Föstudagur 29. október

isssssss.........

Aulinn ég... hélt að mánaðarmótin yrðu um helgina og ég myndi þar með fá útborgað fyrir helgi... en nei... fattaði svo að 1. nov er á mánudaginn! :/

Allavegana tók tvær farðanir í dag og svo eru tvær farðanir á morgun.. smá peningur sem maður fær í vasann þá :P Svo er bara að bíða þolinmóð eftir mánaðarmótunum *dæs þolinmæði er ekki mín sterka hlið*

En já.. mig vantar þrjú módel fyrir næstu viku. Módel í förðun fyrir dökka húð (asíska eða svarta), módel fyrir svarthvíta ljósmyndaförðun og svo módel í förðun fyrir karlmenn (létt ljósmyndaförðun) er ekki einhver þarna sem gæti reddað mér? *puppyeyes*

en jæja góða helgi alles... hafið það sem allra best :)

Sent af layla kl [22:34] Komment [0]

Mikið er ég fegin því....

Að skóli hefst aftur á mánudaginn. Börnin mín sem og önnur börn geta þá komist aftur í sína föstu rútínu sem hefur verið heldur losaraleg á mörgum heimilum, en sem betur fer hef ég getað haft góða reglu og rútínu hjá mínum.

Komið að því að vinirnir hittist allir og leiki sér í frímínútum, en séu ekki í pössun hér og þar og hittist lítið.

Lærdómurinn hefur legið niður hjá allflestum og nú þarf liggur við að byrja á núlli í yngstu bekkjunum, því að þessi litlu kríli voru ný komin af stað þegar verkfallið hófst. Sum voru búin að vera lengi að aðlagast þessum nýja heimi sem skólinn var þeim í haust, og spurning hvort þau komi sterk til leiks eða jafn feimin og lítil í sér og í haust.

Gleðst allavegana yfir því að skólinn er að hefjast, vonandi er það fyrir fullt og allt...

Sent af layla kl [11:24] Komment [0]

dæs....

Jæja eitthvað verður launaumslagið þunnt þessi mánaðarmót þar sem ég tók rúman mánuð í launalaust frí hálfan daginn og stundum allan daginn. En á móti þá hef ég átt góðan tíma með þessum yndislegu börnum sem ég á :D

En já ég væri alveg til í það að vinna góða summu í lottó eða einhverju happadrættinu.. Mig langar nefnilega svo að fara á helgarnámskeið í leikhús og kvikmyndaförðun og það kostar aðeins 70 þús, einnig langar mig í förðunarskóla Mac (fyrir förðunarfræðinga) sem kostar eitthvað á milli 150-200 þús og á námskeið í airbrushförðun sem kostar 180 þús... þannig að *reikn* mig vantar svona um hálfa milljón takk fyrir :Þ

Var að farða dragförðun í kvöld og það var bara brilliant, ekkert smá gaman að breyta karlmanni í ýkt farðaða drollu :P held að mér hafi nú barasta gengið ágætlega :D

Á innkaupalistanum mínum eru nokkrir hlutir sem mig vantar í slíka förðun. Þ.e. vax, sealor lakk og grease paint til að geta hulið augbrúnir :Þ kannski maður kíki í smá innkaupaferð... aldrei að vita.

Annars er ég að fara að farða Evu systur annaðkvöld.. það fyndna er að ég er hálf stressuð yfir því :Þ svo eru það tvær farðanir á laugardaginn. Ágætt að fá góða æfingu :)

ta ta..

Sent af layla kl [00:15] Komment [0]

Fimmtudagur 28. október

AAAAATSHJÚÚÚÚ!!!

Hausverkur, stíflað nef, hnerri, hósti, hálsbólga, þrútið andlit og bólgnir eitlar. JUST LOVE IT!!! hrmpfff.. OR NOT!

Sent af layla kl [11:54] Komment [0]

Laugardagur 23. október

Jæja þá er keppnin að baki og ég held ég hafi barasta komið mér ágætlega frá þessu verki, þó svo ég hafi nú ekki lent í þessu verðlaunasæti sem var í boði :P
Mjög sátt og ánægt með árangurinn, bæði makeupið og outfittið :D sló vel í geng með það að vera sú eina sem var með heimatilbúið outfit. Fötin, skartgripirnir og förðunin gerði mikla lukku. Módelið fór svo í professional myndatöku og get ég ekki beðið að fá stækkunina í möppuna mína.. því að þær myndir sem ég fékk að skoða í tölvunni voru GEGGJAÐAR!! Sé sko ekki eftir þessum aur sem fór í myndatökuna.

