júní 09, 2004
draumur draumanna....
Eins og þeir sem þekkja mig vita, þá á ég þrjú yndisleg börn :) Ég og krakkarnir höfum í þó nokkurn tíma verið að safna okkur aur til að komast til Danmerkur næsta sumar. Gefum okkur góðan tíma til að safna og gengur ágætlega. Stóri grísabaukurinn sem börnin eiga er orðinn troðfullur af nammipening, pening frá tannálfinum, aurum sem þau hafa fundið og aurum sem þeim hefur verið gefið eða þau unnið sér inn fyrir. Einnig höfum við verið að safna gosflöskum og dósum og þegar við komum okkur í það að fara með alla pokana í endurvinnsluna þá fáum við nokkra þúsara í safnið. Svona til að auka innkomuna í ferðasjóðinn þá hef ég ákveðið að búa til slatta af auðseljanlegum hlutum, líkt og ég hef oft gert, meiningin er að fara svo og selja í haust þegar ég er komin með einhvern lager. Æji kannski draumórar en hey.. maður verður að eiga drauma til að geta yljað sér við og þetta er stóri draumur barnanna minna.. að við förum saman til Danmerkur og förum í Legoland :) Og ég ætla að reyna að gera allt sem ég get til að gera þann draum að veruleika, þó svo ég sé flughræddasta manneskja sögunnar :)
Annars langar mig að óska honum Yngva Frey frænda mínum til hamingju með 6 ára afmælið :) og auðvitað fær hann góðar kveðjur frá frændsystkinum sínum :)
Þú veist það vel, og reynslan hefur sýnt það að þessir hlutir sem þú býrð til seljast eins og heitar lummur. Þú ættir að geta haft þetta að atvinnu ef þú hefðir almennilega aðstöðu til þess.
Yngva hlakkar annars rosalega til að hitta ykkur öll í dag...Sjáumst hress ;)
Posted by: Óskar at 10.06.04 03:37

