Fimmtudagur 30. september

:P :Þ :oP :oÞ

Jæja í kvöld var kvöldið sem mér og fleirum í skólanum var búið að kvíða fyrir. Fyrsta kvöldið sem við komum með okkar eigið módel í tíma og áttum að "greina" þau og velja litina sem við notuðum á þessi svokölluðu brúðarmódel :P Að vísu var þetta nú bara æfing fyrir prófið sem er á mánudaginn en jahh ef mér gengur nokkurnvegin svona eins og mér gekk í kvöld þá þarf ég barasta litlu eða engu að kvíða :)

Annars er nú bara lítið að frétta héðan sko.. nema hvað að hún mamma á afmæli í dag og.. jahh ég náði nú ekki að kíkja á múttu til að heilsa upp á hana en bjallaði til hennar í staðinn, kíki svo á morgun eða laugardaginn til hennar með gjöfina sem búið er að redda. Veit að hún verður ánægð þar sem ég veit að hana vantar og langar í þennan hlut :)

en jæja nóg komið af tuði í bili... .ta ta

Sent af layla kl [22:47] Komment [4]

Miðvikudagur 29. september

*hissasvipur*

Mér hefur verið boðið að selja glerhluti eftir mig, í Blómavali. Spurning hvort maður prófi það.. skelli nokkrum hlutum saman og fari með til þeirra :P Hehe hef svosem ekkert verið að reyna að koma þessum hlutum á framfæri, aldrei verið mikið í því en alltaf haft slatta að gera. Nú er bara að leggja höfuðið í bleyti....og hugsa málið :)

Sent af layla kl [17:31] Komment [7]

Þriðjudagur 28. september

A nasty one

Kona kom að manni sínum að riðlast á belju í fjósinu.
Hún: hah.. þetta fá sko allir vinirnir að heyra um!
Hann: Já og það fá sko allir að heyra hvor var betri! ;)

Sent af layla kl [23:55] Komment [0]

Sunnudagur 26. september

plan sunnudagsins

Valið stendur á milli þess að kíkja í skreppitúr í Skorradalinn til vinarfólks og eiga góðan dag..... eða skjótast í bíó með börnunum að sjá myndina um Gretti.

Hvort ætli hafi vinninginn??

Sent af layla kl [12:10] Komment [1]

Laugardagur 25. september

Helgarfrí!!!

hehe.. þrátt fyrir að hafa aðeins unnið einn og hálfan vinnudag í vikunni þá er ég voðalega fegin því að það er komið helgarfrí :P Kvöldin hafa nottla farið í skólann og svo hefur maður notað tímann eftir skólann (frá ca 23:30 og framúr) í að hlaða inn myndum að verkefnum kvöldsins, hreinskrifa glósur og pikka þær inn í tölvuna og vinna í vinnumöppunni.

Annars gengur mér bara þrælvel í skólanum :D virðist vera að gera rétta hluti :) Sem er nottla ekki slæmt.

En jæja aftur í möppu vinnuna sem ég bara dýrka að dútla við :P

Eigið góða helgi öll sömul.. mín helgi verður bara í letigírnum eins og síðustu mánuðina... :D

Sent af layla kl [02:59] Komment [0]

Miðvikudagur 22. september

Jæja.....

Held ég sé aðeins að missa mig í þessari verkefnabókavinnu :P Þar sem mér finnst öll svona vinna ótrúlega skemmtileg þá held ég að þessi mappa verði all skrautleg þegar upp er staðið :P Er komin vel á veg með byrjunina.. enda var mín niðursokkin við vinnuna fram til kl 04 síðustu nótt *aulasvipur* Bara gaman að þessu.