Annars er ég annsi lúin og þreytt eftir daginn, fæturnir aumir og já bara þreytt.. :P

Á morgun er ég svo að farða fyrir tískusýningu sem verður í Smáralindinni í tilefni förðunarkeppni förðunarfræðinga/meistara. Verður bara gaman að kljást við það :P æfing.... æfing.... æfing.... :)

en já.. lögst í sófan með tærnar upp í loft :P ta ta.....

Sent af layla kl [22:14] Komment [6]

*dæs*

Úff fór í prófið í kvöldförðun og verð barasta að segja það að ég olli sjálfri mér miklum vonbrygðum :/ lenti í tímahraki vegna fullkomnunaráráttu og jahh ætlaði varla að ná að koma módelinu fullkláruðu frá mér :( en jahh tókst það... þó það hafi varla verið með réttum árangri ef ég hefði ekki eytt öllum þessum tíma í augun. En well þetta er búið og gert svo það þýðir ekki að grenja þetta.

Tók í fyrsta skiptið við greiðslu fyrir förðun í kvöld :P hehe.. vanalega hef ég nú bara gert þetta frítt í þessi fáu skipti sem ég hef farðað vinkonurnar... en nei .. ég átti sko að fá greiðslu fyrir þessa förðun. Og mikið var gaman að sjá og heyra hvað skvísan var ánægð með útkomuna :D

Á morgun er svo förðunarkeppni No Name.. Ég sé hálfpartinn eftir því að að hafa skráð mig í þessa keppni. finnst ég einhvernveginn ekkert hafa að gera í þessa keppni. En sem betur fer er þetta bara nemakeppnin svo að það er þá von til þess að það séu fleiri á svipuðu róli og ég þarna :P Annars er allt að smella saman varðandi módelið.. outfittið svo gott sem tilbúið, skartgripirnir komnir úr krómi, hárgreiðsla í fyrramálið og svo.... jahhh bara að mæta og hafa gaman af..

úff wish me luck.. ekki veitir af :/

Sent af layla kl [00:38] Komment [2]

Miðvikudagur 20. október

hmssssss....

Ok.. próf á fimmtudaginn og ég hef ekki hugmynd hvernig ég á að stílisera módeli. Vantar helmingi fleiri klukkustundir í sólarhringinn :/

Aftur á móti er ég alveg komin með það á hreint hvernig módelið mitt í NoName förðunarkeppninni sem er á laugardaginn á að vera. Komin með efnið í í fötin (á að vísu eftir að skella þeim saman :s), búin að ákveða hárgreiðsluna (hmm skulum vona að það takist), búin að ákveða litina í förðunina og finna þá til (já.. vonandi koma þeir vel út), er að hanna og búa til skartgripi sem ég ætla að hafa á módelinu (vonandi verður eitthvað nothæft út úr því).

En já.. það eru hugmyndir í vinnslu varðandi breytingar á vinnu og vinnutækifærum.. Allt í skoðun og mikið spáð og spekúlerað :) Segi ykkur frá því síðar ;)

Sent af layla kl [00:10] Komment [0]

Mánudagur 18. október

allt er gott sem endar vel...

Jahh hvað get ég sagt.. Skemmtilegt kvöld með Sigrúnu... ágætis djamm og mjöööööög þreyttur og slappur dagur í dag, þó svo ég léti nú lítið á því bera :P

Síminn minn hvarf í nótt... en kom sem betur fer aftur í leitirnar í kvöld.. Sem betur fer!!!!!!!!

Sent af layla kl [00:45] Komment [0]

Laugardagur 16. október

hmm hvað er að frétta? Jahh lítið eins og alltaf, ég hef bara verið að vinna og svo í skólanum. Í gær var ég með módelæfingu í smoky og var Birna svo elskuleg að redda mér með því að vera módel. Í næstu viku er svo próf í kvöldförðun þar sem Elín ætlar að vera módel og svo á laugardeginum förðunarkeppni sem ég mun taka þátt í. Þannig að þessa dagana er ég á fullu í því að reyna að finna út hvernig ég vil hafa módelin mín í myndatökunum. Þarf að passa upp á það að stíliseringin sé góð, svo ég fái fína einkunn.

Á morgun verður haldið í alsherjar innkaupaleiðangur þar sem þeim málum verður vonandi reddað :)

Annars... eigið góða helgi elskurnar

Sent af layla kl [01:05] Komment [0]

Miðvikudagur 13. október

ég skal mála allan heiminn.........

