Þriðjudagur 31. ágúst

hmmms

Ég er svolítið að berjast við ýmsar tilfinningar og hugsanir þessa dagana..

t.d pirrar það mig all svakalega að aðgerðin sem dóttir mín fór í og var í gipsi upp að hnjám á báðum fótum í 6 vikur á eftir, hafði ekki tilætlaðan árangur, vegna þess að læknirinn mis mat styttinguna rétt fyrir aðgerð.. þ.e. lengdi hásinina ekki nægilega.. þannig að líklega þýðir það aðra hásinalengingu síðar, einnig kom í ljós að lengja þarf einhverjar sinar undir ilinni og þýðir það þá aðra aðgerð því ekki er framkvæmt bæði í einu.

Ég er kvíðin því að fara í skólann, er svolítið að berjast við þá hræðslu að standa mig ekki nægilega vel. Ég er nefnilega með fullkomunaráráttu á allt sem ég framkvæmi í höndunum og á öll verkefni sem ég vinn.. úff.. *svitn*

Ég er einnig svolítið kvíðin því að yngri dóttlan mín lendi í aðkasti í skólanum, vegna þess hve há hún er... já hún fékk víst hæðina í arf frá móður sinni :s *dæs* En á móti kemur að hún er nú ósköp sætt og glaðlynt stelpuskott, sem nær alltaf að heilla fólk í kringum sig :)

Ég pirra mig á vinnunni (sem ég er orðin þreytt á) og sumum samstarfskonum mínum (sem ég fitta engan veginn við).. Þó mest á yfirmanneskju minni sem mismunar starfsmönnum eftir því hver sleikir hana mest upp og hverja henni líkar best við.. hmm held að ég sé í hvorugum hópnum *hóst*

Æji gæti eflaust talið fleira til en ætla mér ekki að gera það.. :P þá þyfti ég að pirra mig á því að hafa misst þessa fáu dyggu lesendur sem ég hef ennþá :P

Sent af layla kl [19:44] Komment [1]

Sunnudagur 29. ágúst

Súkkulaðireglur (örugglega margir búnir að sjá þetta... en bara varð að skella þessu inn)

1) Ef þú ert með bráðnað súkkulaði á öllum fingrum þá ertu að borða það of hægt

2) Súkkulaðihúðaðar rúsínur, kirsuber og jarðaber telst allt til ávaxta þannig að þú getur borðað eins mikið af því og þú vilt.

3) Þegar þú kaupir þér súkkulaði í verslun í góðu veðri getur það mögulega bráðnað meðan keyrt er. Þú verður að borða það á bílastæðinu

4) Borðaðu súkkulaði fyrir hverja máltíð. Þannig minnkar matarlystin og þú borðar minna ;)

5) Meðalstór skammtur af súkkulaði sér þér fyrir kaloríuskammti fyrir allan daginn. En hentugt :D

6) Ef þú getur ekki borðað allt súkkulaðið sem þú átt þá geymist það vel í frystinum. En hvað er eiginlega að þér þegar þú getur ekki borðað allt súkkulaðið sem þú átt???

7) Ef þú ert smeyk/ur við kaloríurnar settu þá súkkulaðið ofan á ísskápinn. Kaloríurnar eru lofthræddar og hoppa úr súkkulaðinu til að forða sér.

8) Ef þú borðar jafn mikið af hvítu og dökku súkkulaði þá jafnast það út og þú fitnar ekki.

9) Það er mikið af rotvarnarefnum í súkkulaði en rotvarnarefni láta þig líta unglega út lengur ;)

10) Af hverju eru ekki til nein samtök fyrir fólk sem vill hætta að borða súkkulaði? Tjahh... það vill enginn hætta!!!

11) Ef súkkulaði væri ekki til þá væru ekki til neinar aðhaldssokkabuxur. Við getum ekki hætt að borða súkkulaði, því þá eyðileggjum við heilan fataiðnað! :P

12) Settu "Borða súkkulaði" efst á listann yfir hluti sem þú þarft að gera yfir daginn. Þannig kemur þú altént einum hlut í verk..


