Fimmtudagur 27. janúar

*krossafingur*

úff einhver hálsbólga að gera vart við sig og einnig einhver hausverkur. Vona að ég sé nú ekki að fá flenskuna, hún byrjar einmitt á hálsbólgu :s helmingur starfsfólksins í vinnunni búinn að liggja og slatti að leggjast. Og svo krakkagreyin búin að liggja veik í hrönnum.

Annars fór ég í foreldraviðtöl í morgun og fékk að heyra það að ég á svo ótrúlega yndisleg og vel gerð börn :D Iðin, ljúf, kurteis, og svo fram eftir götum... ekki slæmt það ;) Vissi þetta svosem en alltaf gaman að heyra aðra segja þetta :P Fór svo og púlaði vel og lengi í ræktinni, eins gott að ég verði ekki veik, þá kemst ég ekki í ræktina mína!!!!!!!!!

En jæja... góða nótt alles..

Sent af layla kl [01:32] Komment [2]

Sunnudagur 23. janúar

Það er alveg ótrúlega fyndið....

Að vera á fullu að púla í ræktinni og gaurinn við hliðina á manni stynur eins og hann sé við það að fá fullnægingu!! Meina ok stundum koma smá stunur frá fólki þegar það reynir vel á en WOW hvað það er erfitt að halda svipnum alvarlegum þegar þessi hljóð heyrast frá gaurnum í næsta tæki..

Annars gengur mér bara vel í ræktinni, enda finnst mér ómissandi að fara og púla vel, maður kemur svo afslappaður heim á eftir :) Finn þvílíkan mun á þolinu hjá mér og líkaminn er allur að styrkjast. 4 kg hafa kvatt frá því í byrjun mánaðarinns og ég er nú bara sátt við það. Byrjaði að taka Betagen sem inniheldur kreatin sem á að þyngja mann til að byrja með (2kg+) svo að kannski væru kg fleiri sem hefðu kvatt ef ég væri ekki að taka Betagenið. Ætla allavegana að halda ótrauð áfram og vitið til það verður allt önnur Sóla sem sést að þessu ári loknu ;)

Sent af layla kl [21:18] Komment [1]

Laugardagur 22. janúar

pæjupartý, Ædöl og vængbrotin mamma

Er búin að vera hálf vængbrotin í kvöld því mér finnst mikið vanta þegar ég er ekki með alla krakkana hjá mér eins og ég er vön. Aron fór í heimsókn yfir nótt til Yngva frænda síns og mig langaði helst til að fara að sækja hann þegar leið á kvöldið þar sem ég var farin að sakna hans all mikið :/ en ætli það sé ekki kominn tími á það að ég slaki aðeins á taumnum svona af og til allavegana. En já fyrst stráksi var í burtu þá héldum við stelpurnar pæjupartý, :P sátum saman undir teppi, og horfðum á Idol. Þær fengu mac donalds, snakk og klaka og við höfðum það voða kósí.

Var nú bara sátt við niðurstöðu Idolsins, greyið Vala var nú barasta ekki að gera sitt. Samt er ég svo kvikindisleg að vilja að Margrét hefði dottið úr, hún bara fer í mínar fínustu. Annars átti nú Brynja skilið að vera á botninum með Völu og Ylfu (eða heitir hún það ekki?) æji ég er nú enginn svakalegur Idolsnillingur, við vorum bara að spá aðeins í þetta við mæðgurnar :P

En já, best að koma sér í bælið svo maður verði nú hress í ræktinni á morgun ;)

Sent af layla kl [02:18] Komment [2]

Föstudagur 21. janúar

Tekið vel á.......

Úff.. fór í ræktina í kvöld sem og önnur kvöld og held ég hafi barasta aldrei eða sjaldan tekið eins svakalega á :P Er barasta svakalega stolt af sjálfri mér, enda hef ég verið rosalega dugleg að æfa. Finnst svakalega gott að enda daginn á því að púla vel og koma svo endurnærð heim. Og ekki skemmir fyrir ef ég styrkist eitthvað og eitt og eitt kíló týnist, sjáum nú til með hvernig það fer. Ætla ekki að vera að einblína á nein kíló enda hef ég tekið þá ákvörðun að vera ekkert að fara allt of oft á viktina, heldur taka meira mark á líðaninni og því hvort fötin verði rýmri hér og þar. Er enn að bíða eftir því að Lára skelli sér í ræktina með mér. Ekki verra að hafa æfingarfélaga af og til þó svo að mér finnist nú líka voðalega notalegt að æfa ein í mínum eigin heimi :P Svo er ég enn að láta mig dreyma um það að komast til einkaþjálfara eins og i einn mánuð eða svo. Aldrei að vita nema ég gefi sjálfri mér það í afmælisgjöf að komast í slíkt í febrúar :P

