Sunnudagur 22. maí
..........já ó já...........
Jæja ágætis helgi að baki....svona fyrir utan það að vera búin að vera drulluslöpp eða barasta veik alla helgina. En þar sem búið var að plana að fara í sumarbústað og börnin voru búin að bíða alla vikuna eftir því að fara þá gat ég bara ekki gert þeim það að fara ekki. En já var víst ekkert voðalega hressandi félagsskapur :P þar sem ég sofnaði snemma á föstudagskvöldinu og það sama gilti um laugardagskvöldið *ræskj* tókum nú samt smá playstation með krökkunum, bæði hreyfileiki og singstar (já fjárfesti loksins í singstar :P) og skemmtu sér allir vel bæði börn og gamalmenni (flokkast maður ekki undir gamalmenni eftir 30.? :P) Samt ótrúlegt að miðað við það að þarna voru 6 börn á svipuðum aldri og öll þokkalega fjörug þá urðu aldrei nein vandræði, allir bara glaðir og kátir (nema veikindapésin ég auðvitað).
Á laugardeginum brunaði ég í bæinn og fór í útskriftarveislu hjá mágkonu minni, varð nú að kíkja svona aðeins. Enda var hún að standa sig frábærlega vel :) Brunaði svo aftur í Skorradalinn þannig að það er ekki hægt að segja annað en að ég hafi nýtt Hvalfjarðargöngin vel þessa helgina þar sem ég fór alls 4 sinnum í gegnum þau (eins og mér leiðist það).....
En já þar sem þetta er svona týpískt dagbókarblogg þá læt ég staðar numið...nenni heldur ekki að pikka meira í bili.
Miðvikudagur 18. maí
the wedding date
Rómantíkerinn ég fór í bíó í kvöld og ég sá frábæra rómantíska gamanmynd. Mynd sem ég mun pottþétt eignast til að geta horft á hana aftur og aftur og aftur og................. :P vorum þrjár ofuraðdáendur rómantískra gamanmynda sem sátum þarna dolfallnar :P Og vorum allar harðákveðnar í því að eignast þessa mynd, að sýningu lokinni.... já, eins og táningar gegnum við út með fiðrildi í maganum og dreymandi augu *tíst*
Þriðjudagur 17. maí
sjæse!!!!!
Hrmpffff...
Eitthvað virðast þessar blessuðu heilasellur ekki ætla að virka almennilega hjá mér :s Jahh kannski er bara málið það að þær eru svo fáar þarna greyin þannig að þær ná bara ekki að anna öllu því sem þær eiga að vera að gera.
En já fór í tvö próf síðasta fimmtudag og æji held ég hafi nú ekki verið að gera neitt voðalega góða hluti í öðru þeirra :( að hluta til var ástæðan sú að ég var bara alls ekki nógu dugleg að lesa efnið yfir fyrir prófið!!! Og hin ástæðan er sú að mér finnst kennarinn bara alls ekki hafa staðið sig nógu vel við að koma efninu vel frá sér. En auðvitað er aðalatriðið það að ég lærði ekki nógu vel og hana nú!!
En já nú fer að styttast í annarlok og annarprófin *hrollur* er farin að fá sífellt stækkandi hnút í magann yfir þessum prófum þar sem ég er nú fremur prófstressuð týpa. Er mikið að stressa mig á því að ég muni sitja aftur þennan bekk og vera looserinn í hópnum :/ vona samt að ég klóri mig í gegnum þetta. En það eru samt einhver próf þarna sem hræða mig meira en önnur. Best að krossa fingur og læra vel undir prófin svo ég geti sýnt sjálfri mér og öðrum það að ég sé nú ekki algjörlega óhæf í þessum málum.
En jæja.. er allavegana búin að læra þessa 4 vöðva fyrir morgundaginn (latnesku nöfnin, staðsetningu, upphaf, festu og hreyfingu) og þokkalega viss um nuddröðunina í sænska heilnuddinu sem við erum að fara að nudda á morgun....ÁN NOKKURRA LEIÐBEININGA!! :/ damn vissi að ég hefði átt að vera dugleg að æfa mig heima.... spurning um að fara að byrja á því *aulasvipur*
en já... nóg af væli í bili...adios amigos
Mánudagur 2. maí
löööööng lööööööng rumsa
Mikið er ég dugleg að kasta einhverju inn hér.... eða þannig. Reyni að bæta aðeins úr því hér.
Eins og er er ég búin að vera að rembast við það að troða einhverjum fróleik inn í þennan litla krumpaða þarna í kollinum á mér með misjöfnum árangri. Held enn í vonina um að hann fari að lifna við og meðtaka það sem verið er að reyna að troða þarna inn.
Er enn að puða og púla í ræktinni einnig með misjöfnum árangri held ég.... ein þó einhverjum árangri. Er að gæla við að splæsa á mig einkaþjálfun við tækifæri... svona til að fá smá spark í rassinn hvað varðar dugnað.
Áróra var að sýna listskauta í dag og mikið var ég stolt af henni. Er ekkert smá dugleg á svellinu sú sæta :) Hún er staðráðin í því að halda áfram í listskautum og næsta haust ætla Aron og Aníta að bætast í hópinn og aldrei að vita nema ég skelli mér í gamlingjahópinn :P væri gaman að læra eitthvað í þessu hehe.
Annars erum við að taka línuskautana fram og ætlum að vera dugleg að renna okkur um á þeim í sumar. Enda góð hreyfing og mikið gaman :) Ætla samt ekkert að láta fylgja með hve klár ég er í þeim málum :P
Einnig fóru stelpurnar í kórferðalag um helgina. Áróra fór á föstudeginum og var yfir nótt en Aníta fór svo á sama stað með yngri kórnum á laugardagsmorgninum. Það var svaka fjör hjá skutlunum mínum og já ég held þær hafi bara notið þess að komast í burtu frá mömmu gömlu ;)
Aron gerðist einbirni á meðan og við kíktum í heimsókn í skorradalinn til vinarfólks og þar var hoppað í einhverja klukkutíma á risa trampolíni... meira segja hin gamla ég prófaði þetta ferlíki með þessum líka fína árangri :P held ég hafi dúað í einhvern klukkutíma á eftir að ég fór af því
En já..... nóg komið í bili...
ta ta


