Föstudagur 31. desember

*bigeyes*

Jæja þá er síðasti dagur þessa árs runninn upp... síðasti dagur ársins sem ég varð tuttuogeitthvað... næst er það... *hux* æji... hvernig var það? (þurfið ekki að svara :P)

En já það er sko búið að versla góóóóóóðan slatta af skemmtilegum bombum :P og mín fær að skjóta helling upp í kvöld :D Er búin að búa til áramóta ís... eða öllu heldur ísbombu sem á að vera eftirrétturinn á eftir kalkúninum.... sem btw er með beeeeeeeestu fyllingu sem ég hef smakkað *slef* Nú á bara eftir að kaupa nokkrar "þyrlur/UFO" sem búið er að lofa afkvæmunum (eins gott að standa við það), útbúa ávaxtasalat með kalkúninum (eins gott að það lendi ekki á gólfinu eins og á aðfangadag) og gera óhugnarlega gott osta salat sem ég hef vitað um... sem á að vera síðar um kvöldið með einhverju gotteríi.... djíhh eins gott að árskortið í ræktina er komið í höfn, get varla beðið eftir því að fara að púla :P

En já.. HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST Í KVÖLD (SEM OG ALLTAF) GANGIÐ HÆGT UM GLEÐINNAR DYR OG ALLT ÞAÐ... (JÁ ÉG VEIT... ÞIÐ ELSKIÐ HÁSTAFI :P)

Sent af layla kl [02:42] Komment [0]

Fimmtudagur 30. desember

*tilhlökkun*

Jæja þá styttist í það að ég fái "jólagjöfina" sem ég ákvað að gefa sjálfri mér :P Sem er nýtt árskort í líkamsrækt. Ég elska að fara í ræktina og púla vel og lengi, en hef ekki komist í það á meðan ég var í skólanum auk þess sem ég var ekki alveg sátt við stöðina sem sem ég var á þá. Núna hef ég ákveðið að prófa að æfa í World class í laugum og hlakka mikið til að prófa aðstöðuna þar, þar sem ég hef heyrt margt gott af Laugum frá þeim sem ég þekki og æfa þar. Líklegast munum við Lára skella okkur svo í einkaþjálfun saman. Semsagt mikið gaman.... mikið fjör :D:D:D:D

Sent af layla kl [00:04] Komment [2]

Þriðjudagur 28. desember

juuuuuuuuuust loooooooovee it!!!1

Elska lyktina sem kemur þegar flugeldar, stjörnuljós og tertur eru tendraðar. Eeeeeelska púðurlyktina og það að fá að sprengja. Ohh ég bara dýrka ljósadýrðina og stemmninguna :P Fór í kvöld og horfði á flugeldasýninguna sem var við Perluna, í fyrsta skiptið fór ég ekki upp að Perlunni heldur fór í í Kópavoginn og horfði beint yfir að Perlunni. En þó svo þetta væri ósköp fallegt úr fjarlægð þá fannst mér allt of lítill hávaði sem fylgdi og miklu minni stemmning að horfa á ljósadýrðina svona úr fjarlægð. Kannski ekki skrítið þar sem ég hef alltaf verið fremur sprengióð. Í æsku náði ég nú að fara mér nokkrum sinnum á voða við fikt og slasa mig smávegis, eins gott að börnin mín leiki það ekki eftir *blístr* En já.. get varla beðið eftir því að versla mér smávegis til að sprengja upp :P meira að segja börnin eru komin með sér skammt hvert fyrir sig.... en það var nú ekki ég sem sá fyrir því :P

En já.. er víst í fríi frá vinnu á morgun og ætla að kíkja á smá útsölu í Debenhams, athuga hvort ég finni ekki einhverja leppa á börnin :)

kv.... Sóla skotglaða :P

Sent af layla kl [23:52] Komment [0]

