Sunnudagur 28. nóvember

við kveikjum einu kerti á.....

Úff finnst ég ekkert hafa náð að hvílast yfir helgina. Helgin var nokkurnvegin svona hjá mér.. laugardagur: vinna, fór með strákinn í klippingu, beint að farða mömmu eftir það og svo beint þaðan í afmæli sem haldið var í keilu (9 ára afmæli barnanna minna) kom heim að kveldi... lúin eftir fjörið. Vakti nottla lengst frameftir nóttu as usual. Sunnudagur: fór með krakkana í sunnudagaskólann, í leiðangur að versla buxur á strákinn og afmælisgjöf fyrir vin þeirra, skutlaði þeim í afmæli, fór heim að baka fyrir kvöldvöku í kirkjunni, fór á kvöldvöku og heim að skrifa ritgerð... *dæs* hef ekki náð að gera neitt hérna heima. Enginn aðventukrans hefur verið gerður :( engin ljós komin í gluggana (enda óþrifnir) og hmm.... engin rólegheit.. hlakka ekkert smá til þess að klára síðasta prófið næsta laugardag og geta bara gert það sem mig langar til að gera á kvöldin :D

Annars er ég að spá í að fara í skóla eftir áramótin. Á samt eftir að ákveða það endanlega, enda er þetta dýrt nám sem ég er að spá í en þess virði ef út í það er hugsað. Er samt ekkert voðalega spennt yfir því að taka námslán, en jahh þetta kemur allt í ljós með tímanum.

Annars fannst mér svolítið fyndið í dag, fyrsta sunnudag í aðventu að keyra niður í bæ í grenjandi rigningu með jólaskreytingar allt um kring. Ekki beint jólalegasta veður sem hægt er að hugsa sér. Það var þó heldur jólalegra að fara á kvöldvöku í kirkjunni þar sem jólalög voru sungin, stelpurnar mínar sungu með barnakór kirkjunnar og allir héldu svo á kertum í lokin, ljósin voru slökkt í kirkjunni og heims um ból sungið.. að vísu finnst mér það lag aðeins hæfa um hátíðarnar... þ.e. blá jólin.

en well... komið nóg í bili.. ta ta

Sent af layla kl [23:51] Komment [1]

Föstudagur 26. nóvember

Góða helgi alles :)

Jöss!!!! Loksins langþráð fríkvöld.. já og fríhelgi :D Jahh ef svo má kalla, í kvöld er það afmæliskökubakstur og á morgun, vinna, förðun og afmælisveisla barnanna... hmm sé til hvað ég nenni að gera mikið annaðkvöld.. hef samt á tilfinningunni að það verði nú ekki mikið frekar en venjulega. Já og ekki má gleyma blessuðu ritgerðinni sem ég þarf að berja saman um helgina... semsagt fjör...fjör...fjör.. Svo þarf nottla að búa til stóran flottan aðventukrans þar sem að fyrsti í aðventu er á sunnudaginn... damn hvað jólin nálgast hratt *sjokkur* er ekki til tímavél sem stöðvar tímann? Ef svo er... ætli hún fáist á Ebay? :P

Sent af layla kl [21:34] Komment [0]

fullkomnun......or not!

Einn af mínum göllum ef svo má kalla, er fullkomnunarárátta. Það nægir mér ekki að vinna hlutina vel, heldur vil ég helst að þeir séu óaðfinnanlegir. Síðustu daga og nætur hef ég reynt að nota allan minn frítíma í vinnumöppu gerðina, og jú jú, möppunni var skilað að lokum en þvílíkt og annað eins sem ég er að pirra mig á því að hafa ekki getað klárað smotterí í henni. Hef að vísu leyfi til að bæta því inn í möppuna á mánudaginn, þar sem tölvan var að stríða mér (var allt tilbúið í töllinu) en það er bara að pirra mig svakalega að hafa ekki skilað 100% fullkominni vinnubók.

Þegar ég horfði á bunkann af vinnumöppunum þá furðaði ég mig á því hve þær voru margar hverjar þunnar og nettar á meðan mín er þreföld :/ skildist á kennararnum að ég hefði lagt allt of mikla vinnu í möppuna, og að það vær nú greinilegt að ég væri með fullkomnunaráráttu í þessum málum. En jæja, verð víst að sætta mig við það að fá ekki hreina 10 fyrir vinnubókina. Hefði að vísu getað skilað henni of seint en það er 0,5 í frádrátt fyrir hvern dag umfram skiladag. Og það er ekki skóli fyrr en á mánudaginn þannig að þar með hefði ég lækkað um heila 2 í einkunn. Nú er bara að skella sér í ritgerðarvinnu um helgina og skila henni á mánudaginn... rumpa þessum þremur prófum af sem eru eftir og slappa svo bara af. Verður þvílíkt notalegt :D

en *geisp* jæja..kannski maður fari að koma sér í bælið.. og það þokkalega snemma miðað við síðustu vikurnar...

