Mánudagur 31. maí
Ég.....
-er 29 ára kvk
-er stolt 3ja barna móðir
-elska börnin mín heitar en lífið sjálft..það fá þau að heyra á hverjum degi
-er oftast skapgóð og glaðlynd..(á þó mín moment í skapvonsku :Þ)
-er feimin og óörugg (fer þó skánandi)
-er brussa!
-er handlagin
-elska að hjóla, línuskautast, fara í gönguferðir, sund og fl.. með börnunum
-er oftast félagsvera..en einfarinn kemur þó oft upp í mér...
-á marga drauma...sem gaman væri að uppfylla
-er óttaleg dagdraumamanneskja
-er pottþétt með athyglisbrest :Þ
-hef gaman af lestri
-yrki stundum..og hef alltaf gert
-er gamaldags (eflaust gömul sál)
-er algjör mömmu og pabba stelpa...vex eflaust aldrei af mér
-er óttaleg Pollýanna... reyni að fegra lífið
-hugsa mikið um tilgang lífsins..lífið, tilveruna og dauðann
-er hávær skvetta
-virka oft fráhrindandi á fólk..
-hélt alltaf að lífið væri leikur...svo eltist ég og komst að hinu sanna :s
-ætla mér í nánustu framtíð að setjast á skólabekk og "verða eitthvað"
-bulla oft....líkt og nú
Sunnudagur 30. maí
sooooooooooooo sweet :D
Búin að eiga hreint út sagt yndislega helgi :)
Brunuðum austur fyrir fjall eftir vinnu á föstudaginn... Þar sem við áttum yndislegan tíma. Var voða dugleg í garðvinnu á laugardaginn...og hafði svona líka gaman að....allavegana stoppaði ég ekki fyrr en var að koma að mjöltum.. Rákum kýrnar upp að bænum og fylgdumst með mjöltunum...kýktum á kálfana og fl.. Röltum að því loknu aftur út í bústað og grilluðum þennan dýrindis mat *sleeeeeef* Naut síðan kvöldsins við lestur á meðan krakkarnir voru úti að leika..
Jú gleymdi einu... tókum okkur smá pásu fyrr um daginn og fórum í klukkutíma gönguferð að skoða hrafnshreiður... Gangan tók vel á og sá ég það fljótlega að ef ég ætlaði einhverntíman að drífa upp Esjuna þá þyrfti ég að æfa mig betur í hólunum.... og litlu brekkunum :Þ Allavegana þá sáum við hrafnshreiður og klifruðum upp í klettinn og skoðuðum í hreiðrið þar sem 4-5 ungar voru...gáfum þeim brauð og tókum myndir... fundum einnig þrastarhreiður niðurgrafið í jörðu... þar sem þrastargreyin þurfa að vara sig á hrafninum...hann er þegar búinn að hreinsa úr hreiðrunum sem voru upp við bústað...
Þegar heim var komið á sunnudeginum stoppuðum við nú ekki lengi heima við..heldur skelltum okkur í fjölskyldu og húsdýragarðinn að leika okkur smá...grilluðum pylsur..fórum í tæki (jahh börnin allavegana) og héldum svo þreytt og sæl heim....hmmm ég allavegana..en börnin fóru beint út að leika sér.
Á morgun er svo stefnan tekin á að fara á línuskauta ef veður verður til þess og í sund...
ltr ;)
Föstudagur 28. maí
Góða helgi elskurnar....
Í dag er sko stór dagur í lífi yngsta barnsins á heimilinu... því í dag útskrifast hún úr leikskólanum og bráðlega verður hún sko ekkert leikskólabarn ;) hehe.. bíður spennt eftir því að syngja fyrir mömmu sína og bjóða henni upp á köku í leikskólanum í dag :)
Eftir vinnu verður svo brunað beinustu leið í sveitina þar sem við ætlum sko að njóta sveitasælunnar :)
Svo..hafið það sem allra bestu yfir helgina... fáum extra langa helgi núna....svo það er um að gera að nýta hana í eitthvað skemmtilegt ;)
Fimmtudagur 27. maí
Plan helgarinnar :)
Er að fara í sveitina með krakkana strax eftir vinnu á morgun.. þar ætlum við að dunda okkur eitthvað og hafa gaman af. Kíkja jafnvel á hestbak á honum Hring mínum og vinna í hinu og þessu.. Spurning um að skella í eins og eina skúffuköku til að taka með... :)
Miðvikudagur 26. maí
Uhh fólk er alltaf að reka á eftir manni að setja inn eitthvað blaður hingað... En sko málið er að æji.. ég hef barasta ekkert að segja :/
Heyrði að vísu í dag að sumarið 2004 yrði kallaði rigninga sumarið mikla!
