Fimmtudagur 29. júlí

hitt og þetta.....en þó aðallega hitt

jæja það varð víst ekkert af Þórsmerkurferðinni... er nú í hálft í hvoru fegin þar sem ég er að fara norður á föstudaginn og hefði það verið heldur mikið flakk. Annars nálgast mánaðarmót og skattmann er að útdeila og hirða það sem hann ákveður.. var að kíkja á hvað ég fæ í minn hlut og sá að þeir lækkuðu mína summu um 100.000 krónur og hana nú... fékk reyndar bréf þess efnis í dag að breytingar hefðu verið gerðar.. en wó.. heldur mikið samt. Er þó sátt við það sem ég fæ..á meðan ég þarf ekki að borga til baka. Það sem pirrar mig eiginleg miklu meira en lækkunin á því sem ég fæ frá skattmann.. er það að þvottavélin mín er biluð og þurrkarinn!!!!!!!!!!!!!!! er að vísu búin að vera að bíða eftir varahlut í þurrkarann í þónokkurn tíma en það er ömurlegt að vera þvottarvéla laus... líður aldrei dagur hér án þess að ég þvoi... en jæja.. shit happens :/

Annars er nú fremur lítið að gerast hjá mér... er að vinna áfram í afmælisgjöfinni hans pabba...og jahh gengur hægt vegna leti.. Jú er búin að kaupa þessa fínu skólatösku fyrir litlu skóladömuna mína sem byrjar í 1. bekk í haust.. engin smá hamingja með það.. enda nottla bara það besta keypt... Finnst að vísu svakalegt verðið á svona töskum.. keypti nú þessa á 20% afslætti en kostaði hún samt vel yfir 6 þús. krónurnar.. Verslaði svo eitthvað af skólafötum á krakkana (nýtti útsölurnar) en á nú samt slatta eftir... þar á meðal, skó, úlpur og fleira í þeim dúr og svo nottla allt skóladótið fyrir þau öll og pennaveski fyrir dömuna... ágætis summa sem fer í það um mánaðarmótin.. en illu er bestu af lokið.

en jæja skelli kannski einhverju smáræði inn áður en ég fer norður... hafið það sem allra best... ;)

Sent af layla kl [00:50] Komment [0]

Þriðjudagur 27. júlí

jæja... þá er bloggið komið í gang aftur. :)

Já ekki nóg með að ég sé búin að vera í sumarfríi.. heldur tók bloggið mitt sig til og fór líka í sumarfrí :P ágætt..því allir þurfa á smá sumarfríi að halda ;)

Annars er fríið bara búið að vera fínt.. byrjaði á viku í bústað.. svo vinna í tvær vikur fyrir pabba gamla... átti að fara í afmæli hjá mágkonu minni í Þórsmörk á morgun... en því var því miður frestað vegna veikinda afmælisbarnsins... Svo er stefnan að skella sér norður í einhverja daga....og enda aðra helgina í ágúst á fjölskylduhátíð austur í bústað hjá mömmu og pabba... Semsagt þokkalegt að gera... en því miður styttist i annan endan á fríinu mínu... nenni bara ómögulega að fara að vinna aftur *dæs* en jú eitthvað verður maður að gera... ekki koma peningarnir sjálfkrafa til mín :P

En jæja... stóra spurningin er.. ætlið þið að fara eitthvað um verslunarmannahelgina?.. og ef svo er.. hvert? ;)

Sent af layla kl [19:34] Komment [4]

Þriðjudagur 13. júlí

ohh þetta yndislega letilíf... :D

Jæja var að koma heim úr viku sumarbústaðardvöl, stefnum á að fara aftur um helgina. Búin að njóta þess að vera í sveitasælunni og dunda okkur. Er að spá í að gerast atvinnu letihaugur og vera í eylífu sumarfríi... sound nice :Þ en jæja.. er víst búin að taka að mér vinnu næstu daga fyrir pabba gamla svo það er eins gott að bíða með frekari leti fram yfir þann tíma.. *geysp*

kveðja frá letidýrinu zzzzz

Sent af layla kl [19:59] Komment [1]

Sunnudagur 4. júlí

ég dett á bossann....á línuskautum...