*tíst* og hver segir svo að súkkulaði sé slæmt fyrir mann? :P

Sent af layla kl [12:05] Komment [2]

Föstudagur 27. ágúst

Jæja.....

Þá er fyrsta skólavika skottunnar minnar búin :) Hún virðist voða sátt og ánægð, enda með bestu vinkonu sinni í bekk :D Hefur eignast eina góða vinkonu sem er sessunautur hennar... svo þetta er nú bara allt að koma :)

En já styttist í skólann og maður búinn að plana frekara nám og sollis... nóg að gera.... en bara verst að þetta er asskoti dýrt þegar saman er komið á ekki lengri tíma en þetta :s

En já helgin að renna upp og ekkert planað frekar en fyrri helgar... enda mikil blankheit í gangi hér :s

Sent af layla kl [22:33] Komment [0]

Mánudagur 23. ágúst

í skólanum...í skólanum....

Jæja þá eru börnin að byrja í skólanum og allir voða ánægðir með það. Að vísu finnst mér skelfilegt að "litla" barnið mitt sé að fara í grunnskóla :s en æji hún er svo ánægð og glöð með þetta allt saman þessi elska. Fórum og hittum umsjónarkennarann hennar í dag :) og leyst okkur þræl vel á hana (var búið að heyra mjög gott af henni sem kennara). Auðvitað mætti mín með bleiku skólatöskuna sína á bakinu og með bros út fyrir eyru... svo sæt og fín :)

Og hér sit ég.. búin að plasta 18 A4 stílabækur og komin með nóg af því.. allt skóladótið tilbúið og komið í töskur... nú er bara að koma sér í það að smyrja nestið, þar sem matsalurinn byrjar ekki fyrr en eftir hálfan mánuð. :/

Sent af layla kl [22:42] Komment [0]

Laugardagur 21. ágúst

*ræskj*

Þar sem það ávallt verið að spyrja mig nokkurra spurninga t.d. "hvað í andskotanum þykist þú vera?" "hver í andskotanum ert þú?" "Hvað í andskotanum ert þú að gera hér?" "hvað í andskotanum vilt þú?" og svo frmv.. þá ákvað ég að svara því svona lauslega :P

"hvað í andskotanum þykist þú vera?"

Stundum þykist ég vera Kat woman eða eitthvað álíka.... en sko í raun... kemst ég ekki í búninginn :P

"hver í andskotanum ert þú?"

Ég? Sko.... ég er nú bara Sóla... mjög svo venjuleg og ómerkileg.. 29 ára.. þriggja barna móðir.. leiðbeinandi á leikskóla.... jahh eitthvað fleira?

"Hvað í andskotanum ert þú að gera hér?"

Ég réði engu um veru mína hér.. mamma og pabbi höfðu smá gaman... og úr til varð ég... þeim og öðrum til mikils ama :P

"hvað í andskotanum vilt þú?"

Hmmm það sem ég vil... úff ég vil svo margt... En aðallega vil ég börnunum mínum það allra besta.. jú og nottla foreldrum mínum og öðrum aðstandendum líka.. En fyrir utan allt annað þá myndi ég alveg vilja eins og eina ráðskonu til að sjá um tiltekt og þrif heima hjá mér :P

En já þá tel ég mig vera búna að svara þessum spurningum... ef einhverjar fleiri spurningar koma upp...þá skal ég reyna að svara þeim eftir bestu getu ;) (fer allt eftir því hver sú geta er ;)

Sent af layla kl [11:57] Komment [2]

Miðvikudagur 18. ágúst

Jiiiii!!!!!!!!!

Held barasta að ég sé búin að finna kvenlegu hliðina á mér... svona á gamals aldri. Ég vissi svosem að ég væri kvenkyns ;) meina fer ekki fram hjá neinum með þessa búbbinga *glott* Held að flestir af skólafélögum mínum yrðu mjög undrandi ef þeir sæju mig í dag.. þar sem ég var alltaf strákalega stelpan. Með drengjakoll, í gallabuxum, joggingpeysu og þ.h.