Sem er með endæmum slæmt fyrir mín sumar áhugamál þar sem ég er ekkert voðalega mikið fyrir rigningu í miklu mæli.
T.d. HATA ég að fara í útilegur..og lenda í rigningu allan tímann.. hvað er verra en að húka blautur og kaldur í tjaldi út í móa? Þó svo ég eigi gæða tjald sem heldur allri rigningu vel frá...þá NEI TAKK!
Það er nottla algjört nó nó að fara á línuskauta í rigningu og bleytu þar sem það skemmir legurnar...og legur eru dýrar.. og þar að auki.. verður miklu hálla..og það þýðir eitt fyrir aula eins og mig.... MAÐUR DETTUR!
og svo mætti áfram telja..
Að vísu er ágætt að fá einn og einn rigningadag og fara út að sulla í pollunum :Þ
Alltaf gaman :Þ
Æji deili með ykkur frekari heiladauða síðar... er lögst í hýði...ltr..
Sunnudagur 23. maí
Sweet so sweet :D
Ahhh hvað ég er búin að eiga góðan dag í dag :D fór ekki endanlega á fætur fyrr en upp úr 10:30 í morgun..dúllaði mér smá með börnunum og sl.. síðar um daginn skelltum við okkur í Laugardalinn á línuskauta og vorum á skautum í allgóðan tíma.. svo skellt sér beint í sund og leikið í sólinni.... eftir sundið var nottla ekki annað hægt en að splæsa á sig dýrindis ís í sólinni...
Í kvöld er stefnan tekin á leti fyrir framan dvd.. jahh og eitthvað svona smotterí sem þarf að gera... En djöfull *afsakiðorðbragðið* líður manni vel eftir góða útivist og hreyfingu.. :D Verður sko endurtekið í vikunni ef veður leyfir :)
grill og spilakvöld
Fór í grill og spilakvöld til Rósu í gærkvöldi. Borðuðum brilliant mat.. meðlætið var barasta það gott að ég hefði eins getað sleppt því að borða kjötið :Þ Slöppuðum aðeins af eftir matinn en svo var farið að spila Trivial pursuit og hmmm já verð bara að segja að mér og Rósu gekk bara vel :Þ svona miðað við aldur og fyrri störf :Þ Eftir að við höfðum nær lokið því spili.. þá urðu mannaskipti.. Óli og Vala fóru og Óskar, Gummi og fleiri bættust við.. Og fórum við að spila Actionary... ég get sagt ykkur það að við hlóum svo svakalega mikið að ég er með harðsperrur í kinnunum :Þ og veit ég að það á við um fleiri :Þ
Spiluðum fram eftir nóttu.. þar til við fórum að verða sum hver lúin....og aðrir vildu fara að kíkja í bæinn..
Brilliant kvöld með brilliant fólki... takk fyrir mig :D
Laugardagur 22. maí
jahá!
Pfft verið að skamma mann fyrir að blogga ekki....og fólk farið að furða sig á því hvar ég væri og svona..
Jæja hér er bloggið...og hér er ég O/ :Þ
Mánudagur 17. maí
breytt áhugamál...
Í gamla daga þegar ég var ung... þá voru áhugamál mín og vina minna sára saklaus... En í dag virðast áhugamál unglinganna hafa breyst... jahh strákanna allavegana... því að hátt á vinsældalistanum er að fremja bankarán... hehe... já þeir læra seint af því að við búum á litlu skeri og fæst þessara afbrota er hægt að komast upp með... sagði fæst.. ekki öll..
Spurning um að fá sér nýtt hobbý.. .skella nælonsokk á feisið og þramma í bankann :Þ
all problems begin with men!!!
