Fimmtudagur 30. júní
og allir saman nú.....
Jæja fengum að vita það í dag að það var ekki laus nógu stór íbúð fyrir okkur á hótelinu sem vinafólk okkar verður á. Ekkert mál að vera á nálægu hóteli finnst mér. Bara að það sé snyrtilegt, með loftkælingu og þvottavél. Helsti spenningurinn hjá börnunum við það að fara til spánar er það að fara á ströndina, í vatnsrennibrautagarð og dýragarð. Mikið talað um væntanlega ferð með mikilli tilhlökkun. Held að börnin séu komin út í huganum. Eins gott að þetta bregðist nú ekki.
Annars er gaman að fylgjast með hvuttanum á heimilinu. Hann virðist vekja mikla eftirtekt hvert sem farið er. Börnin eru sko ekki í vandræðum með að svara spurningum sem þau fá þegar þau fara í gönguferðir. Af hvaða tegund er hundurinn.. þau papillon... hvað er hann gamall? Þau 11 vikna.. Hvað verður hann stór.... jahh svona helmingi stærri en hann er núna. Já þau eru ótrúlega fljót að læra þessar elskur enda svo áhugasöm varðandi hundinn sinn. Hann Rocco er sko aðal hundatöffarinn í bænum. Og börnin þau allra bestu í veröldinni auðvitað að mínu mati ;)
Sunnudagur 26. júní
Á ferð og flugi
Það virðist ætla að verða að vana að fara í óvænta bíltúra. Síðustu helgi var það Reykjavík,Gnúpverjahreppur (börnin fóru í bústað til ömmu og afa),Flúðir,Gullfoss, KJÖLUR,Hveravellir, Blönduós. Nota bene þá var ætlunin þá að fara Reykjavík, Gnúpverjahrepp, Flúðir, Gullfoss, Laugarvatn, Þingvelli, Skorradal. En já eftir tvö sprungin dekk, ónýtar felgur, næturgistingu í gönguskála í fúkkalykt á Hveravöllum og svo loks björgun á Blönduós þá endaði þetta ágætlega (fyrir utan það að ég átti að vera að læra undir próf).
En í gærkvöldi var ákveðið að skella sér óvænt upp í Skorradal, sem var gert. Daginn eftir var síðan brunað upp í Reykholt, og þaðan upp í Húsafell. Stoppuðum í Reykholti og skoðuðum Snorralaug og fleira, á leiðinni upp í Húsafell stoppuðum við og skoðuðum Barnafoss og hmm einhvern annan foss. Röltum um og höfðum notalegt með vinafólki og börnum.
Nú er bara að vona að óvænta Spánarferðin verði raunveruleg :P mmmmmmmmm sól, hiti, vatnsrennibrautagarðar og auðvitað ströndin :D
Föstudagur 24. júní
einkunnirnar komnar í hús :)
Jæja þá er ég búin að fá út úr prófunum og get ekki annað en verið bara nokkuð sátt við útkomuna. Er þá allavegana búin með 1/3 af skólanum. Búin að fá stundartöfluna fyrir næstu önn og finnst svolítið freistandi að sleppa förðuninni (sem ég fæ metna) og vera þá búin einn dag í viku rétt upp úr kl 11. Bara spurning hvort ég tými að sleppa förðuninni þar sem maður lærir alltaf eitthvað nýtt með nýjum kennurum :). Kemur allt í ljós þegar nær dregur.
Annars er eitthvað verið að gæla við það að skreppa bara í sólina í júlí, væri nú alveg til í það. Sjáum til hvað verður ;)
Fimmtudagur 23. júní
Sumarfrí... víííí
JEIJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJ loksins búin í prófum!!!!!!!!!!!! Er ekki alveg farin að venjast því að geta bara verið í rólegheitum. Finnst ég stundum vera að svíkjast um og finnst ég eigi endilega að vera að læra undir eitthvað próf.. En nei sem betur fer er ekki svo.
Annars fæ ég út úr prófunum á morgun og ég get nú ekki sagt að mig hlakki mikið til þessn :s o nei... barasta kvíði svaðalega fyrir því að fjá einkunnirnar :(
Gæti sett inn eina fína hrakfallasögu frá ferð minni yfir Kjöl síðustu helgi þar sem tvö sprungin dekk koma við sögu ásamt, símasambandsleysi, svefnskála angandi af fúkkalykt og eitthvað fleira. En held ég sleppi þeirri sögu :P hehe
Annars er eitthvað verið að gæla við það að skreppa út til spánar í júlí.. kemur allt í ljós á næstunni...
en mín farin að glápa á einhverja stelpuvælu sem ég tók á leigu áðan...
ta ta
Föstudagur 17. júní
hæ hó og jíbbí jeij... og sitthvað fleira..
Já það er víst 17. júní í dag, og ótrúlegt en satt þá er brilliant sumarveður úti :) Ætla að njóta þess að gera eitthvað með börnunum í dag ásamt Rocco litla kjánapriki sem dafnar vel og er farinn að stjórna heimilinu harðri hendi.
