október 29, 2004

Mikið er ég fegin því....

Að skóli hefst aftur á mánudaginn. Börnin mín sem og önnur börn geta þá komist aftur í sína föstu rútínu sem hefur verið heldur losaraleg á mörgum heimilum, en sem betur fer hef ég getað haft góða reglu og rútínu hjá mínum.

Komið að því að vinirnir hittist allir og leiki sér í frímínútum, en séu ekki í pössun hér og þar og hittist lítið.

Lærdómurinn hefur legið niður hjá allflestum og nú þarf liggur við að byrja á núlli í yngstu bekkjunum, því að þessi litlu kríli voru ný komin af stað þegar verkfallið hófst. Sum voru búin að vera lengi að aðlagast þessum nýja heimi sem skólinn var þeim í haust, og spurning hvort þau komi sterk til leiks eða jafn feimin og lítil í sér og í haust.

Gleðst allavegana yfir því að skólinn er að hefjast, vonandi er það fyrir fullt og allt...

Posted by layla at 29.10.04 11:24
Comments
Post a comment









Remember personal info?