MENtal anxiety
MENtal breakdown
MENstrual cramps
MENopause
MEN....MEN....MEN....MEN
Sunnudagur 16. maí
Netstefnumót.... *taka 1*
You sure type better than you look.
You know, I wish life had an undo key.
I thought you said your body was "average" sized. You never said "for an elephant".
I am a little disappointed that you brought along you husband, yes.
Oh, I thought your picture was upside-down.
No, you're not ugly...this blindfold is because of my...sensitivity to light?
Mary... why is there a bulge sticking from between your legs?
I thought you was the one on the left in the pic. NOT your left, my left.
Can you pinch me? I think i'm having a nightmare.
Well, all things said, you really are an expert on how to use all the features of Photoshop for doing image touch ups.
I'm really sorry but Lookin4Love2000 couldn't make it. I'm his best mate ShagAnything22 if your still up for it!
þett'er júróvísíjón lag....þett'er júróvísíjón laaag...
Já þett'er týpískt júróvísíjón laaaaaaaaaaaaag..
Hmm eitthvað fór þetta nú öðruvísi en við íslendingar bjuggumst við :Þ Við erum náttúrulega hin bjartsýnasta þjóð þegar að Júróvísíjóninu kemur.. sama hve oft við gerum í brækurnar..
Verð nú samt að segja það að mér fannst Jónsi bara standa sig eins og hrein hetja í keppninni.. þó svo að ég hafi í raun aldrei fílað lagið þá var Jónsi bara brill...og ekkert annað :) *tíst* kannski er ég bara svona mikil gelgja á gamals aldri að fíla Jónsa :Þ
Annars átti ég voðaleg næs kvöld. Ég og krakkarnir fórum til Bryndísar (ein sem vinnur með mér) og þar bakaði ég þessar brillant pizzur sem var troðið sig út af... horfði á hluta af júróvísíjón.. átum smá nammi....en höfðum ekki pláss fyrir allt snakkið svo það var óhreyft...verður bara geymt til betri tíma :Þ Svo var bara haldið heim skömmu eftir að keppninni lauk... komið börnunum í bólið og kíkt smá í netheima... en nú liggur leiðin í bólið svo ég segi... góða nótt ;)
Laugardagur 15. maí
júróvísíjón...tú næt...
Jæja þá er það júróvísíjónið í kvöld.. okkar framlag er lagið þarna...hvað heitir það aftur... Heaven (?) með Jónsa (okkar nottla..eigum hann með húð og hári).. En þá er það spurningin... í hvaða sæti haldið þið að við lendum?????? Endilega skellið ykkar ágiskun á shoutoutið ;)
Annars fórum við í Smáralindina í dag og stelpurnar mínar hittu á ÆDOLIÐ sitt.. Birgittu Haukdal. og fengu eiginhandaráritun á handarbakið...nú er sko bannað að þvo þá hönd sem áritunin er á og hún er liggur við í fatla :Þ hehe...
eigið skemmtilegt júróvísíjónkvöld ;)
Sóla
Föstudagur 14. maí
ég er pðinþeþþa!!!!!!!! :D
Hvaða andskotans máli skiptir það............hvort Óli grís hafi farið eða ekki farið í þetta brúðkaup þarna í Danmörku!!!!! Mér gæti ekki verið meira sama og samt heyrir maður vælt um þetta í öllum fjölmiðlum.... *pfft* Ekki myndi hann mæta í mitt brúðkaup.... OG ÉG ER SKO PRINSESSA!!!!!!! and that´s true *bros*
*geyyysp*
Jæja þá er þessu tveggja vikna námskeiði lokið og ég er mun fróðari en ég var áður ;)
Er eins og undin tuska af leti og einhverju sleni og ætla mér að vera barasta í þannig stuði í kvöld... leti og rólegheitum. Hvort sem er ekkert línuskautaveður núna. Svo ég klíni mér bara fyrir framan tv-ið í kvöld og hreyfi minn stóra rass sko ekki úr sófanum...nema kannski í allra mesta lagi til að ná mér í eitthvað ætilegt *glott*
Eigið góða helgi esskurnar :D
Fimmtudagur 13. maí
Leiklist ....
