Fimmtudagur 29. apríl

Jæja..bleikt er það!!!!!!!

Já á morgun er árshátíð em.is... og þemað er bleikt og blátt.. auðvitað ætla ég að mæta í bleiku ;) hehe jahh þarf að vísu að fara að sauma dressið *flaut* ég sem kann ekki mikið á slíkt sko... en hlýt að geta klumbrað einhverju saman :P

Annars er ég búin að redda mér fríi eftir hádegi á morgun (föstud) og ætla að skella mér í klippingu og strípur... svona aðeins að flikka upp á útlitið :P Kíkja svo kannski í mjólkurbúðina...og kaupa einhverjar veigar.... og svo er það bara árshátíðin um kvöldið þar sem skal sko djammað!!!! :D

Hlakka til að sjá ykkur á árshátíðinni ;)

Sent af layla kl [19:52] Komment [0]

Mánudagur 26. apríl

fólk er fífl!!!!!!!!!!!!!!!

Hvað í andskotanum kemur okkur það við þó David Beckham geti ekki haldið upp um sig brókunum?.. Þarf endilega að klína því í heilan sjónvarpsþátt?!?!

Enn og aftur..... fólk er fífl!!!!!!!

Sent af layla kl [23:35] Komment [2]

Hehehe...

jæja.. ákvað í einhverjum fíflaskap í dag að blogga í smá kosningaáróðursstíl, vorum vinkonurnar eitthvað að fíflast með að ræða þessi mál og hmmm já ég er bráðlát..en sem betur fer fljót að fá leið á hlutunum ...svo æji er farin að leiðast þetta bull eiginlega og hef ákveðið að hætta öllu slíku (þar til annað kemur í ljós ;) Óska öllum þeim sem taka þátt í keppninni um herra og ungfrú einkamal.is góðu gengi. Og hlakka svo til að hitta liðið á árshátíðinni :D

Sent af layla kl [01:22] Komment [3]

Sunnudagur 25. apríl

Árshátíð einkamal.is

Nú fer að líða að árshátíðinni hjá okkur spjöllurunum á einkamal.is það stefnir á frábæra þáttöku í matnum og svo munu fleiri bætast í hópinn þar á eftir.. Stemmningin fyrir árshátíðinni er í einu orði sagt frábær. Enda allir á því að hafa mikið gaman af, og skemmta sér í góðum hóp :)

Við sem höfum verið að undirbúa árshátíðina, væla út vinninga fyrir titlana og gera það sem gera þarf, höfum haft mikið gaman af.. enda höfum við grætt nokkrar kaffihúsaferðir út á þessa "fundi" okkar og sötrað ófáa bolla af ístei og öðrum veigum (mér fannst bara ísteið lang best) :Þ

Það er því von okkar að allir mæti til leiks.. með gleði og góða skapið í farteskinu...það ætla ég pottþétt að gera....

og já þið sem enn hafið ekki fundið út outfittið hjá ykkur...drífa sig...ekki margir dagar til stefnu...og munið að þemað er bleikt og blátt ;)

Sent af layla kl [20:31] Komment [4]

isss

Held að mér hafi verið sagt upp sem kosningastjóra :| þar sem honum fannst hann fá heldur mikla athygli :P.... /mín voðalega sár sko.. komin í þvílíka kosningabaráttu) Þannig að ...hvernig væri að fá einhverja svooo ekki týpíska ungfrú einkamal.is í þriðja sætið? Eina svona skeggjaða og karlmannlega kvennsu *stórt*glott* þ.e. mig (er samt ekkert að búast við allt of miklu) anyway þá er ég á mynd no 14 í kvennaflokknum... já...þessi rangeygða, skeggjaða með nefið út á kinn ;)

til að sjá leiðbeiningar hvernig á að skoða myndirnar af keppendum og kjósa lesið þá bloggið hér að neðan (þ.e. langa bloggið)

Sent af layla kl [15:47] Komment [2]

Og svo kjósa........

og kjósa rétt!!!

Sent af layla kl [13:21] Komment [0]

Enn einu sinni um herra og ungfrú einkamal.is ;)

Já já ég virka örugglega voðalega tapsár og illa svekkt kerlingardrusla með því að skrifa þetta blogg :Þ Þar sem svo virðist vera að úrslit í kvennaflokknum í keppninni sé í raun ráðin fyrirfram vegna dugnaðar tveggja þáttakenda í að koma sér á framfæri ;) Hvað er ég að röfla mar.... þriðja sætið er eftir þannig að við hinar getum slegist blóðugum bardaga um það.

