Miðvikudagur 30. júní

orð

orð eru meiðandi líkt og vopn
en í stað líkama
særist hin viðkvæma sál
Orðin
rífa og tæta, eyða og meiða
skemma meira en þig órar fyrir

Ég þori ekki að segja
þori ekki að svara
vil ekki skemma það litla sem er
þori ekki að vera, sjá eða gera
nokkuð sem viðkemur öðrum en mér

höf ók.

Sent af layla kl [23:03] Komment [1]

Rules For Bedroom Golf

1. Each player shall furnish his own equipment for play, normally one club and two balls.

2. Play on a course must be approved by the owner of the hole.

3. Unlike outdoor golf, the object is to get the club in the hole and keep the balls out of the hole.

4. For most effective play, the club should have a firm shaft. Course owners are permitted to check the shaft for firmness before play begins.

5. Course owners reserve the right to restrict the length of the club to avoid damage to the hole.

6. The object of the game is to take as many strokes as necessary until the course owner is satisfied that play is complete. Failure to do so may result in being denied permission to play on the course again.

7. It is considered bad form to begin playing the hole immediately upon arrival at the course. The experienced player will normally take time to admire the entire course with special attention to the well formed bunkers.

8. Players are cautioned not to mention other courses they have played or are currently playing to the owner of the course being played. Upset course owners have been known to damage a player's equipment for this reason.

9. Players are encouraged to have proper rain gear along, just in case.

10. Players should assure themselves that their match has been properly scheduled, particularly when a new course is being played for the first time. Previous players have been known to become irate if they discover someone else is playing what they consider to be a private course.

11. Players should not assume a course is in shape for play at all times. Some players may be embarrassed if they find the course is temporarily under repair. Players are advised to be extremely tactful in this situation. More advanced players will find alternate means of play when this is the case.

12. Players are advised to obtain the course owners permission before attempting to play the back nine.

13. Slow play is encouraged, however, players should be prepared to proceed at quicker pace, at least temporarily, at the course owner's request.

14. It is considered outstanding performance, time permitting, to play the same hole several times in one match.

15. The course owner will be the sole judge of who is the best player. *HINT- Players are advised to think twice before considering membership at a given course. Additional assessments may be levied by the owner and the rules are subject to change. For this reason, many players prefer to continue to play several different courses.

Sent af layla kl [00:20] Komment [0]

Þriðjudagur 29. júní

LOL allt er nú til.....

Fyrir þær sem eru alltaf í vandræðum með batteríslaust egg í ferðalaginu... ættu að skella sér á eitt stk af þessu

Sent af layla kl [23:16] Komment [0]

Sunnudagur 27. júní

vííí gaman gaman....

Jæja.. skellti mér í útileguna mína þrátt fyrir slæma veðurspá og að fólk hefði verið sí og æ að vara mann við því að gista í tjaldi.. Jahh í útileguna fór ég á föstudaginn með mitt lið...og verð bara að segja að við höfðum það þrælfínt bara alla helgina.. kvarta allavegana ekki yfir veðrinu þó svo það hafi verið hvasst á köflum.. Á þetta þrælfína hústjald sem hefur aldrei hleypt einum regndropa í gegn um "himininn" og blæs ekki í gegnum...svo var nottla plús að þurfa ekki að nota regngallann og stígvélin sem ég tók með mér :Þ

Jónsmessuhátíðin sem við fórum á er vanalega þokkalega fjölmenn eða 300-400 manns svona á þokkalegri hátíð.. en núna var fólk eitthvað hrætt við veðrið og vorum við eitthvað um 100 á hátíðinni.. rólegt, gott og allir ánægðir, og það er nú fyrir öllu. Fórum í listasmiðju, kökuveislu, grill, varðeld og brekkusöng og lékum okkur svo bara... Óskar bróðir og co mættu í grillið á laugardagskvölið og gistu yfir nótt.. veit nú ekki hvernig þeim leyst á þetta en mér sýndist allavegana Yngvi Freyr frændi minn skemmta sér vel.. Eitt er víst að börnin mín heimta að fara aftur í útilegu sem fyrst.