Hehehe skemmti mér vel í leiklist í dag.. þar sem við þurftum að framkvæma margskonar spuna. Kom mér á óvart hvers ég var megnug ;) Hélt að ég ætti þetta sko ekki til.. enda hefur mér alltaf liðið svaðalega illa að þurfa að standa fyrir framan fólk og tjá mig.. En hafði mikið gaman af í dag
Næst er það að finna ljóð eða hluta úr kafla til að lesa upp í tjáningu og raddbeytingu.. er að spá í að lesa upp ljóð sem ég samdi (ef svo mætti segja) þegar ég var unglingur. Kemur annars bara í ljós...
jæja over and out
Miðvikudagur 12. maí
Sunnudagur 9. maí
sumarið er tíminn....
Í dag fannst mér sumarið loksins vera komið :D Jahh það er eftir að það stytti upp og allt varð þurrt úti..
Ákvað að skella mér í smá hjólaferð með börnin... eftir það í laugardalinn á línuskauta....og enduðum svo í sundi... NÆS :)
Svona á sumarið að vera hjá mér.. mikil útivera og samvistir við börnin mín :) get ekki hugsað mér neitt betra.. spurning um að reyna að finna fleira barnafólk með í för... jahh eða ekki *hux*
Annars finnst mér það áhugaverð hugmynd að stofna svona smá útivistahóp fyrir börn/fjölskyldufólk. Þar sem foreldrar og börn myndu njóta útiveru saman og stunda góða hreyfingu :) allt í lagi að láta sig dreyma um það...... ;)
Laugardagur 8. maí
Dagbókarblogg ;)
*Dæs* dagurinn í dag er búinn að fara í þvílíkan þeyting að það hálfa væri nóg.. nú er mín svo þreytt og dösuð að hún nennir barasta ekki að drulla sér í vinnupartýið sem er að byrja.
Dagurinn var semsagt ca. svona.. tæplega 11 fórum ég með Anítu og Aroni á opna húsið í leikskólanum hjá Anítu. Krakkarnir fengu sér vöfflu og svala og versluðu muffins á kökubasar.. skoðuðum myndirnar hennar Anítu.
Fylgdi svo Aroni upp í kirkju þar sem hann var að fara í ferðalag með strákastarfinu þar. Þaðan í vinnuna þar sem einnig var opið hús... átti nottla að vera að vinna en kom mér undan því... farðaði eina sem vinnur með mér..og kvaddi svo þar sem kellurnar voru að fara í óvissuferð (nema nottla félagsskíturinn ég)...
Við Aníta fórum að fá okkur að borða... mín fékk sér uppáhalds grænmetissamlokuna...nema hvað þessi var örlítið öðruvísi en vanalega...nefnilega með litlum iðandi pöddum á *hrollur*
Fórum í Smáralindina að athuga með dótarí (man ekki einusinni hvað það var)
skutumst að ná í Áróru sem var að koma úr ferðalagi með stelpnastarfinu... þaðan í Intersport að skoða línuskauta fyrir Anítu... versluðum enga slíka þar.. en mín fékk sér voða fínan línuskauta hjálm.
Næst var það Útilíf þar sem línuskautarnir fundust sem við sættum okkur við :Þ erum nú öll í voða flottum línuskautum...og auðvitað allir af sama merki ;) keyptum skautana...ætlaði að kaupa mér úlnliðshlífar en það var ekki til rétta stærðin *dæs*
Náðum í Aron úr ferðalaginu... fórum í Útilíf í smáranum þar sem ég fékk hlífarnar fyrir mig :) Freistaðist aðeins í Debenhams *hóst* og verslaði smotterí sem á að gera mig fína...en hmmm spurning hvort það virki.
