júní 21, 2004
Virðburðarlítil helgi...en ljúf :)
Búin að vera ljúf helgi.. átti að fara í tiltektir (sem varð fremur lítið um) en fór þess í stað í allt annað.
Börnin mín hafa varla sést inni við nema þegar þau eru svöng og svo þegar ég dreg þau inn til að þrífa, fæða og setja í svefn..... svo gaman hefur verið hjá þeim. Var voða dugleg að æfa Anítu á línuskautunum báða dagana, einnig hefur Aron verið duglegur að æfa sig bæði á línuskautunum og hjólabrettinu (samt viljað bara fara inn ef hann dettur :Þ). Enginn smá árangur sem hefur komið í ljós eftir helgina hjá þeim báðum, Áróra þýtur um eins og hún hafi ekki gert neitt annað frá fæðingu...ekkert smá gaman að fylgjast með henni :) .. ætli þau verði ekki komin á fullt í nýju hjólabretta og línuskauta pallana hér í efra Breiðholti.. ekkert smá flott framtak að koma þessu upp, enda alltaf fullt af krökkum þar á fullri ferð. :)
Kíkti á spilakvöld til Beggu, skemmti mér bara ágætlega.. spiluðum Actionary, spjölluðum og snæddum þessar dýrindis veitingar sem Begga hafði galdrað fram, þar á meðal var ostar, vínber, kex, salat, heitur réttur og fl.. úff hvað mín varð södd....enda ekkert smá gott :Þ
Æfði mig að tjalda hústjaldinu í fyrsta skiptið :Þ hehe síðustu 8 árin sem ég hef átt þetta tjald, þá hef ég alltaf horft á þegar því hefur verið tjaldað... en nú neyddist mín til að læra þetta þar sem ég er að fara í fyrstu útileguna ein með börnin... úff nú reynir á mína þar sem ég hef aldrei þurft að raða í bílinn, tjalda né taka tjaldið saman :Þ hehe verður eflaust bara gaman.. samt svolítið stressuð á að gleyma einhverju og þessvegna er mín sko byrjuð að gera to do lista.. :Þ vinn hægt og rólega að honum út vikuna...
en jæja... nóg af röfli í bili...
ta ta
Posted by layla at 21.06.04 00:41Hehehehe.... ég sá að það var 0 Komment
þannig að ég ákvað að leggja mitt af
mörkum og segja Hæ :)
Ég sá ekki hvað það voru mörg comment..En ákvað samt að shouta. Sýnist þetta hafa verið fínasta helgi hjá þér....Jafnvel þótt þú hafir ekki sett hana í spennusagnabúning og tjúnað upp atburði og karaktera sem fram koma :D
Vonandi verðu veðrið gott um næstu helgi svo ég nái mér í lit fyrir spán :p
Posted by: Óskar at 23.06.04 11:21