Sent af layla kl [01:01] Komment [0]

Miðvikudagur 24. nóvember

nothing as usual.....

Jæja.. lítið að gerast hér :P er á fullu í verkefnavinnu og æfingum fyrir prófin. á minn fasta þriggja tíma svefn eins og er og finn svosem ekkert fyrir því. En mikið verður þó notalegt þegar skólanum lýkur og ég get farið að eyða kvöldunum í rólegheit og jóladúllerí :P Er svona rétt farin að huga að jólagjöfunum, óvenju sein í þeim málum núna... verð að reyna að klára þetta allt um mánaðarmótin. Ætla fyrst að klára afmælisdæmið, þ.e. afmælisveislu Arons og Áróru sem halda á næstu helgi. Verður mikið fjör, keila, pizzur, kökur og slíkt :) mikill spenningur í gangi þar þá bæ og búið að útdeila boðskortum í veisluna... jahh svona flestum.

En já farin aftur í verkefnin.... verkefnaskil á morgun og eins gott að hafa þetta eins fullkomið og mögulegt er :P

Sent af layla kl [23:11] Komment [0]

Mánudagur 22. nóvember

þau eiga afmæli í dag.............

Fyrir níu árum, lá ég inni á meðgöngudeild Landspítalans og beið þess að fara í keisara. Morguninn 22. nóvember fæddust svo Aron Pétur kl 09:04 og Áróra Lind kl. 09:05. Tvö agnarsmá kríli sem voru fædd rúmum tveimur mánuðum fyrir tímann. Tíminn hefur svo sannarlega flogið áfram og nú eru þessi fyrrum kríli orðin þessi stóru fallegu börn sem vita hvað þau vilja... en vita líka að það er gott að kúra enn hjá mömmu þó maður sé orðinn þetta stór. Á hverjum degi fæ ég kossa og knús... og falleg orð frá þeim, þessum yndislegu börnum :) Ég er ótrúlega stolt af þeim á allan hátt.. þau eru hreint út sagt FRÁBÆR!!

Til hamingju með daginn elsku Aron Pétur og Áróra Lind :*******

Sent af layla kl [00:18] Komment [6]

Föstudagur 19. nóvember

leti...leti...leti...

*dæs* var búin að pikka helling inn en eins og þið sjáið þá þurrkaði ég það út. Er eitthvað svo hugmyndasnauð þessa dagana. Tíminn fer í vinnuna, skólann, börnin, vinnubókagerð og fl slíkt.. svefninn er í styttra lagi og maður orðinn frekar lúinn eftir þessa törn sem hefur verið hreint frábær :) Sé ekki eftir því að hafa skellt mér í þetta nám, og er með frekara nám í huga... sem og smá business undirbúning... segi betur frá því síðar.

eigið góða helgi.. :)

Sent af layla kl [23:58] Komment [0]

Það er enginn fullkominn....

og mér dettur ekki einu sinni í hug að reyna að komast nálægt því.... Ótrúlega sniðugt hvað sumir líta alltaf allt öðrum augum á náungann heldur en sjálfan sig.. sjá þyrni í augum annara en ekki bjálkann í sínu eigin....

say no more.............. ;)

Sent af layla kl [00:22] Komment [0]

Þriðjudagur 16. nóvember

hjálp!!!!!!!!!

Skooooo mig vantar alveg svakalega módel!!

Á morgun vantar mig módel í æfingu á "tískan í dag" (fyrirmynd úr tískublaði) REDDAÐIST!!! :D


fimmtudaginn vantar mig módel í 3x30 mín hraðfarðanir (þ.e. þrjár farðanir hjá þremur persónum, ss. skipst á módelum) Er ekki einhver gella sem vill fá þrjár útfærslur af förðun á einu kvöldi?... svona til gamans :P REDDAÐIST!!! :D

þriðjudaginn 23. nóv æfing fyrir próf KOMIÐ!! :D

miðvikudaginn 24. nóv æfing fyrir próf

fimmtudaginn 25. nóv æfing fyrir próf

mánudaginn 29. nóv æfing

þriðjudaginn 30. nóv próf, svarthvíta förðun KOMIÐ!!! :D

miðvikudaginn 01. des próf smoky KOMIÐ :D

fimmtudaginn 02. des próf tískan í dag... KOMIÐ :D

*andvarp* ef þið getið reddað mér stelpum sem módel.. þá væri það sko vel þegið :D:D:D:D

Sent af layla kl [23:24] Komment [0]

í fréttum var þetta helst....

