júlí 13, 2005

queer as folk

Ég er orðin húkkt á þáttunum Queer as folk sem er á skjá einum að nóttu til. Týpískt fyrir mig að hanga yfir sjónvarpinu lengst frameftir nóttu og snúa sólarhringnum við. En já aftur að Queer as folk. Þegar sýning þessara þátta hófst, þá ollu þeir víst mikilli hneykslun hjá fólki. Sjálf verð ég að viðurkenna að ég fór hálfgert hjá mér þegar ég sá fyrsta þáttinn. En núna eru þessir þættir á meðal uppáhalds sjónvarpsefnis míns (og ekki eru þeir margir uppáhalds þættirnir).

Ætli vanþekking og fordómar eigi ekki þátt í því að fólk hneykslast yfir því að boðið sé upp á sjónvarpsefni þar sem karlmenn eru sýndir í samförum og fjallað mjög opinskátt um kynlíf aðalpersóna þáttanna. Mér finnst þessir þættir af hinu góða. Við kynnumst og venjumst öðru en hinu heilaga normi sem alltaf er fyrir augunum á okkur. Maður elskar mann, kona elskar konu, kona elskar mann, maður elskar konu...........elskum öll hvert annað eins og við erum :)

Posted by layla at 13.07.05 01:30
Comments
Post a comment









Remember personal info?