Vorum með smá útileguafmæli á laugardeginum fyrir prinsessuna sem varð 6 ára á föstudaginn (mamman nottla bakaði nokkrar sortir og tók með) og ekki skemmdi það að hún fékk heila 3 pakka í útilegunni :) mín sko í sæluvímu.. enda sagði hún að þetta væri allt það sem hana langaði svooo mikið í :) Enduðum svo í kökuveislu í sumarbústaðnum hjá ömmu og afa áður en við fórum af stað í bæinn... ekki amarlegt það að fá nokkrar veislur ;)

En allavegana brilliant og góð helgi :)

Sent af layla kl [23:42] Komment [0]

Föstudagur 25. júní

hún á afmæli í dag........

Í dag á "litla" dúllan mín afmæli....orðin svo mikið sem 6 ára sem er nú merkilegur aldur... Sérstaklega þar sem maður breytist þá úr leikskólabarni og gerist grunnskólanemandi ;) Mín snúlla er sko algjörlega tilbúin í þann pakka og er eiginlega búin að vera það síðasta árið þar sem hún er nú frekar fullorðinsleg skottan.

Annars erum við búin að pakka útilegudótinu í bílinn og erum tilbúin að bruna í sveitina eftir vinnu í dag.... Og auðvitað er ég búin að baka afmæliskökur og tertur til að taka með... verður sko útileguafmæli.. ætlum svo að baka pizzu á grillinu og hafa það næs.. þrátt fyrir það að spáin sé nú fremur leiðinleg...iss erum vel búin, svo mikið er víst..

En jæja ég óska ykkur gleðilegrar og ánægjulegrar helgar.... :)

ta ta

Sent af layla kl [01:10] Komment [3]

Miðvikudagur 23. júní

sweet sixteen

Hún "litla" frænka mín á afmæli í dag.. orðin 16 ára gella.. Finnst það ekki mikið lengra en í gær að ég var að passa hana pínulitla þarna í sveitinni... hryllilega er ég að verða gömul :/ lenti meira að segja í því í dag að ein sem vinnur með mér lagði sig alla fram við að laumast til að horfa ofan á kollin á mér þar sem ég sat úti í sólinni, til að sjá hvort ég væri í raun farin að fá grá hár hér og þar :Þ *dæs* Ótrúlegt hvað tíminn flýgur :s

Annars er bara lítið að gerast.. ég nenni fáu en geri slatta.. the same old shit.

ta ta

Sent af layla kl [22:07] Komment [0]

Mánudagur 21. júní

Virðburðarlítil helgi...en ljúf :)

Búin að vera ljúf helgi.. átti að fara í tiltektir (sem varð fremur lítið um) en fór þess í stað í allt annað.

Börnin mín hafa varla sést inni við nema þegar þau eru svöng og svo þegar ég dreg þau inn til að þrífa, fæða og setja í svefn..... svo gaman hefur verið hjá þeim. Var voða dugleg að æfa Anítu á línuskautunum báða dagana, einnig hefur Aron verið duglegur að æfa sig bæði á línuskautunum og hjólabrettinu (samt viljað bara fara inn ef hann dettur :Þ). Enginn smá árangur sem hefur komið í ljós eftir helgina hjá þeim báðum, Áróra þýtur um eins og hún hafi ekki gert neitt annað frá fæðingu...ekkert smá gaman að fylgjast með henni :) .. ætli þau verði ekki komin á fullt í nýju hjólabretta og línuskauta pallana hér í efra Breiðholti.. ekkert smá flott framtak að koma þessu upp, enda alltaf fullt af krökkum þar á fullri ferð. :)