*Hóst* já fór með krakkana út á hjólabretta og línuskautapallana í dag.. var nú ekkert ákveðin í því að ég myndi nú stíga á blessaða skautana, en jú lét mig hafa það. Óskar og co kíktu einnig. Held að flestir hafi skemmt sér vel. Allavegana vilja mín fara fljótlega aftur *dæs* :Þ hehe jú ég er nottla svo mikill snilli á línuskautum *NOT* að ég náði að renna og beint á rassinn jahh eða ölluheldur skall ég með bakið og höfuðið niður.. og þarna sýndi sig að það er nú gott að vera lúðalegur með hlífar og hjálm ;)

en jæja svo mikið hafði ég að segja

ta ta

Sent af layla kl [21:43] Komment [0]

Laugardagur 3. júlí

Mig langar að byðja ykkur..

sem þetta lesið að styrkja MND félagið. Félagið er um þessar mundir að selja lyklakippur til styrktar félaginu. Fyrir þá sem ekki vita þá er MND sjúkdómurinn sem dró Rabba tónlistamann til dauða núna í vikunni. Ég verslaði mér eitt stk. svona lyklakippu þar sem amma mín lést úr þessum sjúkdóm þegar ég var lítil og einnig lést frændi min úr þessum sjúkdóm. Talað er um að þrjár fjölskyldur á landinu séu með þennan sjúkdóm ættgengan og hefur mér skilist að móður fjölskylda mín sé önnur þeirra.. Annars er þessi sjúkdómur svakalega erfiður og dregur fólk oftast frekar fljótt til dauða. Rabbi er sá sem hefur lifað lang lengst með þennan sjúkdóm, er ekki alveg viss hve lengi en minnir að það hafi verið í kringum 15 árin.


Ef þið sjáið ykkur fært að styrkja félagið þá væri það frábært.

Annars er lítið að frétta héðan. Var að skríða inn eftir að hafa farið með Áróru og Heiðrúnu vinkonu hennar út á hjólabretta og línuskautasvæði hérna nálægt þar sem eru allskyns pallar og þrautir til að leika sér á. Kom mér virkilega á óvart hvað þær voru kaldar og klárar í þessu stelpurnar svona miðað við það að þarna var fullt af klárum stráktöffurum að sýna listir sínar. Var ákveðið að kíkja aftur þangað á morgun ef það myndi ekki rigna og þá ætlar sko hann Aron að fara líka og prófa.. hann sem varla snertir skautana sína nema ég píni hann til þess :Þ en jú hann er akkúrat núna að æfa sig fyrir morgundaginn guttinn svo ég kalla hann nú bara góðan.. en jæja kveð að sinni

ta ta

Sent af layla kl [20:40] Komment [0]

Fimmtudagur 1. júlí

Á morgun....

Er stór dagur í lífi lítillar skvísu. Á morgun er síðasti dagur yngsta barnsins míns sem leikskólabarn, og brátt verður hún grunnskólanemi. Ég hef verið með börn á deildinni sem hún er á í u.þ.b. 7 ár. Því að daginn eftir að eldri krakkarnir mínir hættu á deildinni, fluttist yngsta barnið af yngri deildinni yfir á þessa deild. Sýnist á öllu að þessar breytingar séu meira sjokk fyrir mömmuna fremur en stelpuskottið. Hún er reiðubúin að kveðja leikskóla lífið og gerast stór skólastelpa. En ég verð örlítið döpur ef svo má segja... finnst litla barnið mitt vera orðið svo fullorðið :| Fórum í smá verslunarleiðangur í dag til að kaupa eitthvað smotterí til að færa fóstrunum sem hafa passað gullmolana mína síðustu árin. Enduðum í Blómavali þar sem dóttlan var ákveðin á því hvað þær ættu að fá... bleikar rósir skyldi það vera.. já því að eins og þær segja fóstrurnar á deildinni hennar þá er hún svo bleik skvísan :Þ var voða stolt þegar við gengum út með stórar fallegar rósir innpakkaðar í sellofan með bleika borða og kerti með hverri rós.

Var líka ósköp sætt sem dóttlan sagði þegar ég sagði að ég þyrfti fjórar rósir. Nei sagði mín, þær verða að vera fimm, því að ég verð að gefa þóru sem er á litlu deildinni líka því hún á eftir að sakna mín svo mikið.... ekki hægt að segja annað en að sú stutta hafi hjartað á réttum stað... enda með endæmum vel heppnað og fallegt barn.

En jæja já eftir morgundaginn er ég komin í sumarfrí vííííííííí og er stefnan tekin á það að fara í sumarbústað í viku... ætlum að njóta þess að vera í sveitasælunni... bara ég og krakkarnir... munum eflaust njóta okkar vel..enda mikil tilhlökkun í gangi :)

Sent af layla kl [23:07] Komment [0]