Þaðan var rúllað út í Mosó... í smá erindagjörðir....og svo loks heim *ahhhh*
Og nú situr mín...dösuð og lurkum lamin... sem betur fer búin að gefa börnunum að borða (hafði það nú af að elda ofan í þau :Þ) og nýt þess að þau séu í rólegheitunum að horfa á Fuglastríðið í lumbruskógi....og fari brátt að sofa...þá getur mín breytt úr sér í sófanum og legið í leti :Þ
Efast um að ég komi mér í þetta partý í kvöld... miklu skemmtilegra að vakna ferskur á morgun og skella sér á línuskauta með krakkana (vona að veður leyfi)... :) þar sem við erum nú öll komin á ekta græjur :)
Föstudagur 7. maí
mömmublogg :Þ
Hmms... held að ungarnir mínir séu að verða stórir og sjálfstæðir *snökkt* Eldri dóttlan fór í dag í ferðalag með stelpnastarfinu í kirkjunni upp í Kaldársel þar sem hún gistir (ég fékk nottla ekki að fara með) .... enginn smá spenningur búinn að vera í gangi þar. Á morgun fer svo guttinn í dagsferðalag með strákastarfinu (og ég aftur skilin eftir) *dæs* Sem betur fer hef ég nú "litlu" skrambúleruðu stelpuna mína til að fá smá athygli frá.. fæ að fara með henni á opið hús í leikskólanum á morgun, skoða listaverkin eftir hana og fá vöfflur með sultu og rjóma.......nammi.
Annars er stefnan tekin á að hafa það bara huggulegt þessa helgina. Að vísu er óvissuferð í vinnunni á morgun og svo djamm um kvöldið.. en félagsskíturinn ég nennir ekki með og æji...efast stórlega um það að ég nenni einhverju djammi um kvöldið... kannski maður skelli sér frekar á einhverja nýútgefna mynd á leigunni...enda hef ég ekki séð neitt af því sem hefur verið að koma út.
Jæja vona að þið eigið góða helgi ;)
mamma gamla
Fimmtudagur 6. maí
Miðvikudagur 5. maí
*bíííb*bíííb*bíííííb*
Þokkalega áhugaverður dagur.. náði barasta að halda mér vakandi allt námskeiðið í dag *stolt* enda finnst mér barnasálfræði mjög áhugaverð.. Eftir hádegi var svo tónlist og hreyfileikir sem voru að megninu til mjög skemmtilegt.. nema þokkalega langur fyrirlestur í upphafi þar sem ég gerðist rangeygð af þreytu og átti all bágt með mig :Þ
Annars fíla ég mig eins og lítil stelpa í skóla... ætli ég mæti ekki á morgun með nestið mitt í nestistöskunni sem ég fékk lánaða hjá dóttlunni, með tígó í hárinu, hnésokkum og skólabúning :Þ
Mánudagur 3. maí
The most boring day ever! :/
Djís.. var hringt í mig í gærkvöldi og mér sagt að ég væri að fara á námskeið..ok.. mín mætir og var sko ekki að meika það að halda mér vakandi.. endaði rangeygð og voteygð af þreytu og geyspa :/ sofnaði smá fram á borðið.. en hresstist aðeins við eftir hádegi.. þar sem farið var eitthvað í tjáningu.. úff.. eins gott að morgundagurinn verði skárri...jahh og restin af námskeiðinu.. sem er út þessa viku og þá næstu *dæs* en læt mig nú hafa það þar sem ég hækka um tvo launaflokka við að sitja þetta námskeið og full laun....og hætti þar að auki einum og hálfum tíma fyrr en ella... Málið er bara að mér finnst drulluerfitt að sitja svona lengi og hlusta á einhverja fyrirlestra..er sko algjörlega komin úr æfingu við slíkt :Þ
Æji kannski maður leggi sig bara...svo maður lifi morgundaginn nú af
Múahahaha!!!!!
Mín rak augu í skilti...og las.. "craft of farts" *bigeyes*sjokkur* en eftir að skilaboðin skiluðu sér upp í kollinn þá fattaði ég að á skiltinu stóð.. craft of arts. Leit þó aftur á skiltið...svona til að vera viss *slááenni* ;)
smá copy paste
Þetta á víst að eiga við okkur stelpurnar...
Á þrítugsaldri= 29 ára.
Ævintýragjörn= Búin að sofa hjá öllum sem þú þekkir.
Í íþróttum= Hjólbeinótt með engin brjóst.
Venjuleg í útliti= Eins og hundur í framan.
Falleg= Lygari.
Tilfinnaleg örugg= Á lyfjum.
Brosmild= Á miklum lyfjum.
Femínisti= Feit.
Djammari= E-pillu- fíkill.