Kíkti á spilakvöld til Beggu, skemmti mér bara ágætlega.. spiluðum Actionary, spjölluðum og snæddum þessar dýrindis veitingar sem Begga hafði galdrað fram, þar á meðal var ostar, vínber, kex, salat, heitur réttur og fl.. úff hvað mín varð södd....enda ekkert smá gott :Þ

Æfði mig að tjalda hústjaldinu í fyrsta skiptið :Þ hehe síðustu 8 árin sem ég hef átt þetta tjald, þá hef ég alltaf horft á þegar því hefur verið tjaldað... en nú neyddist mín til að læra þetta þar sem ég er að fara í fyrstu útileguna ein með börnin... úff nú reynir á mína þar sem ég hef aldrei þurft að raða í bílinn, tjalda né taka tjaldið saman :Þ hehe verður eflaust bara gaman.. samt svolítið stressuð á að gleyma einhverju og þessvegna er mín sko byrjuð að gera to do lista.. :Þ vinn hægt og rólega að honum út vikuna...

en jæja... nóg af röfli í bili...

ta ta

Sent af layla kl [00:41] Komment [2]

Laugardagur 19. júní

Tékklistinn

Það sem ég þarf að finna til og tékka á fyrir útileguna er...

-Hústjaldið...spurning um að læra að tjalda því áður en farið verður.. hef bara horft á hingað til þegar því hefur verið tjaldað :Þ (og pakkað saman)

-primusinn,hitarann,luktina... einhvernveginn verður maður að geta eldað, hlýjað sér og lýst upp tilveruna

-gasgrillin.. jebb... maður verður nú að geta grillað.. og já..

-gaskútana jahh grillin, primusinn, hitarinn og luktin virka víst lítið án gassins.. :Þ

-vindsængur... no way að ég sofi á harðri mishæðóttri jörðinni

-svefnpoka, kodda, teppi... ég er kuldaskræfa þegar ég sef í tjaldi... þarf fullt af drasli til að hlýja mér..

-ferða borðin og bekkina... ekki sitjum við í grasinu all the time

-gólfdúk í fortjaldið.. leiðinlegt þegar svefnplássin verða full af grasi og ógeði

-kæliboxið og kælieiningarnar... já einhverveginn verður maður að reyna að halda matnum köldum

-vatnskæliboxið... já vatn er gott.

hmm ætli ég sé að gleyma einhverju??? :|

jahh svo ef ég þekki mig rétt þá verða nottla kuldagallar, regngallar, og öll hlífðarföt á börnin með í för.. klikka sko ekki á því...

*dæs* vika í útileguna og ég farin á fullt að skipuleggja og næstum því komin með innkaupalistann á hreint :Þ


Sent af layla kl [17:36] Komment [0]

nú er sumar gleðjist........

Já nú styttist aldeilis í upphaf sumarfrísins míns... ohh hvað ég hlakka til... Vananlega hef ég bara haldið mig heima og haft það rólegt. En núna er planið að fara fyrstu viku sumarfrísins í sumarbústað og hafa það bara næs þar, svo verður einhver afslöppun,,, kannski í viku og svo ferð norður til systu.. er búin að lofa því að kíkja í einhverja daga þangað þar sem ég hef nú ekki verið sú duglegasta að kíkja norður :Þ Já en hvað um það... Ég get varla beðið :)

En núna er planið að taka eitthvað til um helgina og njóta svo lífsins með börnunum... ætla að halda mig í bænum þessa helgina..hef ekki efni á öðru. En næstu helgi verður sko farið í útilegu :) víííí og er sko beðið eftir því með eftirvæntingu.. ætlum við að kíkja á hina árlegu Jónsmessuhátíð trésmíðafélagsins sem er haldin á Stóra Hofi í Gnúpverjahrepp. Hefur verið mikið gaman þar síðustu árin og verður það eflaust líka núna :)

en jæja.. var víst búin að lofa sjálfri mér því að vera dugleg í dag, taka til og finna til útilegubúnaðinn svo hægt sé að fara yfir hann...

tata

Sent af layla kl [11:42] Komment [0]

Fimmtudagur 17. júní

já þannig er það........

