september 22, 2004

Jæja.....

Held ég sé aðeins að missa mig í þessari verkefnabókavinnu :P Þar sem mér finnst öll svona vinna ótrúlega skemmtileg þá held ég að þessi mappa verði all skrautleg þegar upp er staðið :P Er komin vel á veg með byrjunina.. enda var mín niðursokkin við vinnuna fram til kl 04 síðustu nótt *aulasvipur* Bara gaman að þessu.

Annars er komið að því að ég mæti fyrsta vinnudaginn í vikunni, þar sem ég er búin að vera heima með krakkana vegna verkfallsins hef ég ekkert mætt þessa vikuna, en núna ætla pabbi og mamma að leyfa gormunum að gista hjá sér.. sem hefur ekki gerst svo mánuðum skipti, verður eflaust mikið gaman hjá þeim :)

En jæja skólinn bíður..

ta ta

Posted by layla at 22.09.04 17:19
Comments