað hafið gaman af slíku (NOT) og hér kemur hún.........
Jæja þá er litli brói loksins orðinn fullorðinn!! Uss getur ekki lengur núið mér um nasir að hann sé ekki kominn í fulla 3 tugi :P Já ok, ég er nú kannski örlítið eldri (bara örlítið :P). En já brói hélt upp á afmælið með stæl á afmælisdaginn, fyrst kíktum ég og börnin í kökuveislu hjá honum um daginn og átum á okkur gat (komum að vísu beint úr annari kökuveislu :P) eftir að hafa troðið okkur út (og undirrituð eflaust étið á sig fyrstu jólakílóin) þá var haldið heim á leið og fundið sig til fyrir afmælisdjammið sem var á Klassik sport bar (held ég fari með rétt mál). Þar var setið, spjallað, teigaðar veigar. spilað pool (sem ég notabene vann alla leikina sem ég spilaði) og svo farið í pílukast (ótrúlegt en satt, þar vann ég leikinn sem ég spilaði) og haft mikið gaman af. Held að það sannist að heppin í spilum óheppin í ástum sé barasta rétt :P thíhí.
Ætlunin var að vera driver en já stundum breytast plönin og mín ákvað að fá sér smá í aðra tánna (jebb þær eru bara tvær ;). Veit ekki hvort það hafi gert mér nokkuð gott, en allavegana skemmti ég mér barasta mjög vel :) Kíkti svo í bæinn með Þóri vini mínum og héldum á Hressó þar sem við hittum Snjólaugu vinkonu og Hlyn kærasta hennar (sem var að útskrifast úr lögregluskólanum) og dansaði hreint og beint af mér fæturna þar. Röltum á fleiri staði en héldum okkur að mestu á Hressó.
Eftir stuttan svefn, var ég vakin og dröslaðist að ná í bílinn minn niður á sportbar, nei manni var sko ekki sýnd nein miskun. Eftir að hafa rembst við að versla jólagjafir (með lélegum árangri þó) skelltum við okkur í sund þar sem börnin voru svo heppin að fá að leika sér á kajökum og eru nú óð í að fá að læra slíkt!! :/
Kvöldmaturinn var subbumatur af verstu sort þannig að nú er eins gott að halda sig við hollustuna fram að jólum!!! Allavegana ef ég ætla að komast í fötin mín það sem eftir lifir árs....
Föstudagur 10. nóvember
Mánudagur 6. nóvember
jamms og jæja, búin að komast að því að það er meira fjör hjá eldriborgurum en hjá mér :P Nú er bara að taka prjónana fram og prjóna lopasokka í jólapakkana :P
Ætla að reyna að koma mér oftar í ræktina, hef bara farið 3var síðustu rúmu tvær vikurnar og það er mjööööög lélegt :/ Spurning að nýja matartímana í vinnunni og taka smá prennslu svo ég verði ekki eins og feitu jólagrísirnir um jólin (spurning hvort það sé heldur of seint í rassinn gripið :P ).
ta ta
Laugardagur 4. nóvember
iss piss...........
Það stefnir allt í mjög blauta og hvassa laugardagsnótt, ætlunin var að fara á smá djamm (eftir mjög langa pásu) en nei haldið þið þá ekki að veðurguðirnir hafi ákveðið að skella á stormi og úrhellisrigningu!!!
Læt það nú samt ekki stoppa mig, á djamm skal ég og hana nú :P
þannig að djammdress kvöldsins er sjóstakkur, sjóhattur og vöðlur!! Þið munið semsagt þekkja mig á barnum íklædd slíku dressi ;) Annað mál er hvort ég rati enn í bæinn og hvort ég kunni þetta enn, það kemur í ljós.
----------------------------------------------------
Up date
Ekkert úr djammi, greinilega SIGN að ég eigi að láta allt slíkt vera :/
have fun peeps
Föstudagur 3. nóvember
Jón og Gunna
Er nú pottþétt ekki góð í að segja brandara, en las einn sem ég ætla að reyna að koma frá mér.