Annars er komið að því að ég mæti fyrsta vinnudaginn í vikunni, þar sem ég er búin að vera heima með krakkana vegna verkfallsins hef ég ekkert mætt þessa vikuna, en núna ætla pabbi og mamma að leyfa gormunum að gista hjá sér.. sem hefur ekki gerst svo mánuðum skipti, verður eflaust mikið gaman hjá þeim :)

En jæja skólinn bíður..

ta ta

Sent af layla kl [17:19] Komment [0]

Þriðjudagur 21. september

Sóla skólastelpa :P

Það er svolítið skondið finnst mér að vera aftur komin í þá stöðu að þurfa að glósa, vinna heimavinnuna mína og slíkt hef ekki þurft þess í níu...*hux* eða tíu ár.. reyndar man ég það ekki...það er orðið svo langt síðan :P.. En það sem meira er... mér finnst þetta þrælgaman :D Gleymi mér algjörlega í þessu... sem er svosem ágætt þar sem vinnubókin sem ég þarf að skila er vel þykk og eins gott að vinna í henni jafnóðum þar sem ekki var mælt með því að við myndum reyna að vinna hana á einu bretti rétt fyrir skil.. var okkur tjáð að það hefði sjaldnast heppnast.

Þannig að mín er á leiðinni í verslunarferð þar sem versla á ýmist dótarí til að gera vinnubókina sem flottasta.

Annars er nú bara mest lítið að frétta.. maður er bara heima á meðan á verkfallinu stendur.. ætla nú samt að reyna að mæta einn dag í vikunni, þar sem pabbi bauðst til að hafa krakkana með sér í vinnunni.

Já og....eru ekki einhver tilraunadýr sem vilja leyfa mér að æfa sig á feisinu á sér *evilgrin* :P

Sent af layla kl [11:48] Komment [1]

Sunnudagur 19. september

kennaraverkfall....

Jæja þá er það ljóst...kennaraverkfallið er hafið.. og ég sé fram á launalaust frí :/ en jæja.. get þó einbeitt mér að skólanum og börnunum á meðan. Reyni svo að hlaupa dag og dag í vinnuna þegar ég sé mér fært um það. Annars er helgin búin að vera brilliant.. var að koma úr Skorradalnum þar sem við vorum í "Villu" vinarfólks okkar og vááá ég væri sko til í að eiga þennan bústað *dæs* kannski einhverntíman :P Elduðum dýrindis mat og höfðum það gott.. já svona helgar eru bara næs :D :D:D:D

Sent af layla kl [22:19] Komment [0]

sunnudagur til sælu...

Jæja mér hefur gengið alveg þokkalega að redda mér módelum bæði fyrir æfingafarðanirnar og prófin :) allt voða sætar og fínar stelpur :D Ef áframhaldið verður svona þá þarf ég ekki að kvíða þessu :)...

En já ég kíkti aðeins til Rósu í gærkvöldi. Sátum þar nokkur og spjölluðum... alltaf næs að sitja og spjalla :) var komin heim um 1. Takk fyrir kvöldið Rósa mín :)

Helgin er búin að vera fín.. eftir leti laugardag.. þá var ákveðið að skella sér í bíltúr í skorradalinn, grilla og hafa það næs... vííííí I´m gone!! :D

Hmmmms.. .svo er bara að sjá hvort þetta blessaða kennaraverkfall verður... veðja nú frekar á það heldur en á móti...

Hafið það sem allra best..

Sent af layla kl [11:29] Komment [0]

Föstudagur 17. september

Kennaraverkfallið...

Jæja.. nú um helgina kemur í ljós hvort þetta bévítans kennaraverkfall verður. Ef það verður þá sé ég fram á launalaust frí á meðan á því stendur... úff en jæja þannig verður þetta víst að vera.

Annars er ég sjálf að spá í að fara í verkfall... veit bara ekki alveg fyrir hvaða réttindum eða málstað ég ætti að berjast :P

Sent af layla kl [18:45] Komment [2]

Mánudagur 13. september

andvarp....

Jæja.. fyrsta kvöldið í skólanum búið.. og hmm mín komin með nett áfall :O Okkur var tilkynnt það að við þurfum að redda okkur átján módelum fyrir farðanir.. fyrir utan próf módelin *bigeyes* og ég sem var búin að cirka *hóst* jahh eða biðja tvær um að vera módel hjá mér.. *aulasvipur* jahh og annað þeirra ákvað að fara í skólann með mér svo að hmm eitt módel er eftir.. *hux* þá þarf ég bara að redda 17 módelum plús próf módelum *dæs* býður sig einhver fram *glott* :P

Annars var þetta bara stutt kvöld.. á morgun hefst svo alvaran..