En já varðandi það að ég tel mig vera búin að uppgötva kvenlegu hliðina á mér þá datt mér í hug þessi atriði..

A)

1) mér finnst núorðið gaman að ganga í bleikum bolum, og á bleika aukahluti

2) er með snyrtivöruæði *hóst*

3) er á leiðinni í förðunarnám (hlýtur að teljast mjög kvenlegt nám :P)

4) er farin að splæsa reglulega á mig rándýrum og flottum klippingum og sl
en jahh það sem á móti kemur og er ekki jafn kvenlegt kannski er það að:

B)

1) ég geng ekki í kjólum né pilsum.. not my style

2) ég er stóóóóóóór og stæðileg

3) fer helst ekki á háa hæla :P

4) mér leiðast húsverkin

Hehe en jæja.. þegar flokkar a og b eru lagðir saman þá er ég kannski ekkert svo kvenleg/dömuleg eftir allt :P

Sent af layla kl [17:47] Komment [2]

Þriðjudagur 17. ágúst

þannig er það nú...

Skooo þannig var það að ég var búin að skrá mig í nám í No Name skólann í mai á næsta ári og var voða ánægð með að hafa loksins gert það... Eeeeeeeeen nú er smá breyting á skólamálunum hjá mér....... ÉG er hætt við að fara í skólann í mai.....


Í staðinn þá fer ég í skólann núna í september :D þ.e. eftir rétt tæpan mánuð.. Var svo heppin að það var verið að bæta við kennurum svo að ég slapp inn í hópinn :D, búin að skrá mig, borga skólagjöldin og er vo vo ánægð og spennt núna :) Get barasta ekki beðið.. En þannig er það nú.. nú get ég fyrr farið í framhaldsnámið en ég gerði ráð fyrir :)

En jæja farin í sund að skola af mér

ltr ;)

Sent af layla kl [17:53] Komment [0]

Mánudagur 16. ágúst

Ferð til dokka

Hmmms mín fór til dokka í dag vegna sýflu og verkja í andliti sem vildu bara engan veginn hverfa.. og hann vill meina að ég sé með ofnæmi og lét mig fá eitthvað ofnæmisspray.. Málið er bara.. fyrir hverju er ég með ofnæmi? Hélt í fyrstu að ég væri bara með ofnæmi fyrir sjálfri mér :P en komst svo að þeirri niðurstöðu að það gæti barasta engan veginn staðist... *dæs* ég er svo æðisleg og yndisleg.. :P *hux* ætli ég sé með ofnæmi fyrir þér? :P

Sent af layla kl [19:51] Komment [0]

Hin vanafasta ég...

Úff það hefur alltaf háð mér svolítið hvað ég er svakalega vanaföst. Ég tek ástfóstri við dauða hluti og tími ekki að sleppa af þeim höndinni.. Jahh eða þannig var það allavegana.. Ég þurfti ætíð að geyma þetta eða hitt þar sem ég barasta týmdi engan veginn að henda eða gefa hlutinn.. Núorðið hef ég sem betur fer vitkast aðeins og hendi þessum dauðu hlutum eins og ég fái borgað fyrir það. En þessi vanafesta er ekki bara bundin við hluti heldur einnig, heimili, vinnu og fleira þessháttar.