Mánudagur 27. desember

Hin langa helgi

Jæja..þá er jólahelgin að líða undir lok. Manni finnst nú verða ósköp lítið úr hátíðunum þegar þær verða ekki mikið meira en þriggja daga helgi. Er annars búin að hafa það ósköp rólegt og notalegt, kvarta allavegana ekki. Hef lítið þurft að hafa fyrir eldamennsku þessa dagana þar sem við höfum verið í mat hjá mömmu og pabba bæði á aðfangadag og jóladag. Held að hér heima hafi verið sett met í mandarínuáti. En það er eitthvað sem verður alltaf að vera til í miklu magni á þessum tíma :P

En já aftur í föstu rútínuna á morgun í vinnunni, vonandi verður dagurinn í rólegra lagi :P má svosem búast við því að það verði slatti af börnum í fríi þennan fyrsta dag eftir jólahátíðarnar.

Hafið það sem allra best.

Sóla :)

Sent af layla kl [00:12] Komment [0]

Laugardagur 25. desember

Gleðilega hátíð....

Mig langar til að óska þessum örfáu hræðum sem lesa bloggið mitt ennþá.. gleðilegrar hátíðar. Hafið það sem allra best. :)

Sent af layla kl [00:30] Komment [5]

Miðvikudagur 22. desember

ólykt.......

Á morgun mun ein versta lykt sem ég hef fundið liggja í hverjum krók og kima á landinu *hrollur* held að lyktin fæli mig alveg frá því að smakka þessa margumtöluðu skötu. Jess æm a tjikken... :P

Sent af layla kl [17:42] Komment [3]

Þriðjudagur 21. desember

ó mæ.... ó mæ!!

*Ræskj* hefði átt að röfla meira um það hve litlu jólaskapi ég væri í..... eftir daginn í dag þá held ég að ég verði barasta að viðurkenna það að það er nú kominn smá jólafílingur í mig. Fór í Rúmfatalagerinn að kaupa hirslur undir leikföng barnanna (verið að flokka, henda og endurhanna) og sá þar ýmislegt jóladót á 50% afslætti. Mín rölti út með helling af jólaseríum, dúk undir jólatréð, englatopp á jólatréð, ásamt svo hirslunum. Í Ikea var svo verslað nokkuð af jólakúlum og loks þegar ég var að skoða nýjann baðvask í Byko þá þurfti endilega að vera heljarinnar útsala á þessu líka geggjaða jóladóti *ræskj* og jú jú... enn og aftur rölti ég út hlaðin jóladótaríi, m.a. tveimur krúttlegum englum og tvo dansandi og syngjandi snjókarla. Úff eins gott að ég haldi mig frá öllum sovna útsölum á næstunni. Annars réttlæti ég þetta þannig að ég kaupi nú vanalega allt mitt jóladót á útsölum. Reynið svo ekki að skemma þetta fyrir mér!!! :P

Annars er ég hérna með stíflað nef, hnerra og þrútin augu (ofnæmi eða eitthvað) og rembist við að taka til og skreyta með jóladótaríinu, nú skal sko gert jólalegt :P

kveð að sinni.. ta ta..

Sent af layla kl [01:37] Komment [2]

Laugardagur 18. desember

Þú.. um þig... frá þér... til þín...

hmmm eða var það.. ég... um mig... frá mér... til mín? :P

Hér uppi á hálendinu hefur svosem lítið verið að gerast... Er jú búin að komast illilega að því að ég er engan vegin að komast í jólaskapið, er farin að skammast mín illilega fyrir að vera ekki búin að skreyta neitt. Annars hef ég tekið eftir því hérna uppi á hálendinu mínu að það er óvenju lítið um jólaljós og skreytingar. Hvað ætli það sé sem valdi því?

