nóvember 09, 2004
*hrollur*hrollur*hrooooolluuuuur*
*klór*klæj*klór*meiraklæj*ennþámeiraklór* úff eftir morguninn þá er mín búin að kóra sér annsi vel í kollinum *hrollur*. Mín mætti nottla í vinnuna og með börnin í för þar sem verkfallið er skollið aftur á. Jæja.. nóg með það... ég fer í minn kaffitíma og er hin rólegasta að borða mitt cherios þegar ein mamman kallar á mig og byður mig að koma og tala við sig... jú jú auðvitað fer ég að tala við hana. Þá segir hún... "sko ég er ekki viss hvað þetta er en það er eitthvað í hárinu á henni" segir hún og bendir á litlu dóttur sína. Ég skoða aðeins og kalla svo á deildarstjórann og við kíkjum betur á málið... jú jú.. þarna voru á ferðinni stórar og pattaralegar lýs!!! *hrollur* og auðvitað var farið í það að kemba liðinu.... Það er skemst að segja að við fundum lús í nokkrum litlum kollum
Ekkert smá ógeðslegt þetta lúsavesen *hroll*hroll*hroll* Nú er bara að kemba hár fjölskyldumeðlimanna......
Posted by layla at 09.11.04 12:26OOOOOOOOOOOOOOOJJJJJJJJJJ!!!!! Mig er farið að klæja að lesa þetta!! jakk bara..... hurru, hitti þig bara eftir áramót :)
Posted by: Lára Antonía at 10.11.04 01:37hehehe....já en ég var ekki með neina lús :/
Posted by: Sóla at 10.11.04 11:21

