maí 30, 2004
sooooooooooooo sweet :D
Búin að eiga hreint út sagt yndislega helgi :)
Brunuðum austur fyrir fjall eftir vinnu á föstudaginn... Þar sem við áttum yndislegan tíma. Var voða dugleg í garðvinnu á laugardaginn...og hafði svona líka gaman að....allavegana stoppaði ég ekki fyrr en var að koma að mjöltum.. Rákum kýrnar upp að bænum og fylgdumst með mjöltunum...kýktum á kálfana og fl.. Röltum að því loknu aftur út í bústað og grilluðum þennan dýrindis mat *sleeeeeef* Naut síðan kvöldsins við lestur á meðan krakkarnir voru úti að leika..
Jú gleymdi einu... tókum okkur smá pásu fyrr um daginn og fórum í klukkutíma gönguferð að skoða hrafnshreiður... Gangan tók vel á og sá ég það fljótlega að ef ég ætlaði einhverntíman að drífa upp Esjuna þá þyrfti ég að æfa mig betur í hólunum.... og litlu brekkunum :Þ Allavegana þá sáum við hrafnshreiður og klifruðum upp í klettinn og skoðuðum í hreiðrið þar sem 4-5 ungar voru...gáfum þeim brauð og tókum myndir... fundum einnig þrastarhreiður niðurgrafið í jörðu... þar sem þrastargreyin þurfa að vara sig á hrafninum...hann er þegar búinn að hreinsa úr hreiðrunum sem voru upp við bústað...
Þegar heim var komið á sunnudeginum stoppuðum við nú ekki lengi heima við..heldur skelltum okkur í fjölskyldu og húsdýragarðinn að leika okkur smá...grilluðum pylsur..fórum í tæki (jahh börnin allavegana) og héldum svo þreytt og sæl heim....hmmm ég allavegana..en börnin fóru beint út að leika sér.
Á morgun er svo stefnan tekin á að fara á línuskauta ef veður verður til þess og í sund...
ltr ;)
Posted by layla at 30.05.04 20:00Hehehehehe sástu rautt og Hreindýr þarna ? :Þ
kveðja ^aggi
glæææssilegt:):)
Posted by: sase at 31.05.04 18:27

