september 25, 2004

Helgarfrí!!!

hehe.. þrátt fyrir að hafa aðeins unnið einn og hálfan vinnudag í vikunni þá er ég voðalega fegin því að það er komið helgarfrí :P Kvöldin hafa nottla farið í skólann og svo hefur maður notað tímann eftir skólann (frá ca 23:30 og framúr) í að hlaða inn myndum að verkefnum kvöldsins, hreinskrifa glósur og pikka þær inn í tölvuna og vinna í vinnumöppunni.

Annars gengur mér bara þrælvel í skólanum :D virðist vera að gera rétta hluti :) Sem er nottla ekki slæmt.

En jæja aftur í möppu vinnuna sem ég bara dýrka að dútla við :P

Eigið góða helgi öll sömul.. mín helgi verður bara í letigírnum eins og síðustu mánuðina... :D

Posted by layla at 25.09.04 02:59
Comments