En já í lokin... stelpur... eigið þið svona í dótakassanum ykkar? :P

Sent af layla kl [00:43] Komment [3]

Miðvikudagur 19. janúar

af flensu og fleiru áhugaverðu... *ræskj*

Jæja dagur 5 í flensu á þessu heimili. Aron fór loksins í skólann í morgun en Aníta er víst ekkert á leiðinni út, enda rauk hitinn aftur upp hjá henni og mér var fyrirskipað af lækni að halda henni inni helst fram á mánudag! Jamm svona er þetta að vera með börn :P

Annars er ég að reyna að vera ógeðslega dugleg í heilsuátaki :P Er farin að finna þokkalegan mun, en æji er það ekki alltaf þannig að mikill vill meira? ;) Bíð allavegana alltaf spennt eftir því að komast í ræktina. Elska að fá tíma fyrir sjálfa mig, puða og púla án þess að þurfa að spá í nokkru öðru. Er búin að ákveða það að þegar ég er búin að ná fyrsta áfanganum sem er voandi um mánaðarmótin feb-mars, þá ætla ég að verðlauna mig með einhverju dekri :P Já fyrir hvern áfanga verður eitthvað skemmtilegt dekur ;) En hmmm talandi um mánaðarmótin feb-mars þá er það mánaðarmótin sem ég á afmæli og einnig hætti ég í vinnunni þau mánaðarmót og byrja viku síðar í skólanum (vonandi) úff... segið svo að það gerist ekkert hjá mér :P

En já.. komið að dóttlunni að fara í tölvuna... komast í Boga blýant eða Glóa geimveru á lestrareyju.

Sent af layla kl [17:12] Komment [0]

Mánudagur 17. janúar

feita ég og fleira...

Þar sem ég var að púla í ræktinni þá fékk ég nægan tíma til að hugsa. Ég hef af vissum nákomnum aðila alltaf verið talin feit, jafnvel þegar ég var unglingur og í kjörþyngd. Alltaf var ég sú feita. Rétt framyfir tvítugt var ég í fínu formi, allt þar til fyrstu börnin mín fæddust. Þá fékk ég gjöf í kjölfarið sem voru 20 kg. Læknirinn minn vildi meina að um hormónabrenglun væri að ræða. Þegar næsta barn fæddist.. þá fór á sama veg, á einu bretti bætti ég á mig 20 kg eftir meðgönguna, en ekki á meðgöngu eins og flestir. Síðan þá hef ég verið FEIT, og auðvitað er ég ekkert voðalega sæl með það. En þegar maður er orðin feitur þá er oft erfitt að koma sér af stað í ræktina, breyta lífsstílnum og bara einfaldlega gera það sem gera þarf til að brjótast úr viðjum fitubollunnar. En ég veit líka að ef ég er dugleg þá get ég vel náð þessu af mér hægt og rólega. En þó svo að það myndi gerast þá væri ég enn sú feita í fjölskyldunni. Jú ætli ég sé ekki feit að upplagi og alltaf að "falla" í sama farið og byrja upp á nýtt í átaki og þ.h. Eldri dóttir mín er mjög lík mér í líkamsgerð, ætli það eigi eftir að liggja fyrir henni í framtíðinni að vera talin sú feita? Ekki ef ég fæ einhverju um það ráðið, en hún er eins og hún er og ég get ekki breytt því. En ég get stuðlað að því að hún hreyfi sig mikið, sem hún gerir. En samt er hún talin feit af sumum börnum.... sumt fólk er fífl!!

Annað sem ég fór að spá í í ræktinni var að mig langar nú svolítið að halda upp á afmælið mitt í lok næsta mánaðar. Væri gaman að leigja tvo sumarbústaði og bjóða foreldrum, systkinum og systkinabörnum þangað. En svo fór ég að hugsa aðeins lengra og sá að ég er bara að rugluð að láta mig dreyma um þetta. Ætli ég geri nokkuð, nema kannski bjóða örfáum vinum, jahh eða bara akkúrat ekkert.... enda var þetta bara örlítil hugrenning.