En Þar sem ég hef fengið mail eins og allir þáttakendur í keppninni um herra og ungfrú einkamal.is (og oppar rásarinnar) þar sem í raun er verið að hvetja alla keppendur að gera svipað og þeir tveir keppendur sem aðallega hafa verið með kosningaáróður og nota t.d. bloggsíður sínar til þess að koma sér og þeim sem þeir styðja á framfæri... þá ákvað ég að gera slíkt hið sama :Þ

Þó svo ég hafi sent inn mynd af mér í kvennakeppnina þá langar mig í raun ekki að koma sjálfri mér á framfæri þar sem ég er nú ekki viss um að ég myndi fá nokkurn til að kjósa mig ;) *glott* en aftur á móti langar mig að koma einum herranum í keppninni á framfæri... Þeim lang myndarlegasta í þeirri keppni (að mínu mati)..... KJÓSIÐ ENDILEGA HERRA NO 21


Til að skoða keppendur farið þið á http://einkamal.simnet.is/myndasida/ þurfið að skrá ykkur inn.. Notendanafnið er myndir og passwordið 2.004

En aftur á móti til að geta kosið þá þurfið þið að vera með virka auglýsingu á einkamal.is (líka þann dag sem atkvæði eru talin). Ef það er á hreinu þá getið þið farið á http://einkamal.simnet.is/em_2004.php og sent inn ykkar atkvæði :)

Atkvæðagreiðsla er hafin og stendur fram að miðnætti þann 29.04 atkvæði sem berast eftir þann tíma eru ógild, aldurstakmark til að kjósa er 16 ár.

Keppandi no XX í kvennaflokk sem styður keppanda no 21 í karlaflokk (*glott* vá hvað þetta var lélegt maður....var næstum búin að koma mínu númeri að ;)

Jæja skoðið, spáið, hafið gaman af og kjósið svo endilega

Sent af layla kl [11:25] Komment [3]

já í dag........

Eða öllu heldur gær (laugardag) skellti ég mér á Grease með krakkana + frænda minn, (verðið á sýninguna var bara á við harðsvírað morð)...og svo þar á eftir í sund í Árbæjarlaug þar sem allir skemmtu sér við að renna sér í rennibrautinni þar... þokkalega góður dagur bara.

Annars er ég að spá í að fara að vera með kosningaáróður vegna keppninnar á um herra og ungfrú einkamal.is spurning um að hringja í alla tölvuvædda ættingja og vini og fá þá til að kjósa þann sem ég styð ;) sem er nottla bara herra no xx enda lang myndarlegastur af keppendunum í kk flokki....ef ég má segja eins og er ;) Þeir sem þekkja eitthvað til mín vita um hvern ég tala ;) Þannig að þegar keppni lýkur þá verður stór partur ættingja og vina skráðir með auglýsingu á einkamal.is hehe cool eða hvað? ;)

Sent af layla kl [01:11] Komment [0]

Laugardagur 24. apríl

Buxnalausi dagurinn.....

Já fyrir þá sem ekki vita þá er buxnalausi dagurinn þann 07. mai.. leyfilegt er að vera á naríunum....en harðbannað að vera í síðbuxum eða þvíumlíku... :Þ kannski ok á góðum sólardegi hér á fróni en á svona normal degi þá er ég annsi hrædd um að það yrði nú annsi lítil bunga sem yrði sjáanleg í klofi hvers íslensks karlmanns :Þ

ta ta

Sent af layla kl [23:22] Komment [0]

Pfft... týpískt...

fyrir mig að sofna eins og klessa í sófanum og sofa þar alla nóttina... og við erum að tala um fáránlegan stað..... sko á hornsófa... þokkalega stóran.. nema hvað mín svaf í beygjunni (boganum) og í styttri helming sófans...í kuðli (eins og þeir sem þekkja mig vita þá er ég sko ekki í styttri kanntinum...þvert á móti ;)...og vaknaði náttúrulega eins og mygluð beygla (já já ég veit..er vanalega þannig :Þ) Anyway ekki þægilegt

Jæja eigið góð helgi :)

ta ta......

Sent af layla kl [11:40] Komment [0]

Föstudagur 23. apríl

Jamm og jæja...

Segi það enn og aftur.....sumir eru að taka keppnina um ungfrú einkamal.is allt of alvarlega....thíhíhí nú hljóma ég eins og abrýðisöm beygla... en halló þegar manneskja sem sjálf kvartar yfir því að "sumir" fyrri keppendur hafi "keypt" sér atkvæði þá finnst mér það nú að skjóta sjálfa sig í fótinn að gera slíkt hið sama í þvílíku mæli ;)

maður ætti kannski að fara út á næsta horn og kaupa sér nokkur atkvæði *glott* en hehe það fyndna er að mér finnst keppnir sem þessar eiga að ganga út á álit fólks...ekki það að fólk til að kjósa sig... og þar sem þetta er álit mitt þá hef ég ekki sagt fólki númerið mitt í keppninni...enda ef fólki finnst ég eiga það skilið þá kýs það mig....ef ekki þá bara ok flott :)

Sent af layla kl [00:34] Komment [4]

Fimmtudagur 22. apríl

Gleðilegt sumar :D

Sólin skín og skellihlær.......... Með öðrum orðum glampandi sól og yndislegt veður... sumarið er komið.