Búin að eiga þetta þokkalega kvöld...svona að mestu bara ein og yfirgefin þar sem börnin voru úti að leika sér...stukku inn til að borða...aftur út...og svo inn í háttinn... búin að vera að dútla mér við að vinna í mosaicspegli sem er í pöntun hjá mér.. og bara átt rólega og notalega stund við þá iðju.. Datt svo í það að horfa á einhverja sannsögulega mynd á stöð 2 um mæðgur sem fengu báðar krabbamein... og baráttu þeirra... og ó bojj var farin að halda að Gullfoss væri mættur í stofuna til mín þar sem tárin bara láku stjórnlaust niður án þess að ég fengi nokkru ráðið.. hormónarnir eða eitthvað rugl að trufla mig þar. Annars var þó nokkuð fróðlegt að horfa á þessa mynd þar sem mamma mín var einmitt í sömu sporum og móðirin í myndinni, fyrir ári síðan. Hún var þá einmitt að greinast með brjóstakrabbamein, lagðist undir hnífinn og fór svo í lyfja og geislameðferðir... sem betur fer fekk hún bót meina sinna.. allavegana hefur ekkert komið annað í ljós :)

Jæja óska ykkur gleðilegs og ánægjulegs 17. júní, sem er eins og allir vita þjóðhátíðardagur okkar íslendinga... og já lýðveldi íslands á 60. ára afmæli ;) sko þetta vissi ég :Þ

have fun ..

Sent af layla kl [00:15] Komment [1]

Miðvikudagur 16. júní

LOL

Sá þetta test hjá sase og ákvað að prófa... hehehe og já.. hér er útkoman.. *hláturskast* líkist mér svakalega *NOT* :Þ

Composer
You are Barbalala! Music goes right to your heart.
You have a talent with your fingers and/or
mouth.


Which Barbapapa Personality Are You?
brought to you by Quizilla

Sent af layla kl [20:57] Komment [3]

Þriðjudagur 15. júní

linuskautar.is :)

Já nú hefur verið ákveðið að ég og krakkarnir kíkjum á línuskautanámskeið ,svona til að öðlast meiri kunnáttu á skautunum sem okkur finnst svo gaman að leika okkur á.. Annars er spurning hvort eldri dóttlan þurfi eitthvað á þessu námskeiði að halda... hún þýtur um hverfið á línuskautunum sínum og gerir mömmu sína skíthrædda. Fór að leita að henni í kvöld eftir að hún hafði verið úti í rúma þrjá tíma á skautunum... Barnið sem fór í aðgerð á báðum fótum fyrr á árinu og kvartar enn yfir verkjum í fótunum.... en nei.. þeim gleymir hún oftast á línuskautunum ... því það er svo gaman á þeim :Þ hehe.. æji hún er óttalegt krútt þessi rófa og með ótrúlegt úthald.. Og sagði svo þegar hún kom inn.. "mamma ef það verður gott veður á laugardaginn þá verðum við að fara í langa línuskautaferð" *stórtbros* ég gat náttúrulega ekki sagt nei við þessu :) enda holl og góð hreyfing... en jæja.. ætla að setja met og fara að sofa fyrir miðnætti ..svona einu sinni á þessu ári..

ta ta

Sent af layla kl [23:52] Komment [2]

Sunnudagur 13. júní

sveitin mín :)