Jón og Gunna voru að klæða sig í eftir að hafa elskast. "Jón" Gunna ef ég hefði vitað að þú værir hrein mey þá hefði ég nú farið mér hægar. "Gunna" já hefði ég vitað það þá hefði ég kannski haft tíma til að fara úr nærbuxunum.
hmms æji ég er nottla glötuð í þessu en hey maður má nú reyna :P
Góða helgi alles (já þið tveir sem hafið kíkt hingað)
Sunnudagur 29. október
Sillly, silly me!!
Í hvert skipti sem ég sé vissa auglýsingu þar sem stálísskápur er auglýstur þá les ég alltaf "klámfrír" ísskápur í staðinn fyrir kámfrír! Ég meina, eins og ísskápar séu vanalega uppfullir af klámi!! Jebb, that's me, Silly, silly me :P
Laugardagur 28. október
Æfingarprógrammið mitt, jebb I´m over 30!
NÝTT ÆFINGAPRÓGRAMM
>>
>>ÞEIR SEM ERU YFIR 30 VERÐA KANNSKI AÐ BYRJA RÓLEGA OG AUKA HRAÐANN
>>EFTIR ÞVÍ SEM VIKURNAR LÍÐA.
>>ÞETTA GÆTI REYNST ERFITT FYRIR SUMA.
>>
>>HAFÐU SAMBAND VIÐ LÆKNI ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR Á PRÓGRAMMINU.
>>
>>RÚLLAÐU NIÐUR SÍÐUNA
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>RÚLLAÐU UPP AFTUR.
Föstudagur 27. október
Life goes on.....
Vinnuhelgi þessa vikuna en svo fjögurra daga frí þá næstu (vetrarfrí hjá börnunum). Ætla að fara að taka íbúðina í gegn hjá mér, breyta, bæta, mála, já eiginlega losa mig við ummerki "gamla"lífsins og gera íbúðina að minni eigin. Börnin voru að spjalla við mig hvernig stofan ætti að vera á litinn og ég gat eiginlega ekki annað en hlegið þegar litirnir sem þau völdu voru, appelsínugulur, rauður og blár :P Held ég velji eitthvað hlutlausara ;)
En já þar sem ég býst ekki við því að margir skoði þetta blogg lengur þá er ég eiginlega að röfla við sjálfa mig ;) En hey! Einn er skárri en ekki neinn ;)
Tata
Miðvikudagur 25. október
Enn á lífi...
Jæja kominn tími á að stimpla sig inn í bloggheima aftur. Lítið í fréttum eins og er nema já maður er víst kominn í hóp einstæðra, væri frekar til í að kalla það að vera sjálfstæð :P En æji svosem ekkert sem ég vil fara út í að svo stöddu.
Bara rétt að láta vita að ég sé á lífi, skelli kannski einhverju inn í kvöld ;) svona þegar ég er komin heim í rólegheitin.
Sunnudagur 5. mars
John holmes..iss soddan kríli
Jæja þá er útskriftin búin og ég voðalega sátt með það. Er ekki mikið fyrir það að standa fyrir framan fólk eins og illa gerður hlutur.
Kíkti í partý til Kristínar Óskar og þar var að auki hjálpartækjakynning þar sem ótrúlegustu hlutir voru í boði..já ótrúlegustu segi ég því að sumt var nú með því skondnara, t.d. eftirsteypa af "lillanum" hjá John Holmes, við vorum nú að vísu vissar um það að í hvert skipti sem hann hafi fengið standpínu þá hafi liðið yfir hann vegna blóðleysis :P Elliglemlingurinn ég nennti ekki að fara með í bæinn á djamm svo ég endaði með að fara heim um tvö leitið, já svona er þetta aldurinn er farinn að segja til sín :P