mars 18, 2005
waxmaster2000
Jæja allt á fullu hér, börnin, skólinn, börnin, ræktin, börnin, heimilið, börnin, já og eitthvað fleira.
Eignaðist í dag þetta svakalega flotta professional vaxtæki :D og ýmis tilheyrandi tæki og tól, svo að nú er að finna loðna leggi sem tilvalin fórnarlömb *thíhí* svona upp á meiri æfingu að gera. En já ég er víst orðin 14 kílóum léttari en í byrjun árs, bara þokkalega sátt við það. Og hmmm hvað get ég sagt meira *hux*
Kíkti í sund með krakkana og hitti Sigrúnu vinkonu þar, sátum og kjöftuðum og á eftir fórum við öll og fengum okkur pizzur, já ég segi og skrifa pizzur því að við vorum með heilar fjórar tegundir á borðum :P hehe, en já árshátíð á morgun svo að það er eins gott að vakna snemma í fyrramálið og skella sér í gott púl í ræktinni svo maður eigi nú eitthvað inni fyrir góðum mat :P
góða helgi alles...
Waxmaster2000 kveður að sinni :P
Posted by layla at 18.03.05 23:50þú ert svo dugleg!! 14 kíló farin.. það er frábært.. og svo öll styrkingin sem fylgir þessu kona! :D þú ert yndi ;)
Posted by: passí at 20.03.05 02:52my my... og ég er ennþá heima í sófa að huxa um að fara í ræktina!! :D
Posted by: Lára Antonía at 21.03.05 10:17hehe já Lára mín það er ekki nóg að hugsa ;) En já er enn að bíða eftir því að þú skellir þér í ræktina með mér.... verð eflaust ellidauð áður en það gerist.
Passí, það er annaðhvort að duga eða drepast. Mig langar frekar að duga ;) Svo er bara að sjá til hvernig áframhaldið verður
Posted by: Sóla at 22.03.05 19:42Excellent! Til hamingju ;******
Fær maður vaxmeðferð þó maður sé bara með þrjú hár á leggjunum? *hux*
Posted by: Lilja at 29.03.05 06:26

