Sunnudagur 10. apríl
Hjálp!!!!!!!!!!!
Efast svosem um að einhver sjái þetta í tíma og geti reddað mér.... eeeeen það má reyna. Mig vantar svo tvö módel í förðun fyrir morgundaginn. Kvöldförðun, fyrra módelið kl 13:00 seinna kl 14:00...
Laugardagur 9. apríl
jaháááá
Jæja sannaðist enn og aftur í gærkvöldi að ég er orðin eins og ellidauð tjelling. Fór í heimsókn til Sigrúnar vinkonu þar sem við ætluðum að hafa svona stelpukvöld eins og við gerum stundum. Þá horfum við á stelpumyndir, borðum góðgæti og kjöftum. En um 23:30 var ég orðin rangeygð af þreytu og dreyf mig heim. Tel mig heppna að hafa komist heil á leiðarenda þar sem ég keyrði að mér finnst hálf sofandi heim. Var fljót að koma mér í bælið þegar ég komst á leiðarenda :P
Í dag er stefnan sú að reyna að koma mér í það að læra undir þetta blessaða próf sem er á mánudaginn :/ en ef ég þekki mig rétt þá verður sá lærdómur af skornum skammti þar sem ég hef hrúgu af öðru sem þarf að sinna. Ætla samt að renna eitthvað yfir þetta.
hafið það gott yfir helgina....
Þriðjudagur 5. apríl
*geisp*geiiiiiisp*
Komst að því í morgun að ég er ekki enn búin að sigrast algjörlega á klígjugirni og pjatti varðandi visst atriði sem mig var búið að kvíða svolítið fyrir varðandi skólann *ræskj* Verð nú samt vonandi fljót að komast yfir þetta :P hehe Annars gengur mér barasta ágætlega í skólanum jahh allavegana veit ég ekki betur kemur í ljós þegar lengra líður, hvort fólk fari að falla eftir einhverjar meðferðir hjá mér ;)
En já Sigrún ENGILLINN MINN fær þúsundfaldar þakkir fyrir að redda mér módelum fyrir vaxið *kossogknús* Luv yahh
Annars fór ég á tupperware kynningu í gærkvöldi og ég sem hef nú aldrei verið þekkt fyrir að vera mikil tupperwaremanneskja freistaðist til að kaupa einhverjar voða flottar dollur undir öll fræin mín og baunirnar mínar sem mér skilst að séu algjörlega mín eign á þessu heimili *lesist ekki mjög vinsælt hjá öllum fjölskyldumeðlimum* :P
En eftir mjög svo "þreyttan" dag hjá illy silly me þá ætla ég að koma mér í ræktina áður en ég sofna fram á lyklaborðið. Vantar smá aukaorku og veit að ég næ að hlaða mig í ræktinni :D
Mánudagur 4. apríl
Oldy goldy
Pffft það ætti að taka mig og senda í endurhæfingu. Ég hef komist að því að ég er orðin gjörsamlega ónýt í öllu sem heitir félagslíf, veit varla nú orðið hvað það er!! Djamm er eitthvað sem ég hef ekki kíkt á annsi lengi, komnir annsi margir mánuðir síðan ég kíkti síðast í bæinn. Held þetta fylgi aldrinum sko, nú á ég greinilega að sitja heima í ruggustólnum að prjóna ullarleista hugsandi til þess tíma sem ég var enn í spriklhæfu formi :P Eina spriklið núorðið er það sem ég æfi í ræktinni, jahh svona nokkurnveginn ;)
Spörning um að fara að skella sér í djammskóna og kíkja eitthvað út á lífið fljótlega. Allavegana er stefnan að kíkja á Birnu, fyrrum mágkonu næstu helgi og gera sér daga mun :) En já aftur að prjónaskapnum....2 sléttar, tvær brugnar, slétt, brugðið, slétt............................zzzzzzzzzzzz
thíhí... anyway farin í ræktina að gera eitthvað af viti......þó fyrr hefði verið.
Laugardagur 2. apríl
fílamaðurinn....nei ég meina konan!!!
Ef ég er ekki einstaklega óheppin þá veit ég ekki hvað ég er. Um daginn, jahh í lok febrúar þegar ég var að fara að halda upp á þrítugsafmælið mitt þá varð ég fyrir því að annað augnlokið á mér blés gjörsamlega upp eins og blaðra. Ok í vikunni þá hef ég verið örlítið sár í annari nösinni, með lítið sár þar og ekkert gert nema setja smá krem á. Í gærkvöldi fannst mér ég vera örlítið bólgin á nefinu og efri vörinni. Í nótt vaknaði ég um kl 4 og sá að ég hafði versnað örlítið. Og í morgun þegar ég fór á fætur þá sá ég að annar helmingur andlitsins var gjörsamlega blásið upp. Gat ekki einu sinni lokað munninum fyrir bólgum. En jæja kom mér til læknis svona til að ég liti ekki svona út miklu lengur, og jú til að losna við þessi óþægindi (sem voru og eru heilmikil) og jú ég fékk rótsterkt pensilín þar sem ég er víst með einhverja stapiloxsýkingu eða eitthvað í andlitinu. Eftir fj´rar töflur hef ég nú skánað þónokkuð en alls ekki nóg. En svona er að vera ég ;)
En svona að öðru, þá fór ég til mömmu og pabba eftir ferðina til dokka (enda voru börnin þar í heimsókn á meðan) og tók mömmu í handsnyrtingu. Hún var voða ánægð með útkomuna og var sko ekkert ósátt við það að ég ætlaði að halda áfram að æfa mig á henni :) hehe enda hef ég nú ekkert voðalega margar til að æfa mig á (hint til ykkar sem lesið :P).
Annars vantar mig módel í vax alla föstudagsmorgna, í boði er vax upp að hnjám (líka hægt að taka læri ef vill), bikinivax og vax undir höndum eða barasta allt í einum pakka eN NOTA BENE... ÞAÐ ER EKKI Í BOÐI BRAZILÍSKT VAX;) verið nú ekki svona mikil tjikken elskurnar, bjóðið ykkur fram :P...
en well mí say ta ta to yah all
Föstudagur 1. apríl
jú jú enn á lífi ;)
Jæja ég er víst engan veginn að standa mig í því að skrifa eitthvað hér inn núorðið. En svona fyrir utan það að ég er orðin álíka loðin og geðsleg og górilla þar sem við áttum að safna fyrir vaxið á morgun, sambrýnd og með augabrúnir á við hárugan karlmann og já... þarf ég að segja meira? Þá er bara allt ágætt að frétta héðan. Ég er náttúrulega alltaf jafn léleg að sinna vinum og félögum :/ enda hefur lítið annað komist að en heimilið, skólinn og ræktin (same old, same old)
Annars fórum við norður um páskana og höfðum það svakalega gott, er það ekki líka þannig sem páskafríið á að vera? Leti og notalegheit ;)
En jæja kannski ég fari að koma mér í bælið svona svo ég vakni nú í skólann á morgun, týpískt fyrir mig að hanga hér frameftir öllu :s
ta ta.....


