júlí 06, 2005
evrur....
Börnin fóru með stóra grísabaukinn sinn í bankann í dag. Þau eru búin að vera að safna í þónokkurn tíma, og setja þá afganginn af nammipeningnum sínum í baukinn. Auk tannpenings og klinks sem þau finna eða áskotnast. Mest var þetta krónur, fimmkallar og tíkallar en í heild var upphæðin sem úr bauknum kom rétt um 6000 krónur. Stolt sögðu þau við gjaldkerann að þau ætluðu að fá peninginn í Evrum. Aðspurð um það hvort þau væru að fara til spánar, þá brostu þau út að eyrum og sögðu einum rómi JÁ. Æji þau eru soddan dúllur.
Síðustu daga eru þau búin að vera að vinna með mér í garðvinnu hjá pabba og þeim hefur verið lofað að þau fái kaup fyrir, þann aur ætla þau einnig að skipta í Evrur segja þau. Þá komast þau nefnilega í tívolí.
Sjálf hef ég verið á fullu að snyrta, fæ smá aur fyrir og hann fer beint í gjaldeyri. Stefnan er nefnilega að safna vel fyrir gjaldeyri og þurfa ekki að koma út í stórri skuld. Garðvinnan hjálpar þokkalega vel til við að halda þeirri stefnu þar sem hún er þokkalega vel borguð :)
En jæja kannski maður leggi sig í smá tíma, svona svo ég sofi nú ekki langt fram eftir degi.
Posted by layla at 06.07.05 02:48

