febrúar 15, 2005

hitt og þetta

*geysp* já fréttir af mér... hmms þær eru aðallega þær að þær eru engar! Ég vinn, fer í ræktina, hugsa um börn og bú og já er að æfa mig í því að fara að sofa síðasta lagi um miðnætti. Það þarf varla að nefna það að það gengur vægast sagt illa :/ því það er nú þekkt að ég er algjör næturhrafn, er þó eitthvað að þokast í áttina :P gef mér þrjár vikur til viðbótar til að ná þessu, eða þar til skólinn byrjar :P En já ræktin, ég er alltaf að rembast við að sprikla í ræktinni og gengur bara vel, elska að fara og púla vel :D enda er það fastur liður á hverjum degi. Bara verst að ég þarf að fara að fata mig upp því að bæði eru allar buxur að verða of víðar á mig og svo vantar mig aukasett af íþróttafötum og eins og allir vita þá eru þau ÓGEÐSLEGA DÝR!!!!!!!! Bara buxurnar eins og ég nota og langar í aðrar (íþróttabuxurnar) kosta 7900 kr :/ *dæs* þá eru eftir bolur, toppur og sl... spurning um að fara að safna

Annars erum við á leiðinni út til Danmerkur í sumar. Börnin völdu að fara til Danmerkur í sumarhús fremur en að fara til spánar og líst mér barasta vel á það val. Stefnan er að fara í Legoland, tívólí, einhvern ljónagarð, vatnsrennibrautagarð og sl. Frændsystkini barnanna eru sko farin að gera plön hvað skal gera þegar út verður komið :P En já auðvitað er svolítil spenna komin í krakkana mína þar sem þau hafa aldrei svo mikið sem komið upp í flugvél :)

en nóg af röfli... ta ta

Posted by layla at 15.02.05 23:28
Comments
Post a comment









Remember personal info?