Í dag verður sko farið á línuskauta ó já :D Börnin eru að fara á sumarhátíð með ömmu og afa, svo mín ætlar að nýta tímann í góða veðrinu og skauta aðeins.

Sent af layla kl [10:08] Komment [0]

Þriðjudagur 20. apríl

Eins og margir eflaust vita..

Þá stendur yfir keppnin um herra og ungfrú einkamal.is Þessi keppni ætti að vera svona í léttari kanntinum hvað varðar alvarleika, enda að stóru leyti haldin til skemmtunar, jafnt sem ánægju. Síðustu vikurnar fram að árshátíð rásarinnar (þar sem úrslitin verða kunngjörð) , hlaðast myndirnar inn, hvort heldur sem er að feitum, grönnum, myndarlegum, og minna myndarlegum persónum. Því jú allir eru jafnir og eiga jafnmikinn rétt á þátttöku ;)

Ástæðan fyrir því að ég er hér að röfla um þetta er það að að undanförnu hefur maður tekið eftir hálfgerðum ríg á milli tveggja þáttakenda í keppninni annars vegar X sem er fremur ósátt yfir því að sú sem vann titilinn í fyrra Z sé aftur með í keppninni. Og hafa þær óspart rætt þetta á bloggum sínum, hvort heldur sem er í bloggi eða commentum. Las aðeins yfir það sem á bloggunum stóð og fannst nú sumt ekki alveg eiga þar heima. Kannski er ég einhver nöldurskjóða, en þegar farið er að ræða ákveðna einstaklinga, s.b.r. að einn keppandi í fyrra hefði átt að hafa keypt sér atkvæði (þó svo ekki sé nafngreint), og að talað sé um að ekki sé spurning að umrædd muni "rúlla" upp keppninni (eða hvernig sem það var orðað) vegna þess hvernig fólk væri í keppninni. Þá finnst mér heldur langt gengið.

Er ekki málið að slaka aðeins á (þó svo ég viti að þetta mál er ekki illdeilur, eða rifrildi) og hafa bara gaman af þessu :) Meira að segja hin mjög svo venjulega ég sem er nú í feitari kanntinum tek þátt í þessari keppni og hef bara gaman af. Skemmti mér vel við að giska hver gæti verið hvaða nikk, og veit að aðrir gera slíkt hið sama.

Brosum, verum góð við hvert annað og höfum gaman af þessu.... :D

Sent af layla kl [22:58] Komment [0]

Fróðleiksmoli dagsins :Þ

Eina spendýrið sem hefur ekki bein í limnum er maðurinn... Já líður ykkur ekki miklu betur eftir þessa vitneskju? ;)

Sent af layla kl [10:32] Komment [2]

Sunnudagur 18. apríl

Barnaefni..

Ja hérna hér!!!!!!! Mr. Bean komin í teiknimyndaform *bigeyes* Og alveg jafn aulalegur. Finnst nú stundum alveg á mörkunum að þetta sé barnaefni.. allavegana fyrir þau yngstu.. En jú maður hefur nú svosem getað skemmt sér yfir herra Bean í gegnum tíðina.... en afhverju að skella honum í teiknimyndaform?

Annars kemur mér það sífellt á óvart hvaða rusl er verið að mata börnin á... spurning um að vakna fyrr um helgar og vera með live brúðuleikhús fyrir börnin :P

Sent af layla kl [11:56] Komment [0]

Föstudagur 16. apríl

Sjæse!!!!!!

Skellti mér í ljós eftir vinnu, sem er svosem ekkert merkilegt. Eeeeeeeeeeeeeeeeeeeen jæja skelli mér í sturtu eftir ljósin, er svo í rólegheitum að þurrka mér þegar ég kem auga á smá gat á veggnum... Mín hugsaði auðvitað... jæja svona "perragat"! Og gat auðvitað ekki sleppt því að prófa að kíkja í gegnum gatið :Þ Og ómæ!!! við mér blasti buttnaked karlmaður í ljósum *roðn* nottla eitthvað sem ég hef aldrei séð áður :P Á eflaust eftir að forðast þennan ljósaklefa framvegis.. þó svo að eðlilegt fólk taki eflaust ekki eftir þessu aula gati...

Sent af layla kl [19:30] Komment [0]

Fimmtudagur 15. apríl

Loksins....

Eftir blogghrakningar og algjöran klaufaskap þá varð ég svo heppin að fá bloggið mitt vistað á servernum hjá Albin.. Síðan mun vonandi með tímanum fá aðeins skipulegra og skemmtilegra útlit... en hey... Róm var ekki byggð á einum degi :Þ Svo hmms sjáum til hvað gerist á næstu dögum ;)

Sent af layla kl [02:31] Komment [2]