Skemmtileg= Pirrandi.
Róleg= Einhverf.
Gamaldags= Ekkert tott og engin rassmök.
Opin fyrir öllu= Örvæntingafull og of gömul.
Hress= Hávær og ofvirk.
Ástríðufull= Tottar besta vin þinn inni á klósetti strax og hún finnur á sér.
Les mikið= Þunglynd.
Rómantísk=Kynköld.
Barmfögur= Feit.
Stórgerð= SPIKfeit.
Langar í sálufélaga= Stalker. ;)
og svo örlítið um strákana...svo hér koma þeir......
Hlýr= Hýr.
Góður í rúminu= Heldur að hann sé góður í rúminu.
Vel vaxinn= Með lítið typpi.
Ljóshærður= Aflitaður og í flestum tilfellum með tribal tattoo.
Hress= Fáviti.
Vel vaxinn niður= Allir hinir líkamspartarnir lélegir.
hmmm skyldi þetta vera rétt? *hissasvipur*
Sunnudagur 2. maí
Pirringur...
Nú er sá tími sem ég er farin að þrá að komast í sumarfrí... farin að þrá að komast í sumarbústaðinn fyrir austan.. útilegur.... leti í Nauthólsvík.. og fleira í þeim dúr.
Það eina sem er skipulagt með sumarfríið er að ég ætla að kíkja í eins og eina viku til systur minnar á Blönduós. Fara í einhverjar útilegur (allavegana þessa árlegu) línuskautast...og bara njóta þess að vera til og vera með börnunum.. Bara verst að ég þarf að bíða í fokkings tvo mánuði þar til ég byrja í sumarfríi *grenj*
Annars er helgin bara búin að vera næs.. hef bara verið í rólegheitunum með krakkana og sl.. ekkert áhugavert gerst frekar en fyrri daginn.. Well nóg komið af röfli í bili..vonandi gerist eitthvað markvert á næstu dögum :Þ eða þá að ég fæ brainstorm... ekki veitir af ;)
Laugardagur 1. maí
skakki toppurinn....
spurning gærdagsins var... "vissir þú að toppurinn hjá þér er skakkur?" :Þ Karlmenn *dæs*
Fékk nú annars mikið hrós fyrir nýju pæjuklippinguna mína ;)
kegglingablogg :Þ
Jæja þá er árshátíðin búin og ég held að ég geti barasta sagt að hún hafi heppnast svakalega vel :) Allavegana heyrði ég ekki annað á fólki en að það væri mjög ánægt með hvernig kvöldið var :) Ég var í mínu ofur bleika dressi sem vakti mikla lukku :Þ en var nú svolítið svekkt að það voru nú frekar fáir sem voru í fötum skv. þemanu :/ Mér persónulega fannst maturinn fínn og held nú að flestum hafi fundist hið sama.
Þeir titlar sem voru í boði og voru "krýndir" voru..
Blaðurskjóða rásarinnar: Passionate
Besta outfit kk: Ulfur
Besta outfit kvk: layla
Misskildasti hösslari kk: Ulfur
Misskildasti hösslari kvk: layla :s (pfft...fannst ég sko ekki eiga það skilið..ÉG HÖSSLA EKKI!!!!)
Perri rásarinnar: Ulfur
Perrina rásarinnar: zhira
í keppninni um herra og ungfrú einkamál.is voru úrslitin eftirfarandi
1 sæti kk Oskarr
2 sæti kk perri_no1
3 sæti kk stertur
1 sæti kvk reebok
2 sæti kvk layla
3 sæti kvk Milla
Það fyndna er að hmm já ég fékk nú einhverja titla þarna og fékk í verðlaun.. t.d. bleikan mosaic spegil (sem ég by the way bjó til og gaf í verðlaun :Þ) tvær 1000 kr inneignir í símann minn (Óskar bróðir gaf mér svo sína inneign) tvo brúsa af sleypiefni, 1 skipti í brúnkuklefa, 4000 þús kr úttekt í laugarásvideó.. já held að þetta sé barasta upptalið :Þ
Var að vísu fremur léleg í djamminu og var komin heim rétt upp úr 2.. barasta nennti ekki meiru....enda ágætt barasta :)


