maí 26, 2004

Uhh fólk er alltaf að reka á eftir manni að setja inn eitthvað blaður hingað... En sko málið er að æji.. ég hef barasta ekkert að segja :/

Heyrði að vísu í dag að sumarið 2004 yrði kallaði rigninga sumarið mikla!

Sem er með endæmum slæmt fyrir mín sumar áhugamál þar sem ég er ekkert voðalega mikið fyrir rigningu í miklu mæli.

T.d. HATA ég að fara í útilegur..og lenda í rigningu allan tímann.. hvað er verra en að húka blautur og kaldur í tjaldi út í móa? Þó svo ég eigi gæða tjald sem heldur allri rigningu vel frá...þá NEI TAKK!

Það er nottla algjört nó nó að fara á línuskauta í rigningu og bleytu þar sem það skemmir legurnar...og legur eru dýrar.. og þar að auki.. verður miklu hálla..og það þýðir eitt fyrir aula eins og mig.... MAÐUR DETTUR!

og svo mætti áfram telja..

Að vísu er ágætt að fá einn og einn rigningadag og fara út að sulla í pollunum :Þ
Alltaf gaman :Þ

Æji deili með ykkur frekari heiladauða síðar... er lögst í hýði...ltr..

Posted by layla at 26.05.04 21:13
Comments

Verðum bara að versla okkur alvöru hjól, massa pollagalla og stígvél og hjóla í alla polla sem við finnum :D

Posted by: Óskar at 26.05.04 21:39

hehe til í það :Þ

Posted by: layla at 27.05.04 02:53