Miðvikudagur 20. júlí

*hrollur*

Er komin með kvíðahnút í magann og farin að fá þessa ónotalegu hræðslutilfinningu sem ég fæ fyrir flug. Vona að ég nái nú að vera þokkaleg í fluginu enda að fara með börnin í fyrstu flugferðina. Búin að fá ábendingar um hvað ég get gert til að bæta líðanina í fluginu þar á meðal að fá mér nokkra bjóra eða eitthvað áfengt en það er nú alls ekki inni í myndinni. Verð bara að pína fólk með stjarfa og titring :P

En já ég er víst á leiðinni til Benidorm í dag... sjáumst síðar... ta ta

Sent af layla kl [03:11] Komment [0]

Laugardagur 16. júlí

vax..vax...vax og aftur vax...

Jæja eftir alla þessa umræðu um metrómenn og vaxmeðferðir sem hafa verið að undanförnu (þá í sambandi við kallarnir.is og Extrememakeoverið hjá Gillsnegger) þá varð ég barasta að prófa það að vaxa karlmann :P Og já ég réðst ekki á garðinn þar sem hann var lægstur!! Kláraði heila stóra rúllu af vaxi og allmikið af vaxstrimlum í þessa meðferð... En útkoman var bara flott sko :P Ekkert að því svosem að karlmenn láti vaxa sig.....metromenn eður ey ;)

En já.....mín er komin með nettan kvíðahnút í magann yfir utanlandsferðinni sem senn fer að nálgast. Auðvitað er gaman að fara til spánar með börnin... En það er bara ógeðslegt að vera eins flughræddur og ég er!! Ég held ég geti sagt það án þess að vera að ýkja að ég er ein flughræddasta manneskja landsins :( Fór til læknis og í leiðinni svona var ég að forvitnast hvort ég gæti eitthvað gert við þessu. Og dokki skrifaði upp á eitthvað kvíðastillandi lyf. Er ekki búin að ákveða hvort ég muni nota það, en ég hef það þó allavegana sem val.

En jæja kannski ég komi mér í bólið. Er að fara í fótsnyrtingu í fyrramálið og svo í það að snyrta aðra sjálf eftir það

Góða helgi alles :)

Sent af layla kl [04:14] Komment [0]

Miðvikudagur 13. júlí

queer as folk

Ég er orðin húkkt á þáttunum Queer as folk sem er á skjá einum að nóttu til. Týpískt fyrir mig að hanga yfir sjónvarpinu lengst frameftir nóttu og snúa sólarhringnum við. En já aftur að Queer as folk. Þegar sýning þessara þátta hófst, þá ollu þeir víst mikilli hneykslun hjá fólki. Sjálf verð ég að viðurkenna að ég fór hálfgert hjá mér þegar ég sá fyrsta þáttinn. En núna eru þessir þættir á meðal uppáhalds sjónvarpsefnis míns (og ekki eru þeir margir uppáhalds þættirnir).

Ætli vanþekking og fordómar eigi ekki þátt í því að fólk hneykslast yfir því að boðið sé upp á sjónvarpsefni þar sem karlmenn eru sýndir í samförum og fjallað mjög opinskátt um kynlíf aðalpersóna þáttanna. Mér finnst þessir þættir af hinu góða. Við kynnumst og venjumst öðru en hinu heilaga normi sem alltaf er fyrir augunum á okkur. Maður elskar mann, kona elskar konu, kona elskar mann, maður elskar konu...........elskum öll hvert annað eins og við erum :)

Sent af layla kl [01:30] Komment [0]

Þriðjudagur 12. júlí

Get ekki annað en verið sátt við að hafa þokkalega mikið að gera og ánægðar skvísur :D Já er komin með ágætist viðbót við gjaldeyrinn minn, og meira á leiðinni ;) Farseðlarnir eru komnir í hús, kvíðahnúturinn farinn að stækka aðeins í maganum á mér, en jafnframt er tilhlökkunin orðin mikil hjá börnunum. Hlýt að lifa þessa flugferð af :P

Er að spá í því að hafa förðunarnámskeið á boðstólnum í haust. Ekki alveg búin að ákveða í hvernig formi þau verða en er svona að hugsa þetta út. Einnig ætla ég að bæta við aðstöðu til airbrush brúnkumeðferðar í haust í aðstöðunni hjá mér. Hægt að hafa þokkalegt upp úr því ef maður er duglegur.

En jæja.... svosem ekkert að frétta héðan...svo ta ta..

Sent af layla kl [02:49] Komment [0]

Miðvikudagur 6. júlí

evrur....

Börnin fóru með stóra grísabaukinn sinn í bankann í dag. Þau eru búin að vera að safna í þónokkurn tíma, og setja þá afganginn af nammipeningnum sínum í baukinn. Auk tannpenings og klinks sem þau finna eða áskotnast. Mest var þetta krónur, fimmkallar og tíkallar en í heild var upphæðin sem úr bauknum kom rétt um 6000 krónur. Stolt sögðu þau við gjaldkerann að þau ætluðu að fá peninginn í Evrum. Aðspurð um það hvort þau væru að fara til spánar, þá brostu þau út að eyrum og sögðu einum rómi JÁ. Æji þau eru soddan dúllur.