Mig hefur alltaf langað til að læra og verða "eitthvað" en þar sem ég á þrjú börn og er komin í þennan fasta hring: vinna, hugsa um heimili og börn, sofa, vinna...og svo framvegis.. þá lagði ég þann draum til hliðar. En nú fyrir stuttu hugsaði ég með mér.. hingað og ekki lengra, nú geri ég það sem mig hefur alltaf langað til að gera! Mig langar engan veginn til að enda sem fúllyndur, illa launaður leikskólastarfmaður til frambúðar. Nú er komið að mér að taka áhættu og athuga hve langt ég get komist. Kannski enda ég aftur í hinni illa launuðu vinnu, en kannski kemst ég á þann áfangastað sem mig dreymir um.. það veit enginn. Kemst ekki að því nema að taka smá áhættu ;)

Allavegana þá skráði ég mig í námið í dag sem ég var búin að tala um fyrr :) Nú er það orðið víst að ég fer í förðunarnám eftir áramót og er stefnan tekin á að læra leikhús og kvikmyndaförðun og airbrush förðun. Námið kostar í heild 430 þúsund og er ég byrjuð að safna mér fyrir því.. engar raðgreiðslur eða slíkt þar.. :)

Svo er ég dottin niður á smá business hugmynd sem ég er að þróa.. og mun ég láta ykkur vita af því síðar :Þ Gallinn er sá að stofnkostnaðurinn er slatti...en hvaa redda því :P. Get allavegana sagt ykkur að ég er búin að hanga tímunum saman á netinu og skoða tæki og tól til að byrja á þessu...og munið þið sem þekkið mig.. vonandi sjá afraksturinn á nýju ári ;)

hmm já hin skrítna ég er jafnvel farin að skoða skóla erlendis.. svona ef manni dytti í hug að kíkja í framhaldsnám ef vel gengur :P en það eru nottla bara spekúleringar sem verða jafnvel ekki að neinu... (efast stórlega um að þau áform verði meiri en hugdettan ein og sér þar sem ég er hryllilega heimakær.. elska skerið mitt :P)

En jæja farin í flösku og dósatýnslu til að fjármagna eyðsluna :P hehe.. en jæja hafið það sem allra best esskurnar..

ta ta

Sent af layla kl [02:02] Komment [0]

Laugardagur 14. ágúst

sitt lítið af hinu og þessu

Jæja hef haldið mig inni það sem af er degi.. þó svo að veðrið sé hreint út sagt frábært úti.. hef svona aðeins verið að reyna að minnka dótaríið í kringum mig.. og tók á það ráð að taka fullt af barnafötum sem ég hafði geymt, fór að þvo þau og ætla svo að brjóta þau saman og gefa rauða krossinum. Þræl fín föt.. en engum til gagns upp í skápum eða í geymslunni hjá mér.. vonandi geta einhver börn nýtt þau.. sem þurfa á þeim að halda :)

Annars get ég varla beðið eftir því að fara í förðunarnámið.. er búin að skoða allt um þetta nám og fleiri sambærileg nám erlendis.. djíhh og enn nokkrir mánuðir til stefnu.. En jæja kannski maður skelli sér út til barnanna... kíki kannski með þeim í sund og sl..

hafið það sem allra best ;)

ta ta

Sent af layla kl [15:27] Komment [0]

Fimmtudagur 12. ágúst

I´m melting... :/

Úff held barasta að ég sé orðin gott betur en léttgrilluð núna... enda er nánast ólíft að vera úti við þessa dagana... og jú.. ég vinn auðvitað úti nánast allann daginn... Maður skýst af og til í skuggann til að kæla sig.. og í dag brugðum við á það ráð að kaupa uppblásanlega sundlaug til að kæla börnin í.. þarna sátu þau rúmlega 20 í einu voða voða ánægð :) og þegar ég tengdi garðúðarann þá vakti það sko heil mikla lukku..

Annars er ég ekki búin að ná mér eftir sjokkið sem ég fékk þegar ég fór á PINK tónleikana.. meina smá stelpur í svo gott sem hóruklæðnaði... sumar flíkurnar náðu vart niður fyrir rass, aðrar vart niður fyrir brjóst og svo var restin svo flegin að restin sást...eða svo gott sem.. og það fáránlega er að stelpur frá 11 ára aldrinum og uppyfir 20 ára aldurinn var nánast eins glyðrulega klæddur.. eins gott að ég næ að stjórna fatakaupum dætra minna næstu árin..