Jæja dröslaði mér til læknis, vegna eyrnaverkjanna, og endaði á að fá einhver lyf sem eiga að losa mig við þennan óþverra. Dokki vildi meina að þetta væri eitthvað ofnæmistengt og út frá nefinu á mér.. hmms... á víst að vera dugleg að nota þetta steraspray sem ég gleymi alltaf að nota :P Ógeðslegur andskoti þetta eyrnavesen, alltaf eins að fá þvílíkar höggbylgjur í eyrun við öll hljóð.

Fór í próf í tímabilaförðun í gærkvöldi...Gekk bara ágætlega held ég (veit allavegana ekki betur). Held ég fái allavegana flottar myndir í möppuna mína þar sem mín mætti með ekta sixties bakgrunn... þ.e. veggfóður eins og var á sixties tímanum.

Annars dreymdi mig fáránlegan draum í fyrri nótt. Í draumnum var ég í magaminnkunar aðgerð (já...líkamsástandið eitthvað að plaga mig) og í þessari aðgerð var sko ekki notast við einhver örsmá göt á magann á mér.. nei þessi skurður náði barasta niður í ökkla!!!! já og hmmm fleira í þessum draum var fremur ógeðslegt... og ekki líkt þessari aðgerð, held ég sleppi nánari lýsingum.. úff.. ég fer sko beint í ræktina þegar skólanum lýkur!!!!!!!

ta ta...

Sent af layla kl [08:31] Komment [0]

Laugardagur 13. nóvember

ha??????? sagðir þú eitthvað? :/

Sjæse... heyri ekki hálfa heyrn. Síðustu daga þá hef ég verið með eins og stöðuga hellu og eitthvað vesen í eyrunum... finnst það bara ekki nóg til að drösla mér til læknis... Ætli ég tali ekki svakalega hátt á meðan ástandið er svona? Meina... ekki er á bætandi ;P

Sent af layla kl [21:09] Komment [1]

Föstudagur 12. nóvember

so tired...

Úff... orkan búin og ég nenni barasta engu. Mikið verður ljúft að klára skólann og geta dúllað sér við hitt og þetta á kvöldin. Hefur verið góð törn hjá mér síðustu mánuði minnst 13 tímar í vinnu og skóla á dag. Heldur betur annarsamur dagur í vinnunni í dag þar sem verið var að halda upp á tuttugu ára afmæli leikskólans og mikið um gesti og slíkt..... Í kvöld verður sko kúrt með bók, horft á Idolið (með börnunum auðvitað) og kannski byrjað á smá föndri.. Jahh nema það gerist sem ég býst fastlega við..... þ.e. að ég sofni snemma... miklu fyrr en ég ætla mér.

Vona að snjórinn haldist yfir helgina. Væri æðislegt að fara að renna á sleðum með krökkunum. Það er allavegana skrifað á óskalistann í huganum. Svo er stefnan tekin á það að skella sér á skauta um helgina. Vonandi að eitthvað verði úr því :P En já letin bíður og tíminn líður... *geyyyyysp* hafið það sem allra best yfir helgina...

ta ta

Sent af layla kl [20:05] Komment [0]

Þriðjudagur 9. nóvember

*hrollur*hrollur*hrooooolluuuuur*

*klór*klæj*klór*meiraklæj*ennþámeiraklór* úff eftir morguninn þá er mín búin að kóra sér annsi vel í kollinum *hrollur*. Mín mætti nottla í vinnuna og með börnin í för þar sem verkfallið er skollið aftur á. Jæja.. nóg með það... ég fer í minn kaffitíma og er hin rólegasta að borða mitt cherios þegar ein mamman kallar á mig og byður mig að koma og tala við sig... jú jú auðvitað fer ég að tala við hana. Þá segir hún... "sko ég er ekki viss hvað þetta er en það er eitthvað í hárinu á henni" segir hún og bendir á litlu dóttur sína. Ég skoða aðeins og kalla svo á deildarstjórann og við kíkjum betur á málið... jú jú.. þarna voru á ferðinni stórar og pattaralegar lýs!!! *hrollur* og auðvitað var farið í það að kemba liðinu.... Það er skemst að segja að við fundum lús í nokkrum litlum kollum

Ekkert smá ógeðslegt þetta lúsavesen *hroll*hroll*hroll* Nú er bara að kemba hár fjölskyldumeðlimanna......

Sent af layla kl [12:26] Komment [2]

Sunnudagur 7. nóvember

snill...brill... brill...

