Sunnudagur 27. febrúar
orðin gömul að mér skilst... *hissasvipur*
*dæs* já ég er víst þrítug í dag *ennstærradæs* og ég sem ætlaði alltaf að vera tuttugu og níu :P
En er annars búin að eiga yndislega helgi í sumarbústað með nánustu fjölskylumeðlinum og haft það gott. Borðað góðan mat, spilað, hlegið, hangið í pottinum og margt fleira. Bara brill :)
Sunnudagur 20. febrúar
síðasta vinnuvikan.......
Jæja síðasta vinnuvikan mín rétt að fara að byrja, og ég get varla beðið eftir því að hætta. Er bara orðin hundleið á þessu jobbi, kannski ekkert búin að vinna þarna neitt svakalega lengi en þó í 5 ár eða svo. Nú er komið að því að fara að gera eitthvað annað.
En já er eitthvað að reyna að finna út hvað ég á að hafa næstu helgi í bústaðnum. Þar verða svo ég viti, systir mín og börnin hennar, eldri bróðir minn og fjölskyldan hans og svo mamma og pabbi. Er að spá í að hafa hamboragarhrygg með meðlæti og svo eitthvað létt og eins og pinnamat, vefjur og fleira í þeim dúr. Æji kemur allt í ljós á næstu dögum (vonandi ekki síðar :p)
En nú er það ræktin og svo sund á eftir, maður er víst búinn að lofa börnunum því, er samt að spá í að fara bara í ræktina og láta þau svo fara bara ein í sund eftir gæslu, ég er að spá í að hanga bara á bakkanum :P hehe
jahh þar sem ég hef lítið að segja þá er ég að spá í að hætta þessu röfli núna...
tata
Þriðjudagur 15. febrúar
hitt og þetta
*geysp* já fréttir af mér... hmms þær eru aðallega þær að þær eru engar! Ég vinn, fer í ræktina, hugsa um börn og bú og já er að æfa mig í því að fara að sofa síðasta lagi um miðnætti. Það þarf varla að nefna það að það gengur vægast sagt illa :/ því það er nú þekkt að ég er algjör næturhrafn, er þó eitthvað að þokast í áttina :P gef mér þrjár vikur til viðbótar til að ná þessu, eða þar til skólinn byrjar :P En já ræktin, ég er alltaf að rembast við að sprikla í ræktinni og gengur bara vel, elska að fara og púla vel :D enda er það fastur liður á hverjum degi. Bara verst að ég þarf að fara að fata mig upp því að bæði eru allar buxur að verða of víðar á mig og svo vantar mig aukasett af íþróttafötum og eins og allir vita þá eru þau ÓGEÐSLEGA DÝR!!!!!!!! Bara buxurnar eins og ég nota og langar í aðrar (íþróttabuxurnar) kosta 7900 kr :/ *dæs* þá eru eftir bolur, toppur og sl... spurning um að fara að safna
Annars erum við á leiðinni út til Danmerkur í sumar. Börnin völdu að fara til Danmerkur í sumarhús fremur en að fara til spánar og líst mér barasta vel á það val. Stefnan er að fara í Legoland, tívólí, einhvern ljónagarð, vatnsrennibrautagarð og sl. Frændsystkini barnanna eru sko farin að gera plön hvað skal gera þegar út verður komið :P En já auðvitað er svolítil spenna komin í krakkana mína þar sem þau hafa aldrei svo mikið sem komið upp í flugvél :)
en nóg af röfli... ta ta
Fimmtudagur 10. febrúar
stóóóóóórt bros!!!! :D
Jæja þá er ég búin að borga skólagjöldin :D á bara hálfan mánuð eftir í vinnunni og verð svo í viku fríi áður en skóli hefst. Í millitíðinni ætla ég að skella mér í bústað í tilefni afmælisins míns og jahh veit svo ekki meir. Er allavegana bara í skýjunum með að vera búin að ganga frá skólagjöldunum, var nú samt svolítið freistandi að skella sér bara með famílíuna til úglanda *thíhí*
Sunnudagur 6. febrúar
enn á lífi....
Hehe jæja orðið svolítið langt síðan ég hef skrifað hingað inn. En jahh hef bara verið að einbeita mér að því að vinna, hugsa um börnin og svo púla í ræktinni.. Jú jú ég hef tekið upp á því að mæta alltaf í ræktina eftir vinnu á hverjum degi og púla í allavegana 70 mín (brennslu) og svo lyfta af og til. Árangur erfiðisins er jú einhver en skulum bara bíða og sjá hvort hann verði sá sem til er ætlast.
Annars tók ég á leigu tvo sumarbústaði og ætla að bjóða foreldrum mínum, systkinum og fjölskyldum þeirra í bústað um afmælishelgina mína. Hafa eitthvað gott að borða og sl. Verð nú að fara að skipuleggja það eitthvað, svona hvað á að vera á boðstólnum og hvað skal gjört.
En já ætlaði nú bara rétt að láta vita af mér ;) kemur meira síðar
ta ta


