Föstudagur 18. mars

waxmaster2000

Jæja allt á fullu hér, börnin, skólinn, börnin, ræktin, börnin, heimilið, börnin, já og eitthvað fleira.

Eignaðist í dag þetta svakalega flotta professional vaxtæki :D og ýmis tilheyrandi tæki og tól, svo að nú er að finna loðna leggi sem tilvalin fórnarlömb *thíhí* svona upp á meiri æfingu að gera. En já ég er víst orðin 14 kílóum léttari en í byrjun árs, bara þokkalega sátt við það. Og hmmm hvað get ég sagt meira *hux*

Kíkti í sund með krakkana og hitti Sigrúnu vinkonu þar, sátum og kjöftuðum og á eftir fórum við öll og fengum okkur pizzur, já ég segi og skrifa pizzur því að við vorum með heilar fjórar tegundir á borðum :P hehe, en já árshátíð á morgun svo að það er eins gott að vakna snemma í fyrramálið og skella sér í gott púl í ræktinni svo maður eigi nú eitthvað inni fyrir góðum mat :P

góða helgi alles...

Waxmaster2000 kveður að sinni :P

Sent af layla kl [23:50] Komment [4]

Fimmtudagur 17. mars

er svooooo klár...

Djöhh hvað ég er stolt af mér!! :D:D:D Búin að fara í nokkur próf og bara eitt sem ég fékk ekki fullt hús stiga í :D:D:D * Hélt að ég myndi nú aldrei læra um öll þessi bein líkamans og vöðvana, og hvað þá á latnesku og upphaf, festingar, svæði, hreyfingu og allt það. En jú jú þetta síast greinilega inn í kollinn :P Er að skemmta mér vel í skólanum, er að aukast verklega námið hjá okkur núna og margt spennandi í vændum :P

Er að fara á árshátíð um helgina, ætla að taka því rólega og ætli ég verði ekki bara dræver enda ár og öld síðan ég hef nennt einhverju djammi. Verður gaman að fá eitthvað djúsí að borða *vatn í munninn*

Á skírdag förum við svo öll á sýninguna Houdini snýr aftur og verð nú að segja að sonurinn er svakalega spenntur að sjá þessa sýningu enda þvílíkt töframannafan. Verður eflaust gaman. Á föstudeginum langa verður líklega skellt sér norður í land til systu, en samt ekki alveg 100% ákveðið.

En já best að skella sér í ræktina þrátt fyrir yfirgengilega mikla leti *geisp* og bræða af sér enn meira spik en farið er *tíst* er meira að segja farin að finna fyrir einhverjum vöðvum hér og þar sko *mont* hehe.

En já bless í bili góurnar..... farin í púlið

Sent af layla kl [18:55] Komment [0]

Þriðjudagur 15. mars

Sóla skólastelpa...

Jæja þá er ég búin með rúma viku í skólanum og jahh ekki hægt að segja annað en að ég sé komin með stútfullan koll af fróðleik sem var pottþétt ekki þar áður :P Kom mér samt á óvart hvað þarf að læra svakalega mikið í sambandi við vöðva líkamans og beinin, fékk sjokk svona fyrst en komst svo að því mér til mikillar ánægju að ég get þetta vel :P *mont* já þetta gamla ónotaða skran þarna uppi virkar semsagt ennþá!!! :D

Annars er nú lítið að gerast hér, bara skólinn, lærdómur, ræktin og svo heimilið semsagt hin gullna daglega rútína hjá mér :)

Var í fyrsta nuddtímanum mínum í dag og wow hvað þetta er þægilegt :P hefði alveg verið til í að liggja aðeins lengur og láta dekra við mig, en því miður var aðeins verið að nudda upp að öxlum í þetta skiptið. Bíð spennt eftir næsta tíma :P thíhí

Öntil leiter ta ta..

Sent af layla kl [23:26] Komment [0]

Sunnudagur 6. mars

Helgin í hnotskurn

Jæja búin að eiga ágætis helgi þrátt fyrir að hafa ekki mátt fara í ræktina :/ bæti úr því í vikunni. Á meðan eldri skottan mín fór með stóru frænku sinni í Kringluna að skottast, þá fór ég með restina af börnunum mínum og svo tvíbura systur minnar í bæjarferð. Við fórum og keyptum okkur ís í Blómaval og fengum páskaegg no2 í kaupbæti, ekki leiðinlegt fannst börnunum, fórum á Mc donalds sem var draumur litla frænda :P röltum í kolaportinu og já gerðum barasta slatta. Kíkti aðeins í Kringluna með systu og svo heim að finna mig til fyrir bíóferð.

Já ég fór í bíó og ég sá ekki teiknimynd eða barnamynd af nokkru tagi!!!!!!!!!! :D Fór með minni elskulegu Sigrúnu og við sáum myndina Hitch, skemmti mér þrælvel og nokkur tár féllu, að sökum hláturs en ekki gráts :D

Dagurinn í dag var tekinn snemma, brunuðum í Fífuna að horfa á hann Hilmar frænda verða íslandsmeistara í 60 m hlaupi :D ekkert smá flott hjá stráksa. Gaurinn minn var að skottast þarna og fylgjast með, og fannst honum það sko ekki leiðinlegt, enda er frændi ædolið hans (guttinn minn æfir frjálsar eftir að hafa séð frænda sinn keppa á landsmóti fyrr í sumar) ;) Á meðan skutlaði ég yngri skottunni í kirkjuna að syngja og þeirri eldri á skautaæfinu, því hún var að byrja að æfa skauta í dag, ekkert smá ánægð :)

restin af deginum fór í að versla fyrir skólann, þvo, leggja mig :P, elda, þvo meira, baka og jahh sitt lítið af hverju.

Spörning hvernig þetta svakalega holla speltbrauð sem ég er að myndast við að baka heppnast :P verður fróðlegt :)

Sent af layla kl [23:28] Komment [2]

Föstudagur 4. mars

Danmerkurferðin :)

Þessa dagana er verið að plana ferðina sem við ætlum að fara til Danmerkur í sumar. Búið er að leygja sumarhús rétt við Billund, svo á að kíkja í heimsókn til frændsystkina krakkanna og jafnaldra, fara í Legoland, Djurs sommerland, Ljónagarðinn og allt það sem við finnum :P ætlum að vera búin að kaupa passa í alla garðana áður en við förum út. Erum að spá í að kaupa árspassa í þá þar sem þá höfum við óhindraðan aðgang í garðana, er búið að borga sig upp eftir tvö skipti. Já ekki annað hægt en að segj það að það sé mikil spenna hjá yngri kynnslóðinni að fá loksins að fara eitthvað út fyrir landsteinana. Og þau vildu miklu frekar fara til Danmerkur heldur en til Spánar og ég verð bara að segja að ég er mjög sátt við það val :D

En já sótti stundatöfluna í dag, lýst bara vel á þetta :P skólinn byrjar svo á mánudaginn. Verður skrítið en eflaust skemmtilegt.

Eigið góða helgi þið fáu sem enn kíkið hingað inn :P

Sent af layla kl [20:39] Komment [1]