Svo er það eitt.. mín er að rembast við að vera dugleg í hollustunni.. og hef verið að prófa mig áfram með boozt bar.. þar sem uppistaðan er skyr og ávextir.. svo þarf ég að drífa mig í því að kaupa mér líkamsræktarkort til að bræða af mér spekið... fækka keppunum aðeins ;)

en jæja kvefpúkinn kveður... ta ta

Sent af layla kl [23:22] Komment [2]

Þriðjudagur 10. ágúst

áááááiiiiiiiiiii.......

Úff... nú verkjar mig í fæturna og þarfnast sárlega að fara í heitt og gott bað.... Var á tónleikunum með Pink.. og verð að segja það að þetta var stærsta gufubað sem ég hef farið í.. og ef maður stinkar ekki núna... úf þá veit ég ekki hvað :P En þrælfínir tónleikar ef út í það er farið....

Sent af layla kl [23:09] Komment [0]

Mánudagur 9. ágúst

Another BIG smile :D

Jæja... þá er það komið á hreint.. ég fer til köben í nóvember :D búið að bóka fjóra miða.. þannig að það verður bara gaman.... :) ef frá er talið flughræðslan sem plagar mig all svakalega :/ en það er seinni tíma vandamál.


Krakkarnir komu með fyrstu almennilegu uppskeruna úr skólagörðunum... úff spurning hvað ég á að gera við allt þetta kál og grænmeti.. í dag var komið með: grænkál, hvítkál, blaðsalat, rófur, rauðrófur, hnúðkál, blaðlauk og margt fleira.... bara gaman að sjá hvað þau voru stolt af því að sýna uppskeruna :)

Sent af layla kl [23:41] Komment [0]

Big smile :D :D :D :D :D

Þá er það komið á hreint... ég fer í förðunarnám hjá NO NAME eftir áramót :D Ekkert smá ánægð með að vera loksins á leiðinni í nám :) Ætla að byrja á því að klára förðunarfræðinginn... og fara svo síðar í leikhúsförðun og body paint. Því að það er það sem mig langar að vinna við.. þ.e. leikhús förðun.... en nottla líka venjulega förðun með.... en jæja.. fyrsti vinnudagurinn í dag eftir sumarfrí :/ úff... sumir þreyttir á þessu heimili... þar á meðal ég :P hehe

ta ta ;)

Sent af layla kl [08:24] Komment [1]

Sunnudagur 8. ágúst

*dæs*

Ég er á einhverju tímabili þar sem mig langar að breyta ýmsu.. Mig langar að mest til þess að skipta um vinnu... bara langar ekki aftur í vinnuna eftir sumarfríið... :( langar að vinna styttra til að geta tekið á móti dóttur minni sem er að byrja í 1. bekk í haust, líkt og ég gerði með eldri systkini hennar. Langar í skóla.....langar að verða eitthvað meira en ég er. Komin með nóg af því að vera einhver lúser sem vinnur á leikskóla fyrir skítalaunum.

En fyrir utan þetta allt þá er ég ofboðslega sátt og ánægð :) Þannig að jahh spurning hvort ég nái að breyta einhverjum mínusnum í plús... þó svo að það verði hægt og rólega..

Hmm og já.. átti þessa fínu helgi með stórfjölskyldunni fyrir austan fjall, frábær matur, leikir, varðeldur, söngur og spjall..

Sent af layla kl [19:42] Komment [0]

Laugardagur 7. ágúst

GayPride....Hinsegin dagar...

Í dag er GayPride gangan... ganga homma og lesbía.. Til hamingju með daginn þeir sem eiga þennan dag :) Vildi að ég gæti orðið vitni að göngunni.. en eins og síðustu ár þá missi ég af henni þetta árið :/ Hlýt að ná næstu göngu ;)

Sent af layla kl [10:32] Komment [0]

Föstudagur 6. ágúst

:P :Þ :P :Þ :P :Þ

Síðustu daga hef ég verið að læra inn á símann minn sem er af tegundinni Sony ericson k700i Virðist bara hinn ágætasti sími :)

Sent af layla kl [22:58] Komment [0]

Stóri draumurinn.....