En í lokin.... hafið þið smakkað frosin vínber? Jömmí.. ekkert smá ferskt og gott :D En já ég er alltaf að bíða eftir að Lára gell drulli sér í ræktina með mér....svona áfram stelpa....komasoo!!!!!

Sent af layla kl [23:53] Komment [3]

Íslenskar konur fremstar í flokki yfir titraraeign

Hlutfallslega fleiri íslenskar konur eiga titrara en konur annarra þjóða - eða 52% - samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegrar kynlífsrannsóknar sem 350.000 manns í 41 landi tók þátt í.

Norska blaðið Dagsavisen segir um rannsóknina, sem gerð var fyrir tilstilli smokkaframleiðandans Durex, að „víbrator-flokkurinn“ sé sá eini sem norskar konur standi sig eitthvað í; einungis frænkur þeirra á Íslandi eigi fleiri „leikföng“ af þessu tagi í náttborðum sínum.

Helmingur norskra kvenna á titrara - 50%

(brot úr frétt á mbl.is)

Sent af layla kl [17:53] Komment [3]

Sunnudagur 16. janúar

Ef þið mynduð fá tvær óskir uppfylltar...

til að breyta útliti ykkar.. Hver yrði þá breytingin?

Sjálf myndi ég velja það að vera lægri (skrítið) og svo minna nef (væri nottla til í að vera grennri en það er mitt að breyta því ;)

hehe bara svona smá hugleiðing, því að það virðist vera að maður sé aldrei ánægður með sjálfan sig... alltaf hægt að finna eitthvað að... ef ekki þetta.. þá hitt ;)

Sent af layla kl [15:54] Komment [4]

Laugardagur 15. janúar

:P :Þ :p :þ

Ótrúlegt en satt.. .ég kíkti aðeins út á föstudagskvöldið, en auðvitað var ég farin að geyspa og dreif mig heim svona þegar djammið hefði átt að vera í hámarki... hafði kannski áhrif að það voru allir ósköp rólegir eitthvað.

Skellti mér auðvitað í ræktina í dag og púlaði vel og lengi :D hló innra með mér að nokkrum fyndum persónum þarna inni, einn æfir alltaf í blárri skyrtu (svona jakkafataskyrtu) annar í níðþröngum síðum hjólabuxum (*hrollur*), eldri konurnar eru enn í þröngu spandex sokkabuxunum og fjólubláu/bleiku spandex "sundbolunum" utanyfir (svona Jane Fonda dæmi) og fleira gæti ég nú talið upp... bara nenni því ekki, auðvitað er ég langflottust í pastellitaða krumpugallanum mínum.... NEMA HVAÐ?? :P. Eitt fannst mér hryllilega fyndið, það er að sjá Audda (fyrrum Popptv gaur) vælandi á hlaupabrettinu því að það var of erfitt að ganga rösklega í góðum halla... meira að segja ég fitubollan sjálf sló honum margfalt við, enda endaði með því að einkaþjálfarinn hans tók hann fljótlega af brettinu til að losna við vælið. Eins gott að ekki hafi verið að taka upp eitthvað atriði fyrir þátt... því að ef svo væri þá væri ég rauðfjólublá af áreynslu..í sviðsljósinu... mjög svo sexy *ræskj*

Stráksinn minn átti að fara að keppa í frjálsum á morgun, en greyið er orðinn veikur og kemst því ekkert. Held að sú styttri sé eitthvað að herma eftir honum, allavegana er ekkert svakalega gott hljóðið í henni.

En já... þannig var það... og hana nú!

Sent af layla kl [23:55] Komment [0]

Föstudagur 14. janúar

*geysp*

Jæja...enn einn dagurinn að lokum kominn og ég hef engar fréttir að færa. Er búin að vera ótrúlega dugleg í ræktinni *remb* enda finnst mér þetta svo svakalega gaman :P Smá business er í bígerð, ekkert stórt en verður eflaust gaman að sjá hvernig mun ganga.

Annars er stefnan að kíkja út annaðkvöld, eitthvað sem gerist nú ekki oft núorðið enda kegglingin ég orðin hund gömul og hrörleg. En það er allt annar handleggur.

ltr alles ;)

Sent af layla kl [00:15] Komment [0]

Þriðjudagur 11. janúar

damm damm damm dararaammm..