Sent af layla kl [21:25] Komment [4]

stór sjokkur.....

Úff...ef ég er ekki í sjokki núna.. þá veit ég ekki hvað... Ég fór í smá skoðunarferð að kíkja á "pæjuskó" og fann nottla slatta af skóm sem ég væri til í að eiga (nema hvað) ;) en jújú þegar tékkað var á verðinu.. þá voru þeir nottla á svimandi háu verði.. nema hvað! Bara litlar 29 þús krónur fyrir par af flottum skóm..(stígvélum.. þó ekki gúmí) hvað er það á milli vina :P hehe..

En jújú.. gekk út úr kringlunni með þessi fínu stígvél.. sem voru þó á mjög svo temmilegu verði :) og jú.. þessa flottu strigaskó... skjannahvítir og bleikir ógó flott.. hehe

Annars er helgin búin að fara í næsheit eins og vanalega.. enduðum helgina heima hjá vinafólki í kínamat og spjalleríi.. og má rétt geta þess að það var annsi fjörugt þar.. þar sem aðeins voru 7 stykki af börnum þar :P

En já.. Skólinn byrjar annaðkvöld (jahh eða öllu heldur í kvöld) og þar með er hafin þokkaleg törn þar sem ég mun lítið láta heyra í mér.. mun nottla skella einhverju hér inn af og til og sjást af og til á msn.. en jahh ekki mikið þó..

ltr..

Sent af layla kl [00:42] Komment [2]

Laugardagur 11. september

Fréttir dagsins í dag verða gamlar fréttir á morgun ;)

Sent af layla kl [13:31] Komment [0]

Miðvikudagur 8. september

ein ljóska í tilefni þess að það er miðvikudagur....


Einn góðan veðurdag var ljóska nokkur að keyra niður götu. Þegar henni
var litið til hægri sá hún hvar önnur ljóska sat og var að róa árabát á
grasbletti og ekkert vatn sjáanlegt. Ljóskan á bílnum neglir niður í
miklu reiðiskasti, strunsar útúr bílnum og öskrar á hina ljóskuna:
,,Hvað í fjandanum heldurðu að þú sért að gera ??? Það eru
heimskupör sem þessi sem koma óorði á okkur ljóskurnar ! Ef ég kynni
að synda myndi ég koma til þín og lúberja þig!!

thíhí.. já sönn saga af sjálfri mér í tilefni dagsins....

Sent af layla kl [17:24] Komment [0]

Digital..

Mig vantar ódýra en þokkalega digitalvél. Einhverjar hugmyndir?

Sent af layla kl [16:54] Komment [0]

...................

Hitti ekta NORN í dag, illgjarna eiturnöðru. Verri en allt sem vont er.. og það versta er að hún býr fyrir neðan mig!! Nú er komið að því.. Ef hún flytur ekki þá flyt ég og hana nú.. slímugra og rotnara kvikindi getur varla verið til.. nema í þjóðsögum!!!

*thíhí* já fannst ykkur þetta ekki mjög áhugavert? eða þannig...

Sent af layla kl [16:33] Komment [2]

Þriðjudagur 7. september

Vissuð þið það.. að....

Í bandaríkjunum vilja konur frekar eiga góða kvöldstund við spjall með vinkonunum...heldur en að stunda kynlíf með eiginmanninum/unnustanum... :P Ætli þetta sé sér bandarískt dæmi?.... eða hvað

Sent af layla kl [00:14] Komment [2]

Sunnudagur 5. september

Fín helgi...

