desember 11, 2004
jamms.....
Jæja þá er það komið á hreint.. ég fékk 9.0 í heildareinkunn í skólanum. Það sem dró mig niður var það að ég lét ekki þrjár glósur í vinnubókina mína (náði ekki að prenta þær út í tíma vegna tæknilegra örðuleika) og svo það að ég barasta gleymdi því að það ætti að setja myndir með ritgerðinni sem ég gerði. En það verður bara að hafa það þó ég hafi klúðrað þessum þáttum.
Fórum svo út að borða á Tapas og hmm verð nú að segja það að ég hefði frekar viljað fara og fá mér feitan hammara heldur en að borga þennan pening fyrir þessa "óvissumáltíð" en samt ágætt svona þrátt fyrir allt.. lagði samt ekki í það að smakka á lambakjöti í lakkríssósu... hljómaði barasta þannig að mig langaði hreint ekki að prófa...
en já.. orðin lúin eftir jólagjafa og jólafata leiðangur svo ég kveð að sinni...
ta ta
Posted by layla at 11.12.04 19:34Til lukku með það skvísan mín....... þú ert bestust :):):):):):):)
Posted by: sigrún at 12.12.04 00:43awww takk :D þú ert líka bestustust :D:D:D:D:D
Posted by: Sóla at 12.12.04 01:43Innilega til hamingju með þetta skvísa... Frábær einkunn:)
Posted by: Birna at 12.12.04 17:42thnx.. já held ég geti barasta verið sátt svona miðað við aulaskapinn í mér :)
Posted by: Sóla at 12.12.04 18:55