Er þó búin að kaupa flestar jólagjafirnar, því var rympað af all snögglega á föstudeginum (í gær s.s) á núna bara einn frændann eftir og svo börnin mín. Jahh er að vísu búin að hóta börnunum því að þau fái nú bara mjúka pakka ef þau taki ekki til í herbergjunum (við mikla kátínu yngsta skottsins sem vill bara föt í jólagjöf).

Í kvöld var svo farið í góðum félagsskap á jólahlaðborð á Hereford steikhús. Maturinn var svona la la og vorum við nú sammála um það að verðið var allt of hátt miðað við gæði, jafnast sko ekkert á við jólahlaðborð Argentínu. Að vísu vildu sumir meina að jólahlaðborðið á hótel Örk væri þrælgott líka.. spörning um að prófa það við tækifæri.

En já hin gamla ég var nottla búin að sækja börnin (sem vildu nú fá að gista hjá ömmu og afa) og komin heim um kl 21.30 södd og sæl og til í leti...

á morgun er það svo.. helv.. tiltektin!

ta ta..

Sent af layla kl [23:57] Komment [0]

Fimmtudagur 16. desember

jóla hvað???? og sitthvað fleira...

hmms... ekki beint merkilegt sem ég hef að blogga um þessa dagana frekar en fyrri daga. Jú "fékk" í dag þessa fínu loftpressu þannig að nú vantar mig bara að finna húsnæði fyrir brúnkudæmið og fleira.

Annars er ég barasta alls ekki að nenna þessu jóla standi.. nenni ekki að baka (ekki einu sinni sörurnar sem aldrei hefur mátt sleppa) , taka til (úff á einhver jarðýtu?) , versla jólagjafirnar (vanalega löngu búin að því á þessum tíma), er barasta ekkert að finna fyrir neinni jólagleði eða slíku. Ég sem vanalega elska jólalög... gleymi að hlusta á þau... jahh eða forðast.. hvort ætli það sé?

Annars er ég nú að reyna að bæta aðeins úr þessu anti jólastandi, búin að kaupa jólafötin á börnin og er búin með nokkrar jólagjafir, keypti jólakort og frímerki í vikunni, spurning hvort eða hvenær þau fara í póst. :P


æji jæja... er það furða ég er nú soddan jólasveinn :P

Sent af layla kl [21:55] Komment [3]

Sunnudagur 12. desember

eiginhandaráritanir...

Sonur minn fór ásamt yngri systur sinni í röð annara barna til að fá eiginhandaráritun hjá Jónsa í svörtum fötum. Jú jú eiginhandaráritunina fékk hann og gott betur. Flestir komu með sínar eiginhandaráritanir á sérstöku blaði með mynd af hljómsveitinni á.........eeeeen minn maður kom með eiginhandaráritanirnar sínar á GEISLADISK þar sem honum fannst það miklu flottara. Kauði búinn að fá útskýringar á því hversvegna hann megi ekki endurtaka þetta þar sem kaupa þurfti diskinn...

Sent af layla kl [19:02] Komment [3]

Laugardagur 11. desember

jamms.....

Jæja þá er það komið á hreint.. ég fékk 9.0 í heildareinkunn í skólanum. Það sem dró mig niður var það að ég lét ekki þrjár glósur í vinnubókina mína (náði ekki að prenta þær út í tíma vegna tæknilegra örðuleika) og svo það að ég barasta gleymdi því að það ætti að setja myndir með ritgerðinni sem ég gerði. En það verður bara að hafa það þó ég hafi klúðrað þessum þáttum.

Fórum svo út að borða á Tapas og hmm verð nú að segja það að ég hefði frekar viljað fara og fá mér feitan hammara heldur en að borga þennan pening fyrir þessa "óvissumáltíð" en samt ágætt svona þrátt fyrir allt.. lagði samt ekki í það að smakka á lambakjöti í lakkríssósu... hljómaði barasta þannig að mig langaði hreint ekki að prófa...

en já.. orðin lúin eftir jólagjafa og jólafata leiðangur svo ég kveð að sinni...

ta ta

Sent af layla kl [19:34] Komment [4]

Föstudagur 10. desember

ó bojjjj....