Átti hreint út sagt frábæra helgi í sveitinni :) Eftir vinnu á föstudag..burruðum ég og krakkarnir austur fyrir fjall í sumarbústaðinn hjá mömmu og pabba. Þar voru fyrir mamma, pabbi og Yngvi Freyr frændi okkar. Komum við í þessu brilliant veðri svo það var notið þess að vera úti fram eftir kvöldi... Var að vinna að glermosaicmynd á stein í garðinum, svosem ekkert merkilega.. en gleymdi mér hreint alveg.. Þegar fóru að koma dropar af himni á laugardeginum þá var bara breytt yfir mig plast og búið til hálfgert vinnutjald :Þ myndin er allavegana að nálgast það að vera hálfnuð... kláraði hana ekki vegna veðursins á sunnudeginum sem var rigning og svolítið rok :) ekkert svosem að því veðri til að vera úti að leika sér í en verra að vera að vinna að svona dútli í rokinu ;) En já helgin var frábær, fengum þetta fína hvítlauksmarineraða og grillaða læri með grilluðu grænmeti, ostasósu og fleiru og lékum okkur eins og við gátum.. Óskar bróðir kom svo á laugardeginum og sátum við með mömmu og pabba á spjalli fram eftir nóttu og já við Óskar töldum að við hefðum sett fjölskyldumet í blaðri.. margt yndislegt sem kom þar upp og annað miður skemmtilegt... en þannig er lífið ekki satt?

jæja nóg um það... ltr ;)

Sent af layla kl [23:27] Komment [3]

Föstudagur 11. júní

farin í sveitasæluna :)

Jæja... ætla að skella mér í sveitasæluna með börnin.. svo ég óska ykkur góðrar helgar og hafið það sem allra best :)

Sent af layla kl [17:38] Komment [0]

Miðvikudagur 9. júní

draumur draumanna....

Eins og þeir sem þekkja mig vita, þá á ég þrjú yndisleg börn :) Ég og krakkarnir höfum í þó nokkurn tíma verið að safna okkur aur til að komast til Danmerkur næsta sumar. Gefum okkur góðan tíma til að safna og gengur ágætlega. Stóri grísabaukurinn sem börnin eiga er orðinn troðfullur af nammipening, pening frá tannálfinum, aurum sem þau hafa fundið og aurum sem þeim hefur verið gefið eða þau unnið sér inn fyrir. Einnig höfum við verið að safna gosflöskum og dósum og þegar við komum okkur í það að fara með alla pokana í endurvinnsluna þá fáum við nokkra þúsara í safnið. Svona til að auka innkomuna í ferðasjóðinn þá hef ég ákveðið að búa til slatta af auðseljanlegum hlutum, líkt og ég hef oft gert, meiningin er að fara svo og selja í haust þegar ég er komin með einhvern lager. Æji kannski draumórar en hey.. maður verður að eiga drauma til að geta yljað sér við og þetta er stóri draumur barnanna minna.. að við förum saman til Danmerkur og förum í Legoland :) Og ég ætla að reyna að gera allt sem ég get til að gera þann draum að veruleika, þó svo ég sé flughræddasta manneskja sögunnar :)

Annars langar mig að óska honum Yngva Frey frænda mínum til hamingju með 6 ára afmælið :) og auðvitað fær hann góðar kveðjur frá frændsystkinum sínum :)

Sent af layla kl [23:06] Komment [1]

Þriðjudagur 8. júní

hugleiðingar

Ég er ekki hin "fullkomna" persóna. Held reyndar að hin "fullkomna" persóna sé barasta ekki til.. Jahh öllu heldur held ég því fram. Við höfum öll okkar galla og veikleika.....í mismiklu mæli. Ég ætlast ekki til þess að það fólk sem ég umgengst sé gallalaust.. alls ekki.. Og ég er nú manneskja sem lætur allt of margt fara í taugarnar á mér. Get pirrað mig á ótrúlegustu smáatriðum...en reyni nú að láta ekki á því bera.. Finnst betra að halda friðinn. Auðvitað kemur það fyrir að ég spring ef eitthvað fer virkilega í taugarnar á mér.. jú sei sei.. en það er ótrúlega sjaldan. Eitt af því fáa sem virkilega getur fengið mig til að pirrast mikið og missa mig... er þegar fólk beinir einhverju mjög svo neikvæðu að fjölskyldu minni. Það þarf ekki að vera meira en lásí "mamma þín er svo ljót brandari" til að ég pirrist virkilega.