Annars er það að frétta að ég á BARA TVÖ PRÓF EFTIR!!!!!! Eitt á mánudaginn og annað á þriðjudaginn og svo er ég barasta komin í sumarfrí!!!!!!!!!!!! Vííí hlakka ekkert smá til þar sem ég er orðin annsi lúin eftir lítinn svefn, próflestur og þónokkuð stress. Annars langar mig helst að sleppa því að ná í einkunnirnar mínar. Er ekkert alltof viss um að þær verði eitthvað glæsilegar. En munu vonandi koma mér á óvart :P
Í sumarfríinu mínu þá ætla ég ekki að vinna neitt að ráði ALDREI ÞESSU VANT heldur bara vera í rólegheitum og njóta þess að vera með börnunum mínum :) Byrja sumarfríið á hinni árlegu útilegu á Jónsmessuhátíð trésmíðaféagsins eins og ég hef gert síðustu 4-5 árin. Klikkar aldrei því að þarna er akkúrat eins og ég vil hafa það. Rólegheit og gaman að dunda sér með börnunum.
Jæja hafið það sem allra best í dag...sem og aðra daga
ta ta ;)
Miðvikudagur 15. júní
Löt.. latari...lötust...lötustustust
Eftir 10 próf í einni bunu.. þá er ég eiginlega komin með nett kæruleysiskast. Er eiginlega komin með nóg af prófum í bili. En ljósi punkturinn er sá að eftir prófið sem er á morgun þá er ég komin í 3 daga helgarfrí :) allavegana fengið nætursvefn eins og eina nótt. Fer svo í próf á mánudag og þriðjudag og þá er prófunum lokið!!!!!!!!!! Vona að ég hafi verið að gera þokkalega hluti í þeim málum. Væri ekki gaman að sitja eftir þegar hinar fara allar upp um bekk :s
En já fékk snyrtistól í dag og er voðalega ánægð með hann :) Er kominn í æfingaraðstöðuna, ásamt nuddbekknum og hinu dótaríinu. Get loksins farið að æfa mig eitthvað að ráði :)
jæja, búin að borða yfir mig (Mc donalds og ís), löt og nenni barasta engan veginn að læra undir næsta próf sem er smit og sótt (smit og sóttvarnir). Ætli ég geti mútað kennaranum?
Mánudagur 13. júní
8 próf búin.... 7 eftir!
Jæja þá er ég rúmlega hálfnuð í prófunum. Bóklega prófið sem mig kveið mest fyrir var í dag og ég þori nú ekki að segja mikið til um það hvernig mér gekk. Lá yfir bókunum klukkutímunum saman. fór að sofa hálf fjögur og var komin á fætur fyrir hálf sex. Þannig að núna er ég á mörkum þess að langa að fara að sofa eða slá öllu upp í kæruleysi og lesa undir næsta próf nær ósofin og muna ekki neitt. Er samt að spá í að skella mér í apótekið og kaupa sólarvörn fyrir börnin, hleypa þeim út að leika með hundinn og skella mér í smá tíma í bólið. Þá losna ég kannski við þetta ýl sem er í eyrunum á mér.
Rafmagnsháreyðing á morgun og já... enn og aftur finnst mér ég ekki kunna neitt :s Ætli ég sé einfaldlega bara svona treg??? En þar sem ég er með athyglisbreist og með eindæmum gleymin þá ákvað ég að gera smá tilraun með bætiefni sem heitir Fosfoser memory og á að bæta einbeitningu og minni :P hef sko mikla trú á því. hehe .. er ekki sagt að trúin flytji fjöll? ;) meina þetta er svona nokkurskonar sjálfssefjun eða hvað maður segir :P
en já farin að sofa eða eitthvað
Föstudagur 10. júní
nærri því hálfnuð í prófum!!!!!!!!!
jæja er búin með verklegu prófin (6 talsins) og á þá eftir átta bókleg próf. Fer í tvö á morgun og svo er það út næstu viku (nema 17.júní) og svo síðasta prófið 21. júní. Mikið hlakkar mig til að komast í gott frí. Ætla þá að eiga góðan tíma með börnunum mínum og reyna að ala Rocco (hvolpinn) eitthvað upp. Annars varð hann svakalega hræddur í gær þar sem hann hitti tvo stóra og stæðilega hunda þar sem við vorum í heimsókn. Vorkenndi litla krílinu þar sem hann skalf eins og hrísla vegna látanna í þeim stóru, og hafði hann bara í fanginu á mér. en já ætli maður fari ekki að læra fyrir þessi blessuðu próf.
ta ta
En já hann Yngvi frændi á afmæli í dag og fær hann afmæliskveðjur í tilefni þess... orðinn 7 ára guttinn.
Föstudagur 3. júní
nýr fjölskyldumeðlimur...
Já það er að bætast við fjölskylduna.. :) OG NEI ÉG ER EKKI ÓLÉTT!!!! hehe.. en þessi viðbót er í formi ofurlítils ferfættlings sem ber nafnið Rocco. Hann er nú bara algjör krúsla sko :) Hann er af tegundinni Papillon eða fiðrildahundur eins og þeir kallast á íslensku.
En já svo er maður víst byrjaður í prófum, fyrsta prófið búið og heill hellingur eftir *dæs* verð búin i prófum 22 júní..og þá hefst sumarfríið mitt.. spurning hvað maður gerir þá :)