Síðustu daga eru þau búin að vera að vinna með mér í garðvinnu hjá pabba og þeim hefur verið lofað að þau fái kaup fyrir, þann aur ætla þau einnig að skipta í Evrur segja þau. Þá komast þau nefnilega í tívolí.

Sjálf hef ég verið á fullu að snyrta, fæ smá aur fyrir og hann fer beint í gjaldeyri. Stefnan er nefnilega að safna vel fyrir gjaldeyri og þurfa ekki að koma út í stórri skuld. Garðvinnan hjálpar þokkalega vel til við að halda þeirri stefnu þar sem hún er þokkalega vel borguð :)

En jæja kannski maður leggi sig í smá tíma, svona svo ég sofi nú ekki langt fram eftir degi.

Sent af layla kl [02:48] Komment [0]

Mánudagur 4. júlí

same old...same old...

Jæja mín er búin að lesa allt um flughræðslu sem finnst á íslensku. Er aðeins að reyna að undirbúa mig fyrir flugið, svo ég paniki ekki í flugtaki. Mér finnst nefnilega flugtakið eiginlega verst við flugið svona fyrir utan turbulancið (ókyrrð í lofti). Annars er maður að stússa hitt og þetta til að undirbúa spánarferðina, ætla nefnilega að finna allt til smátt og smátt því að það á víst að vera best fyrir þá flughræddu að vera búinn að gera allt tímanlega (svo er sagt). Verslaði mér gallapils í dag, ég sem aldrei fer í pils. Meira að segja frekar stutt gallapils (ákvað þó að hafa það niður að hnjám en ekki rétt niður fyrir rasskinnar :P), ákvað að kaupa mér bikiní þó svo að ég sé nú ekki alveg með bikinívöxt en hey... það mun vonandi enginn þekkja mig þarna úti :P Keypti mér að vísu líka hálfgerðan bol/topp við bikiníbuxurnar auk þessa týpíska bikinís. En já semsagt ekkert spennandi í gangi hér.

Á morgun ætla ég svo að fara með Rocco til dýralæknis i sprautur og frá hádegi og fram að kvöldmat verð ég í snyrtingum. Ágætt að hafa eitthvað að gera í sumarfríinu :) Ætla svo að halda áfram í garðvinnu í vikunni, vera dugleg enda fínt að vera úti við :)

jæja nóg af röfli héðan

ta ta

Sent af layla kl [02:03] Komment [0]

Laugardagur 2. júlí

hitt og þetta...

Jæja kominn smá spánarfiðringur í okkur. Stelpuskottin fengu ný bikiní svona til að vera nú flottar í sólinni (tökum nú samt sundbolina líka með), En þar sem stráksi var nýbúinn að fá töff sundbuxur þá var ekki keypt sundföt á hann. Verslaði svo sæta sumarkjóla á stelpurnar (svona létta og sumarlega) til að nota á kvöldin. Og töff bol og stuttbuxur í stíl á stráksa. Spurning um að finna eitthvað létt á mig þar sem ég á nú enga flík sem gæti talist létt, nema þá nærfötin mín :P hehe

Ætla að kaupa það sem ÞARF að kaupa en ekki meir. Þar sem ég held að það þurfi nú ekki mikið af fatnaði með.

Ákváðum í dag að taka línuskautana með. Ætlum að renna okkur eitthvað ef hægt er. Gæti verið gaman :)

Var að farða í dag og var útkoman barasta hin ágætasta. Gaman hvað það eru margar sem vilja endilega koma í smá snyrtingu :D búin að hafa flott að gera upp á síðkastið og þannig verður það áfram á næstunni að mér sýnist :) Ekki verra þar sem manni veitir ekki af smá auka aur :P

en well well.... mí off... ta ta

Sent af layla kl [21:48] Komment [0]

Föstudagur 1. júlí

going to spain!!!!!!!!!!

Jæja þá er það komið á hreint. Við förum til Benidorm 20.júlí nk. :) Krakkarnir náttúrulega að farast úr spenning. Enda hafa þau aldrei farið svo mikið sem upp í flugvél. Verður eflaust hið besta frí :) Nú er bara að reyna að komast yfir þessa svakalegu flughræðslu :s því eins og margir vita þá er ég ein af flughræddari manneskjum landsins jahh og þó víðar væri leitað. Má nú samt ekki láta hræðslu skemma fyrir því að börnin komist út í langþráða utanlandsferð. Svo er nú eins gott að vera með stórar birgðir af sterkri sólarvörn. Til að varna bruna hjá öllum, því að stelpurnar mínar eru það ljósar að þær brenna auðveldlega, auk þess sem ég er nú annsi fljót að brenna líka. Ætti nú að vera búin að læra flest það sem vert er að vita um skaðsemi sólargeislanna, SPF gildi sólarvarna, hvernig sólarvarnir eru bestar og svo fleira og fleira frá því í efnafræði snyrtivara á síðustu önn.. Segið svo að maður meðtaki ekki neitt :P

Nú er bara að vera dugleg að vinna hjá pabba og næla mér í smá aukagjaldeyri, auk þess að taka eina og eina í smá snyrtingu :)

Góða helgi alles.....

Sent af layla kl [21:49] Komment [0]