október 23, 2004
*dæs*
Úff fór í prófið í kvöldförðun og verð barasta að segja það að ég olli sjálfri mér miklum vonbrygðum :/ lenti í tímahraki vegna fullkomnunaráráttu og jahh ætlaði varla að ná að koma módelinu fullkláruðu frá mér :( en jahh tókst það... þó það hafi varla verið með réttum árangri ef ég hefði ekki eytt öllum þessum tíma í augun. En well þetta er búið og gert svo það þýðir ekki að grenja þetta.
Tók í fyrsta skiptið við greiðslu fyrir förðun í kvöld :P hehe.. vanalega hef ég nú bara gert þetta frítt í þessi fáu skipti sem ég hef farðað vinkonurnar... en nei .. ég átti sko að fá greiðslu fyrir þessa förðun. Og mikið var gaman að sjá og heyra hvað skvísan var ánægð með útkomuna :D
Á morgun er svo förðunarkeppni No Name.. Ég sé hálfpartinn eftir því að að hafa skráð mig í þessa keppni. finnst ég einhvernveginn ekkert hafa að gera í þessa keppni. En sem betur fer er þetta bara nemakeppnin svo að það er þá von til þess að það séu fleiri á svipuðu róli og ég þarna :P Annars er allt að smella saman varðandi módelið.. outfittið svo gott sem tilbúið, skartgripirnir komnir úr krómi, hárgreiðsla í fyrramálið og svo.... jahhh bara að mæta og hafa gaman af..
úff wish me luck.. ekki veitir af :/
Posted by layla at 23.10.04 00:38Hún var stórglæsileg hjá þér mín kæra:) Og ég er með krosslagða fingur fyrir þig og þína :) Átt sko fullt erindi þangað, stendur þig vel!
Posted by: Birna at 23.10.04 15:13luckluckluckluck :o*
ef ég þekki þig rétt þa verður þetta stórglæsilegt hjá þér ;)