Hittingur hjá Ólöfu á föstud.. nennti engu djammi... heim að sofa snemma :)

Sund á lau og hittingur við stórfjölskylduna..jahh eða flesta í henni, letikvöld.. sofnað mjöööööööög snemma :Þ

í dag er stefnt á rólegheit og smá heimsókn með börnin... kannski skella sér á skauta.. hver veit :D

já yndislegt þetta nýja letilíf... umbreytist örugglega bráðum í letidýr :P

Toppur helgarinnar hjá okkur var að hitta Karen Sól og Pétur Arnar...(og auðvitað hin að norðan) :)

Sent af layla kl [11:33] Komment [0]

Fimmtudagur 2. september

fyrrum loðinbarði.. nú....

Já mikið rétt mín fór barasta í klippingu og smá yfirhalningu í morgun.. Enginn smá tími sem fer í þann próses eitthvað á milli 3-4 tímar. Mikið ÞYKIST ég líta miklu betur út núna :P

En já.. líður senn að helgi og ég er að spá í að þyggja boð Ólafar vinkonu og kíkja í heimsókn til hennar annaðkvöld í rauðvín og osta og skemmtilegan félagsskap :) Góð tilbreyting það :D

Sent af layla kl [19:36] Komment [3]

punktur punktur komma strik ..,-

Kíkti í heimsókn til Ólafar vinkonu í kvöld.. ætlunin er að auka samskiptin og hittast oftar. Og hef ég af og til verið að kíkja í heimsókn til hennar eftir að hún flutti í nýju íbúðina. Fyndið hvað maður getur kjaftað um allt og ekkert, já og nottla rifjað upp gömlu góðu tímana þegar maður var ungur og vitlaus.

Annars er ég allt of löt við að hafa samband við fólk, kem mér bara ekki í það. Er meira að segja farin að fá skammir frá foreldrum mínum yfir því að þeir heyra óvenju lítið í mér, heyri einnig minna í Evu systur sem ég hef vanalega spjallað við daglega..... en æji... er bara óttarlega heimakær og löt þessa dagana enda fjörugur tími í vændum á næstunni.. þegar skólinn byrjar. Þá verður törn frá kl 8 á morgnana til kl 23 á kvöldin. Verður lítið annað gert en að hugsa um börnin, vinna, læra og sofa.

Ekki ætla ég að kvarta yfir því að það verði of mikið að gera hjá mér, að vísu kvíðir ég því að í fyrsta skiptið síðan börnin mín fæddust, þá mun ég varla sjá þau neitt að ráði nema um helgar allavegana fram að áramótum :/ Enda held ég að þau séu þau einu sem koma til með að sakna nærveru minnar þennan tíma. Hinir eru frelsinu fegnir ;)

Sent af layla kl [01:22] Komment [0]

punktur punktur komma strik ..,-

Kíkti í heimsókn til Ólafar vinkonu í kvöld.. ætlunin er að auka samskiptin og hittast oftar. Og hef ég af og til verið að kíkja í heimsókn til hennar eftir að hún flutti í nýju íbúðina. Fyndið hvað maður getur kjaftað um allt og ekkert, já og nottla rifjað upp gömlu góðu tímana þegar maður var ungur og vitlaus.

Annars er ég allt of löt við að hafa samband við fólk, kem mér bara ekki í það. Er meira að segja farin að fá skammir frá foreldrum mínum yfir því að þeir heyra óvenju lítið í mér, heyri einnig minna í Evu systur sem ég hef vanalega spjallað við daglega..... en æji... er bara óttarlega heimakær og löt þessa dagana enda fjörugur tími í vændum á næstunni.. þegar skólinn byrjar. Þá verður törn frá kl 8 á morgnana til kl 23 á kvöldin. Verður lítið annað gert en að hugsa um börnin, vinna, læra og sofa.

Ekki ætla ég að kvarta yfir því að það verði of mikið að gera hjá mér, að vísu kvíðir ég því að í fyrsta skiptið síðan börnin mín fæddust, þá mun ég varla sjá þau neitt að ráði nema um helgar allavegana fram að áramótum :/ Enda held ég að þau séu þau einu sem koma til með að sakna nærveru minnar þennan tíma. Hinir eru frelsinu fegnir ;)

Sent af layla kl [01:22] Komment [0]