Jæja.... hef ákveðið að taka þátt í förðunarkeppni No Name. Búin að skrá mig, borga þátttökugjaldið og fá þetta flotta módel :) Er alveg komin með stýliseringuna á hreint en *hóst* held ég þurfi smá aðstoð við að koma dressinu saman. *ræskj* hirru þú sem kannt að sauma... mátt alveg hjálpa auminga greyinu mér :P

Annars var æfing í smokyförðun í skólanum í kvöld og ég held ég hafi litið út eins og vampýra með þetta framan í mér :/ Fékk góð hrós fyrir förðunina sem ég gerði og er sko bara sátt við það sem ég skilaði frá mér.

Á morgun á ég svo að mæta með módel, er búin að redda mér einu stykki sætri stelpu í það hlutverk :) og verður gaman að sjá útkomuna :D

en já.. nóg af þessu í bili... ta ta..


P.s. Er ekki einhver þarna sem er til í að vera ofursætt módel í kvöldförðun (próf) eða dragförðun (æfing)?????? :P og koma soooo

Sent af layla kl [23:39] Komment [0]

Þriðjudagur 12. október

ákvörðun

Kíkti í heimsókn til Sigrúnar í kvöld, eyddum kvöldinu í ofurrólegt og notalegt spjall. Ákváðum að panta okkur bústað yfir helgi og eyða helgi í föndur, spil og skemmtilegheit :) það versta er að Sigrún virðist ómögulega geta fundið út almennilega fríhelgi *dæs* hún er svo svakalega upptekin manneskjan.

Annars er þetta ekki vitlaus hugmynd.... bara spurningin að láta verða að þessu ;)

Sent af layla kl [01:07] Komment [2]

Mánudagur 11. október

Jamm og jæja....

Stuttur skóli í kvöld.. sem er bara ágætt. Þurfti að mæta með "eldra" módel sem var meira en að segja það, þar sem ég þekki ekki mikið af konum 65 ára og eldri. Náði þó að redda málunum á síðustu stundu og það manneskju sem aldrei hefur svo mikið sem sett á sig meik hvað þá annað. Kom þessu ágætlega frá mér og er fegin að þetta er búið. Næst er það smoky og það er eitthvað sem gaman verður að fikta með :P

Annars er lítið að frétta héðan úr letilandi, en eins og sagt er: engar fréttir eru góðar fréttir ;)

Sent af layla kl [21:47] Komment [2]

Sunnudagur 10. október

Var djammað?.........

Hehehe... já.. planið var að kíkja á eitthvað djamm á laugardagskvöldið, en nei ég nennti því ómögulega :P þannig að kvöldið var tekið í leti og rólegheit og sunnudagurinn tekinn snemma. Kíkti með börnunum í sunnudagaskólann en svo var spáð og spekúlegað hvað gera skyldi. Ákveðið var að kíkja í bíltúr austur í Hveragerði með vinafólki. Þar sátum við og spjölluðum yfir veitingum og börnin léku sér og enduðu nottla á því að fá ís. Héldum svo áfram upp í sveitir að skoða bústað sem verið var að flytja inn....djöhh væri ég til í að eiga eitt stykki bústað sem ég gæti bara eitt helgunum í :P Allavegana komin með bústað á framtíðarplanið..... þ.e. á eftir raðhúsinu *tíst* En já dagurinn var bara brill... enda brilliant fólk á ferð :P

Sent af layla kl [21:17] Komment [0]

Föstudagur 8. október

Djamm.... eða ekki djamm

Úff spurning hvort maður nái að draga sig út úr þessari letiskel og skella sér á smá djamm um helgina.. væri alveg til í það, bara spurningin að nenna :P

Sent af layla kl [22:14] Komment [1]

Fimmtudagur 7. október

víííííííííííí!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég er búin að kaupa mér bíl *bigsmile*

Sent af layla kl [10:22] Komment [3]

Miðvikudagur 6. október

reynsluakstur

Prufukeyrði bíl í dag og varð "ástfangin" :Þ Kemur í ljós í fyrramálið (jahh eða öllu heldur í dag) hvort ég kaupi bílinn sem er Ford Focus...... meira um það síðar :P:P:P:P:P:P:P

Sent af layla kl [01:03] Komment [6]

Mánudagur 4. október

búin í prófinu....