Jæja í kvöld er kvöldið sem segir til um það hvernig mér gekk í prófunum. Fæ prófmyndirnar (teknar af ljósmynara) og einkunnirnar í hendurnar og get farið að starfa meira við þetta ef ég vil. Kláraði einnig námskeið í airbrushbrúnkumeðferð sem ég er að koma mér upp græjum og aðstöðu til að hafa. Nú er bara að hefjast handa og lita bæinn brúnann :P

Annars var ég að komast að því að jólin eru bara rétt ókomin og ég ekki búin að gera neitt!!! Þá meina ég EKKI NEITT!!! Aldrei þessu vant eru jólagjafirnar til frændsystkinanna og annarra fjölskyldumeðlima ekki tilbúnar, jólafötin á börnin eftir, á eftir að þrífa íbúðina og skreyta... og fleira í þeim dúr. En jólin koma víst þó svo ég sé ekki tilbúin fyrir þau.. bara málið að finna hinn rétta jólaanda, annars skiptir þetta allt saman börnin meira máli heldur en mig því jólinn eru tími barnanna, eða öllu heldur fjölskyldunnar til að eiga góðar stundir saman við gleði og leik, rólegheit og lestur.

já... jólin koma... jólin koma.............

Sent af layla kl [13:20] Komment [1]

Þriðjudagur 7. desember

brúnka.. eður ey...

Jæja þá styttist í það að ég fái einkunnirnar og myndirnar frá prófunum, ásamt einkunn fyrir ritgerðina og vinnumöppuna. Einhvernvegin er ég nú ekkert voðalega bjartsýn á háa einkunn, en hvaa æfingin skapar meistarann :P En já svo virðist vera að það eigi ekki að vera einfalt fyrir mig að komast á námskeið í airbrushbrúnkumeðferð! Þar sem námskeiðið átti að vera síðasta fimmtudag en var fært fram á mánudag. Í gær var svo hringt í mig og látið mig vita að námskeiðið hefði enn verið fært og ekki víst hvort það yrði á miðvikudag eða fimmtudag. Jæja... ekkert við því að gera, hringdi í dag til að tékka á stöðunni og fékk að heyra það frá eiganandum að námskeiðið yrði á fimmtudagskvöldið, ég lét nottla módelið mitt vita af því...Þurfti að fá frekari upplýsingar sem mér hafði láðst að tékka á og hringdi aftur, talaði þar við eina sem og sagði mér að námskeiðið yrði á miðvikudagskvöldið (hún hafði greinilega enga vitneskju um það að ég hefði hringt og tékkað á því). Spurning hvort frekari breytingar og færslur verði á þessu námskeiði..

Annars er meiningin að koma sér upp búnaði til að gera brúnkumeðferðir, en það verður víst að hafa aðstöðu í slíkt svo þetta á allt eftir að koma í ljós með tímanum.

en já.. nóg röfl í bili.. ta ta

Sent af layla kl [21:34] Komment [0]

Sunnudagur 5. desember

stelpur....stelpur...

Upp á síðkastið hef ég verið að safna mér upp þokkalegum lager af undirfötum, skartgripum og förðunarvörum til að hafa til sölu þegar ég kem mér upp aðstöðu til förðunar (ásamt fleirum líklega). Er komin með slatta og þónokkuð væntanlegt á næstunni, og enn verið að skoða hvort eitthvað sé sniðugt á boðstólnum á góðu verði sem henti þessari iðju. Þið stelpur sem lesið þetta (ef einhverjar eru) komið endilega með tillögur um það sem sniðugt væri að hafa á boðstólnum. Ætlunin er að setja upp aðstöðu til að taka farðanir, halda förðunarnámskeið, brúnkumeðferðir jafnvel naglaásetningar og fleira í þeim dúr :)