Það er ein spurning sem ég hef verið að fá óþarflega oft upp á síðkastið. Hún er "hvað langar þig í afmælisgjöf" málið er... að ef ég væri að verða 29 eða eitthvað slíkt þá fengi ég ekki þessa spurningu :/ Finnst þetta sko ekkert fyndið, liggur við að ég sé komin í smá aldurskrísu *ræskj* Anyway þá hef ég hvort eð er ekki glóru hvað mig langar í í afmælisgjöf, alls enga! Eins gott að fara að leggja höfuðið í bleyti.

Annars líst fólki mis vel á námið sem ég er á leiðinni í. En þannig er það bara og skítt með það. Ekki er ég að læra fyrir aðra, heldur eingöngu fyrir sjálfa mig og hana nú ;) Pabbi gamli er nú voðalega áhugasamur og vill allt fyrir mig gera til að styðja mig í þessu. Fínt að fá klapp á bak og smá áhuga, meira þarf ég ekki. Restina skal ég sjá um. Hann sagðist nú hafa verið að segja "kvikmyndaheiminum" á Íslandi frá mér :P hehehe bara sætt hjá pabba gamla :)

En jamm og jæja ltr

Sent af layla kl [01:02] Komment [3]

spáð og spekúlerað...

Heyrði í einni sem var með mér í förðunarskólanum, hún vill endilega að við förum að taka að okkur farðanir og námskeið saman. Lofaði henni að hugsa málið og við ætlum að hittast og spá í þetta.

Sent af layla kl [00:45] Komment [0]

Laugardagur 8. janúar

óskalistinn...

Að sumu leiti er ég eins og börnin, mig langar í svo ótal margt og að gera ótal margt. Að vísu hef ég verið dugleg upp á síðkastið (síðasta hálfa árið) að láta suma af þessum "draumum" mínum rætast. Til dæmis sagði ég loksins upp í vinnunni minni, eitthvað sem mig hefur langað til að gera leeeeeeeeeeeengi. Fór í förðunarnám sem mig hafði langaði til í mörg ár. Keypti mér nýtt árskort í ræktina (Laugar). Er búin að skrá mig í meira nám (hef lengi langað til að fara að læra eitthvað, "verða eitthvað".

en já svo er margt smærra sem mig langar til að gera bara helst núna... *ræskj*

t.d. langar mig..

..til þess að fara í klippingu og litun (kominn tími á yfirhalningu)
..til að fá mér steyptar neglur (langar að verða soldið kvenlegri :P)
..til að fara í einkaþjálfun (svona til að fá enn meira aðhald og aga...en djöhh allt of dýrt)
..til að kaupa mér fullt af fötum (það er orðið þekkt að ég er mesti lúðinn í bænum, á engin föt sem talist geta flott eða þokkaleg)
..til að fara á námskeið í airbrushförðun hjá Supernova (*dæs* of dýrt í bili)
..til að koma mér upp vinnuaðstöðu
..til að fara til útlanda með börnin (djöhh væri gaman að eyða næsta afmæli t.d. í köben :P)
..til að gera svo ótal margt en það tekur bara allt of langan tíma að telja það allt upp :P

Sent af layla kl [22:38] Komment [0]

Föstudagur 7. janúar

*svitn*

Djöhh hvað ég er dugleg :P skellti mér í ræktina eftir vinnu og púlaði vel, krakkarnir voru í gæslunni á meðan. Fórum svo á Mac Donalds (já nú hugsið þið... já já beint úr ræktinni og á junk stað) keypti þar þrjú barnabox, brunaði í búð og keypti mér kjúllabringur, grænmeti og svo að lokum ávaxtasalat. Flott að skella kjúllabringu í George Forman grillið, skella svo grænmetinu á í lokin og voila... þessi fíni matur kominn :P og hollur í þokkabót ;) í eftir mat fékk ég svo ávaxtasalatið :D

Annars fékk ég í dag fullt af fæðubótaefnum, á eftir að komast að því hvernig þetta allt virkar. Er hálf ringluð á öllum þessum dollum og kössum :P En já mjög svo spennandi blogg um the same old..

en já gleymdi nottla að sækja um í kvöldskólanum svo það er líklegast dottið uppfyrir, verður bara að hafa það.

annars... góða helgi alles :D

Sent af layla kl [21:41] Komment [2]

Fimmtudagur 6. janúar

í fréttum er þetta helst....

Jæja þá er eitthvað farið að gerast.... Borgaði í dag staðfestingargjaldið fyrir skólann, litlar 100 þús krónur. Svo er bara að fylla út námslánaumsóknina og vinna í þeim málum öllum. Fór svo að kíkja á þessa áfanga sem ég þarf að taka fyrir utan skólann, og *dæs* eins gott að heilinn á mér komst nú fljótt í gang. Er svona að vega og meta hvort ég eigi að taka eitthvað í kvöldskóla með núna, er bara ekki alveg viss um að ég leggi í það. Kemur allt í ljós á morgun.