Var að farða ásamt fleirum fyrir unglist, eitthvað á milli 50-60 módel skildist okkur... en svo bættust alltaf fleiri við. Áttum að vera eitthvað yfir tíu að farða en mættum sex stk.. tvær fóru fljótlega heim svo við vorum fjórar vel sveittar með ömurlega aðstöðu til að farða við. Ég var áður búin að spyrja hvort það yrðu góðir stólar til að farða á og svarið sem ég fékk þá var já... svo þegar við mættum þá voru þetta lágir ömurlegir stólar og við sáum fram á að bakið á okkur yrði í klessu eftir fyrstu stelpurnar svo við sem áttum háa stóla hringdum og létum skutlast með stóla til okkar...... og þvílíkur munur. En já eftir stannslausa 5 og 1/2 tíma förðunartörn, án þess svo mikið sem komast á klóið þá vorum við fegnar því að geta sest aðeins niður, ánægðar með lokið verk :D. Var meira að segja spurð nokkrum sinnum hvort ég væri með nafnspjald... og það fyndna er að ég rak augun í nafnspjöld sem ég var að leika mér að gera fyrir stuttu og kippti þeim með mér þegar ég hljóp út heima...

En já.. þrælskemmtileg reynsla og góð æfing... höfðum þrælgaman af þessu öllu saman, þó svo að hinar hefðu margar hverjar beilað á þessu, ein ekki nennt meiru og önnur þurft að fara heim að kíkja á köttinn sinn sem var einn heima ... greyið kisi :P

En já vissuð þið að eldbökuðu pizzurnar hjá Rizzos eru bara geggjaðar!!!!!! og hvítlauksbrauðin... *smjatt* já... þar var sko endað í mat :P

Í dag verður ýmislegt gert með börnunum ;)...

Sent af layla kl [13:52] Komment [0]

Laugardagur 6. nóvember

hin skrítna ég......

Ef það er eitthvað sem mér leiðist, þá er það að leita mér að fötum. Fyrir það fyrsta þá er ég með svo óskaplega plain fatasmekk (verður helst að vera einlitt, ekki með miklu blúndu eða glansskrauti helst barasta engu sollis), og svo er ég oftast með eitthvað ákveðið í huga sem jafnvel er barasta ekki til, þannig að það kemur lítið annað til greina :P.

Annars var nú kominn góður tími á mig að fata mig upp ef ég ætlaði ekki að þurfa að standa á brókinni einni saman þegar eitthvað væri að gerast. Kíkti meira að segja á skó heildsölu þar sem ég verslaði þrælfína gönguskó á börnin og töff rússskinnsstígvél á mig (þó ekki háhælaða) sá fullt af öðrum skóm sem mig langaði í en ákvað að bíða með frekari kaup til betri tíma :P

Komst svo að því í gærkvöldi að ég er lélegasti djammari ever! Fór hlaðin áfengi og skemmtilegheitum á staffadjamm/mat og kom með megnið af því heim til baka... þar sem mín nennti ekki að djamma og var komin heim um miðnætti!!! HALLÓ!!! ég er nú ekki svo gömul!!!!!!! hrmpff..... held að vísu að félagsskapurinn hafi spilað mikið inní... ekki alveg fólkið sem mig langar að djamma með *hóst* æji þetta var kannski illa sagt, en satt þó...á allavegana heilan helling af áfengi ef mig skyndi langa á djamm einhverja helgina.

En já.. ætli ég fari ekki að finna förðunardótaríið til.... því í dag er ég ásamt fleirum að fara að farða á milli 50 og 60 stelpur, varla að ég nenni því...

adios amigos :P

Sent af layla kl [14:38] Komment [3]

Þriðjudagur 2. nóvember

hitt og þetta... .aðallega... þetta

Úff er búin að sitja sveitt yfir því að velja mér mynd til að fá stækkaða af módelinu sem ég var með í NoName keppninni sem var fyrir stuttu... Held ég sé búin að komast að niðurstöðu, og vona að það sé besta myndin :P Spennandi að fá fyrstu pro myndina í möppuna mína :D

Annars er ég að berjast við einhvern leiðindar vírus í tölvunni minni :s búin að prófa ýmis vírusvarnarforrit en eitthvað gengur þetta brösuglega hjá mér *dæs*

Eitthvað þykist ég vera að fara að jólaföndrast, börnin ætla að fara að fönda voða sætar jólakúlur á jólatréð (ekki seinna vænna) og ég þykist (já þykist) ætla að sauma jólasokka til að börnin fái nú eitthvað frá jóla (ætli það sé nóg að hengja upp plastpokann utan af föndrinu?) :P

Sent af layla kl [00:27] Komment [0]