Auglýsi svo enn og aftur eftir fórnarlambi í brúnkumeðferð annaðkvöld (brúnkuefnið sem notað er heitir fake bake og nota margar þekktar stjörnur þetta efni í Hollywood, t.d. Madonna, JLo og fleiri, skilur ekki eftir flekki og gefur svakalega flottan eðlilegan lit) og annað sem módel í airbrush förðun ;)

Sent af layla kl [19:58] Komment [6]

Laugardagur 4. desember

jóla... jóla

Jeijj afrekaði að setja upp heila 35 ljósa seríu :P hehe... jahh eftir mikið suð frá börnunum, þannig að núna er komin upp þessi fína sería og eitt hreindýraljós inni í barnaherbergi... geri aðrir betur :P. Hreint óþolandi hvað ég hef "af jólast" síðustu árin :( ég sem alltaf var með allt jóla jóla *dæs* það er greinilega annaðhvort eða......

Sent af layla kl [23:13] Komment [0]

should I bore you to death?

Elsku dagbók
Kíkti í jólagjafaleiðangur... ásamt smá verslunarleiðangri fyrir sjálfa mig :P Kíkti á smá uppákomu í uppáhaldsversluninni minni (MaC í Debenhams) þar sem verið var að safna fyrir eyðnismituð börn í afríku (minnir að það hafi verið í afríku) og tæmdum við börnin allt klink úr vösunum (sem var nú slatti) og fékk ég að heyra það að ég ætti nú að endilega að eignast fleiri börn þar sem mér hefði tekist svo vel upp með þessi eintök, og svo væri ég greinilega svo góð móðir! uhh hvernig átti konan að sjá það á þessum tímá? Meina ég gæti allt eins verið hin góða mamma út á við og algjört skass við börnin þegar enginn sér til!

Anyway eftir verslunarferðina góðu var komið við á læknavaktinni með Áróru, vorum leystar út með lyfseðli... gaman gaman... Ég þoli ekki þegar ég fer í apótekið og þarf að leysa út eitthvað smotterí og þessi pínkulitla túpa sem varla var sjáanleg.. kostar morðfjár!!

Skelltum okkur bara á McDonalds og átum kvöldmatinn snemma..... svon nú get ég bara legið í leti og haft það kósí án þess að spá í eldamennsku :P Langar svolítið að kíkja út í kvöld, efast samt um að svo verði. Virðist nefnilega aldrei koma mér á neitt djamm, aðeins hugsa út í það :/

P.s. ég lofa að vera þæg og góð í desember svo ég fái eitthvað gott í skóinn....

Sent af layla kl [18:01] Komment [0]

Föstudagur 3. desember

þá er því lokið............

jeijjjj... er búin með öll prófin. Rumpaði þessu af á miðvikudagskvöldið, tók þá tvö próf í röð í stað þess að taka annað prófið snemma á laugardagsmorguninn.. valdi sko frekar að sofa út þá :P hehe.. Held að þetta hafði barasta gengið allt í lagi svona fyrir utan smá vandamál eins og gerviaugnhár sem vildu enganvegin festast, grátandi módel, og ljósabekkjaroða :P hehehe Kemur allavegana í ljós eftir viku hvernig ég hef staðið mig, og hlakkar mig nú mest til þess að sjá allar myndirnar sem ljósmyndarinn tók af prófmódelunum mínum :P verður fróðlegt og skemmtilegt að sjá :) Er búin að skrá mig á smá aukanámskeið í airbrushförðun og brúnkumeðferð. Verður gaman að kynnast því, spurning um að fara að finna sér módel í brúnkuna... er einhver sem býður sig fram? hehe..

En já.. ég ætlaði víst snemma að sofa í kvöld *hóst* svo það er ekki seinna vænna að koma sér í bólið... gn alles

Sent af layla kl [01:54] Komment [2]