Mínir helstu gallar eru líklega.. Þrjóska, fullkomnunarárátta, stórt skap, viðkvæmni, feimni,

Ég er ein af þeim sem fer oftast í gegnum dagana brosandi og síkát (jahh allavegana svona út á við).. ef ég er ekki með bros á vör, þá er því tekið sem sjálfsögðum hlut að ég sé í vondu skapi.

Ég skal viðurkenna það að það er í raun aðeins ein persóna sem mér hefur lent mjög saman við og þá oftar en einu sinni.. og það er hann Óskar bróðir minn. Held að aðalástæðan fyrir því sé að við erum bæði svo ofur skapstór, þrjósk og stöndum fast á okkar.

Samband okkar sem systkina hefur rokkað frá því að vera kunningsskapur, óvinátta, vinátta, og jahh name it.. en oftast hefur okkur nú tekist að komast yfir þau missætti og séð að auðvitað vorum við bæði sek að því sem uppá kom.. það er nefnilega þekkt að það er aldrei einn ef tveir deila.. Sökin er sjaldnast bara á annari persónunni.

Í dag erum við hinir ágætustu vinir.. enda finnst mér hann bróðir minn hafa tekist vel að gera jákvæðar breytingar á sér... Ég virði hann fyrir það hvað hann er að gera í sínum málum og tel að margir mættu gera hið sama. En jæja til að enda þessa langloku sem kannski er óskiljanleg.. þá langar mig til að segja. Óskar, þú ert að standa þig vel og átt heiður skilið fyrir það að vera að vinna virkilega í þínum málum. :) Hvert skref sem við tökum, markar sín spor..

Spurning hvort ég ætti ekki að fara að skoða sjálfa mig betur.. hvað ég gæti betrum bætt og hvað er ok.. Við höfum öll svo gott af smá sjálfsskoðun.. skoða kosti okkar og galla... Hver er þinn stóri galli?

Sent af layla kl [23:32] Komment [1]

Mánudagur 7. júní

artý fartý.... jahh eða þannig :Þ

Ohh mín búin að vera að surfa um netið og skoða glerlistasíður... aðallega þó mosaic, sem ég hef mikið gaman af að búa til. Ekkert smá mikið að brjótast um í kollinum á minni núna...enda langar mig að gera svoooooo margt *dæs* Er sko búin að lofa sjálfri mér því að ég skuli vera dugleg í tilrauna vinnu í sumar.. enda ætlar mín að safna sér upp smá lager af smáhlutum til gjafa...jahh ef að það tekst.... er víst alltaf keypt af mér allt jafn óðum.. Verð greinilega að skella í fluggírinn.. var að klára kertaglas, myndaramma og var að byrja á myndaramma auk þess að ég er að byrja á tveimur stórum speglum sem eru í pönntun hjá mér... eins gott að fara að minnka að hanga á netinu og fara að vinna.. enda er þetta ótrúlega róandi og þægilegt hobbý..

en svona til gamans þá skelli ég inn link á síðu sem ég prófaði að útbúa (á eftir að finna betri síðu) en því miður eru fáar myndir...en ég á eftir að skella inn fleirum myndum fljótlega :) ...

Sent af layla kl [00:06] Komment [5]

Laugardagur 5. júní

Gullkorn..

Vorum saman mæðgurnar í stofunni með kveikt á sjónvarpinu.. Á skjánum birtist Jónsi the one and only.

Aníta: Mamma!! Jónsi!! Sjáðu mamma Jónsi er í sjónvarpinu!! (aðdáun)
Ég: Já.. Jónsi Í svörtum fötum..
Aníta: Nei...hann er sko líka í hvítum fötum..sko bolurinn er hvítur...