Jæja þá er fyrsta prófinu lokið. Farðaði módelið í hlýjum tónum eins og sagt er. Og kom þetta bara fínt út held ég :) hárgreiðslan gerði náttúrulega mikið og þegar kórónan, slörið, hálsmenið og eyrnalokkarnir voru komið á sinn stað og vöndurinn í hendurnar þá var verkið fullkomnað. Þar sem ég er alltaf aðeins öðruvísi en hinar :P þá ákvað ég að hafa módelið mitt í gamaldags og rómantískum stíl. Og fékk ég að heyra það frá kennurunum sem voru prófdómarar að stíliseringin hjá mér varðandi útlitið, litaval og fylgihluti hefði verið fullkomin. Ekki slæmt það.

Annars hef ég það einhvernvegin á tilfinningunni að ég hafi nú gert einhverjar klaufavitleysur, en þar sem ég fæ ekki að vita neitt út úr prófinu fyrr en upp úr miðjum desember, þá ætla ég nú ekki að eyða tímanum í að spá í þessu. Hafði allavegana gaman af þessu, nema hvað að okkur fannst heldur langt að bíða í einn og hálfan tíma eftir myndatökunni í kæfandi hita og loftleysi..

en jæja nóg af röfli í bili.. ta ta...

Sent af layla kl [23:09] Komment [2]

fyrsta prófið

Jæja þá er komið að því að taka fyrsta prófið í skólanum. Í kvöld fer ég í próf í brúðarförðun. Módelið þarf að vera þannig búið að hægt sé að taka "ekta" brúðarmynd (þó aðallega brjóstmynd). Þannig að hér er ég, tilbúin með slörið, topp, kórónu, hálsmen, eyrnalokka og svo nottla brúðarvönd í ísskápnum :P eftir ca. klukkutíma fer ég svo með módelið í hárgreiðslu til mágkonu minnar sem er hárgreiðslumeistari :) Flott skal það vera... svo er bara að krossa fingur og vona að mér gangi einnig vel, ekki nóg að hafa módelið vel búið heldur verður það að vera vel farðað líka :s

en jæja áfram í undirbúninginn

Sent af layla kl [14:53] Komment [0]

Sunnudagur 3. október

styttan

Kona var að halda framhjá manni sínum og var í rúminu með elskhuganum.
Allt í einu heyra þau sér til mikillar skelfingar að eiginmaðurinn
stingur lyklinum í skrána á útidyrahurðinni.

Konan reynir að finna eitthvað ráð í flýti. Hún tekur fram flösku af nuddolíu og púður. Hún hellir olíunni yfir elskhugann og hellir svo púðrinu yfir hann þannig að hann lítur út eins og stytta. "Ekki hreyfa þig fyrr en ég segi að þú megir það," segir hún og klæðir sig í flýti. "Stattu bara þarna grafkyrr."

Maðurinn kemur inn í svefnherbergið og spyr: "Elskan hvað er nú þetta?" "Þetta, æji þetta er bara stytta," segir konan kærulaus.? Gunna og Jón fengu sér eina fyrir stuttu þannig að ég ákvað að redda mér einni líka, þetta er svo smart." Ekkert er rætt meira um "styttuna", ekki einu sinni yfir kvöldmatnum. En klukkan 3 um nóttina læðist maðurinn fram úr rúminu, fer fram í eldhús, nær í samloku og mjólkurglas og réttir styttunni. "Gjörðu svo vel," segir hann. "Ég stóð eins og hálfviti hjá Jóni og Gunnu í heila tvo daga og enginn bauð mér vott né þurrt

Sent af layla kl [00:52] Komment [0]

Laugardagur 2. október

hmmms...

Plan gærkvöldsins var að kíkja í heimsókn til Ólafar vinkonu. Í staðinn afboðaði ég komu mína og lagði mig SMÁ um tíu leytið.... og drullaði mér á fætur rétt um ELLEFU í morgun!!! *bigeyes*

Dagurinn í dag er svo búinn að fara í "brúðarleiðangur" :P og NEI ég er sko ekki að fara að gifta mig (not my style). En aftur á móti er ég að fara í próf í brúðarförðun á mánudagskvöldið og var ég að redda hinu og þessu fyrir myndatökuna sem er eftir prófið. Því ég á að vera með "ekta" brúði tilbúna til myndatöku. Er því komin með brúðarslör, kórónu, hálsmen, eyrnalokka og efnisbút sem ég verð einhvernveginn að klumbra saman svo úr honum verði toppu *hóst* og á morgun næ ég svo í blómin. Held barasta að Halla verði hin fínasta brúður :P kannski hún nái að sannfæri kagglinn um það að nú sé nú kominn tími á það að ganga í það heilaga eftir að vera búin að lifa í synd í jahh allavegana tólf ár og punga út fjórum börnum.. hehe

en jæja.. hafið það sem allra best

ta ta

Sent af layla kl [15:46] Komment [0]