Úff... mig hefur lengi langað til þess að fara aftur í skóla.. og lengi langað til að læra förðun (leikhúsförðun).. Og eftir að hafa skoðað heimasíðuna hjá No Name þá fór hugurinn á flug... reiknaði námsgjöldin út fram og til baka.. hvernig ég gæti náð að greiða gjöldin án mikilla vandræða og svo framvegis... Ohh bara að ég gæti unnið í lottó... eða einhverju slíku.. Spurning hvort ég reyni að borga smátt og smátt inn á gjöldin sem eru 290.000 til að útskrifast sem förðunarfræðingur en svo 140.000 til að klára leikhús og airbrush förðun sem ég myndi vilja taka síðar..... en það er seinna tíma vandamál.. :P Núna ætla ég að einbeita mér að því að athuga hvort ég nái að leggja fyrir og redda mér 290.000 krónum fyrir mai. Ég bara skal!!


Annars er ég á leiðinni út úr bænum um helgina.. þó svo ég nenni því varla :/ er ný komin heim... og langar mest að hanga bara í leti.. En þetta er árlegur viðburður hjá fjölskyldunni að koma saman fyrir austan fjall, í sumarbústaðnum hjá mömmu og pabba. Góður matur borðaður, farið í leiki, sungið, varðeldur, grillaðir sykurpúðar og fleira...

en ekki meira í bili... ta ta

p.s. er svona að leika mér við það að gera Mblog.. ég kannski læt linkinn hér inn við tækifæri.. svona ef ég skyldi setja eitthvað sniðugt þangað inn, sem e´g efast þó um að verði :P

Sent af layla kl [11:48] Komment [0]

:)

Það er ekki hægt að segja annað en að eldri dóttlan mín sé annsi dugleg að hreyfa sig.. ef hún er ekki á línuskautum eða hjólandi þá er hún hlaupandi um í leik úti.. .það nýjasta sem hún hefur tekið sér fyrir hendur jafnhliða línuskautunum... er að leika sér á hjólabretti... Eins og hún er nú dömuleg í útliti þá er hún nú soddan gaur í sér :P hún var nú einnig að tala um að fara að byrja aftur í fótboltanum og lýst mér vel á það :D... hreyfing er holl og góð.. sé varlega farið :)

En talandi um hreyfingu.. þá er komið að því að endurnýja kortið í líkamsræktinni *hóst* sem ég hef alveg látið vera í sumar.. en jahh hef þó reynt að hreyfa mig eitthvað úti við með fjölskyldunni í sumar.. :) það er nú eitthvað.. Er farið að klæja í fingurna að komast í boxsal... tilbúin með græjurnar....svo nú er bara að drífa sig af stað og rækta líkamann...jafnhliða sálinni... ekki veitir nú af.

En já... lífið er bara fínt þessa dagana.. enda get ég varla kvartað... ég sem á þessi yndislegu og allt að því fullkomnu börn :) og já heilsu, ást og hamingju :) (lol...svolítið væmið.. ég veit ;)

en bless í bili.. ta ta

Sent af layla kl [01:06] Komment [0]

Fimmtudagur 5. ágúst

ohhhh....

Jæja þá eru síðustu dagar sumarfrísins senn á enda og mig hreinlega langar alls ekki að fara aftur í vinnuna :( *grenj*

Var annars að koma að noran í dag þar sem við áttum góðan tíma hjá systur minni og co. Er samt voðalega tuskuleg eitthvað eftir allt þetta flakk... og kvíðir eiginlega fyrir því að vera að fara austur um helgina.. langar eiginlega miklu frekar að vera heima í algjörri leti... með tærnar upp í loft og kúra undir sæng.. En jahh maður fær víst ekki allt sem maður vill.

*geiiisp* æji spurning um að koma sér í bælið og setja eitthvað viturlegra inn síðar... ltr..

Sent af layla kl [02:18] Komment [0]