En svona að öðru. Ég er búin að vera ýkt dugleg í ræktinni :D finn heljarinnar mun á mér og er þvílíkt dugleg að halda mig frá mestu óhollustunni. Verður gaman að sjá hvað verður, hvað sem það verður. Annars langar mig svakalega að fara í einkaþjálfun í einn mánuð eða svo. Fá leiðsögn hvað ég á að gera og hvað ekki.... veit svosem hitt og þetta en alltaf gott að fá "spark" í rassinn...

Sent af layla kl [23:41] Komment [2]

snjór snjór snjór...

Hafið þið tekið eftir því að það er snjór úti? :D:D:D:D:D:D LOKSINS NÓG AF SNJÓ!! Bara svona ef þið hefðuð ekki tekið eftir því sko *ljósk* :P

Sent af layla kl [00:56] Komment [4]

Mánudagur 3. janúar

*biiiiiiiiiiiiiiiiiiig smile*

Jæja það virðist vera að þetta ætli allt að ganga upp hjá mér :D Var búin að segja upp vinnunni frá og með 1. mars og ætlunin var að fara í Snyrtiskólann, en svo var mér sagt að það væri orðið fullt þá og ég varð nú svolítið svekkt. En já sótti svo um að komast í skólan í ágúst þá í staðinn og fékk svar að ég væri skráð í ágúst en það væri laust í skólann núna í mars :D þannig að auðvitað ætla ég að demba mér í það.... nú er bara að fara að tékka á námslánum *hóst* vonandi verður það lítið mál

Sent af layla kl [16:59] Komment [0]

Sunnudagur 2. janúar

same old.. same old... and something new to

Jæja enn ein rólegheitarhelgin að lokum komin og ég gerði nú ósköp fátt sem til tíðinda teldist :P Kíkti jú á síðbúna áramótabrennu í gærkvöldi hér í Breiðholtinu, fyrsta skiptið sem ég kíki á brennu hér uppi í fjöllum :) ágætt, en að vísu finnst mér áramótabrennurnar hér í bænum aldrei komast í hálfkvist við brennuna sem ég fór alltaf á í æsku. En það er svosem ekkert skrítið þar sem við börnin í þorpinu hjálpuðum til við brennugerðina og var það heljarinnar ævintýri fyrir okkur, stemmninginn á brennunni sjálfri er svo allt öðruvísi á svona litlum stað þar sem "allir" þekkja "alla"... einfaldlega meiri gleði og meira gaman. Að vísu blandast inn í þetta að ég horfi á þetta í barnsminningunni, sveipað gylltum ljóma.

En í dag ætla ég að kíkja á opið hús í World Class í Laugum og skoða aðstæður og umhverfi. Annars ekki mikið á döfinni.

Til að toppa fáránleika mannsins sem virðist alltaf vilja breyta öllu í átt að fullkomnleika.. Þá er að fara af stað raunveruleikaþáttur í anda Extreme makeover þar sem gerðar eru lítaaðgerðir á gæludýrum. þau fara meðal annars í fitusog, andlitslyftingu og fleira í þeim dúr. Þetta segjast eigendur dýranna gera til að stuðla að betra sjálfsáliti dýra sinna. Jahá.. ekki er öll vitleysan eins *hissasvipur*

Sent af layla kl [13:55] Komment [0]

Laugardagur 1. janúar

*+*+*Gleðilegt ár *+*+*

Já gleðilegt ár alles. Vonandi hafið þið átt skemmtilegan tíma um áramótin og nýja árið gengið í garð slysalaust :)

Ég sprengdi náttúrulega slatta að venju enda er ég ofboðslega hrifin af öllu þessu áramótastandi *ræskj* en veðrið var nú ekkert til að hrópa húrra fyrir um kvöldið en rættist þó úr rétt fyrir miðnætti og gátu Reykvíkingar skotið öllu sínu dótaríi upp og notið ljósa og litadýrðarinnar :D Kvöldið var tekið í mestu rólegheitum og ekkert sterkara haft í glasi nema gos, sofið frameftir degi á nýjársdegi. Og spurning hvað maður gerir í kvöld.

Gleðilegt ár enn og aftur ;)

Sent af layla kl [16:44] Komment [1]