Hehe.. sú stutta fattaði eftir smá tíma að þarna hefði hún ruglast pínu...auðvitað héti hljómsveitin hans Jónsa Í svörtum fötum... glottir og segir... ahh já Jónsi í svörtum götum (aulahúmor frá pabba hennar) svona til að reyna að breiða yfir yfirsjón sína ;)

Sent af layla kl [18:43] Komment [2]

húúúún fór í veiðiferð í gær...hún Sóla skrítna...

Já...eitt af því sem mér hefur alltaf fundist ótrúlega skemmtilegt er að fara að veiða með krökkunum... í gærkvöldi var haldið upp að Reynisvatni með veiðgræjur og allskyns beitur (já..flest var reynt).. Búið að vera sól allan daginn...en nei.. auðvitað þurfti að draga ský fyrir sólu akkúrat þegar við fórum að veiða. Að vísu sagði veiðivörðurinn að fiskarnir væru hálf dasaðir eftir hitann og sólina fyrr um daginn þannig að þeir væru ekkert voðalega viljugir að bíta á.. En jæja við ákváðum að reyna þó. Stóðum tímunum saman en veiddum ekkert... rétt nartað í en engum kippt upp á land. Ef ég hefði keypt háfinn sem ég var að spá í að kaupa mér á leiðinni í ferðina.. þá hefðum við mokveitt.. því fiskarnir syntu bara við bakkann og sýndu sko beitunni enga athygli.. sumir náðu að grípa fisk með berum höndum....aðrir náðu þeim bara í háf...og örfáir veiddu þá á stöng :Þ

Héldum áfram fram eftir kvöldi þar til þrjóskupúkinn ég vældi yfir því að mér væri orðið svo kalt að ég vildi fara heim.... en nei..krakkarnir voru sko ekki sáttir við mömmu sína þá..enda vel klædd og höfðu sko ekki yfir neinu að kvarta nema þá kannski því að hafa ekki veitt neinn fisk... svo það þurfti að lofa þeim því (alveg snúið upp á höndina á mér) að farið skyldi aftur í sumar...og eytt heilum degi við vatnið að veiða.... thíhí...svona pikknikk..mín sko alveg til í það ;)

Sent af layla kl [11:31] Komment [1]

Miðvikudagur 2. júní

wrarrrr..

Jæja mín sko búin að flikka aðeins upp á útlitið í dag.. jahh fyrir utan að hafa skrúbbað mestu óhreinindin af mér í baði.. þá nottla var svona alsherjar snyrting í gangi ;) úff... sko stundum er barasta á við full time job að vera kvenmaður :| það þarf að raka, plokka, lita, blása, slétta, nota skrúbb, rakakrem, hrukkukrem og svo framvegis og svo framvegis.. er komin á þá skoðun að ég verði bara kvenmður í hluta starfi.. en karlmaður að aðalstarfi.. þ.e. bara kvenmaður um helgar og þegar ég nenni að flikka upp á útlitið :Þ Ætli það gangi? thíhí Svo er maður hissa á að karlmenn taki stóran sviga framhjá manni þegar maður mæti þeim :Þ

Anyway þá er ég þokkalega kvenleg í dag....en spurning hvað verður á næstunni :Þ

Sent af layla kl [20:15] Komment [4]

Í fréttum var þetta ekki helst...

Kíkti með eldri krúsluna mína á læknavaktina í kvöld, á að halda henni heima næstu daga til að ná þessum óþverra hósta úr henni, mikið verður leikskólastjórinn glaður er hann heyrir þetta *NOT*. En við ætlum bara að njóta þess að vera saman og finna okkur eitthvað að dútla okkur með.. Föndra og leika okkur. Kannski maður nái einnig að plata hana í smá tiltekt með mér :Þ virkja barnið svolítið.. En jæja.. er komin í algjört letistuð eftir að hafa legið og glápt á Love actually..... ágætis afþreying...en *geysp* nú langar mig að skríða undir sæng og sofna....

ta ta ;)

Sent af layla kl [01:23] Komment [2]