Fimmtudagur 4. ágúst
komin heim....og það er kalt...
Tíminn á spáni var hreint út sagt frábær!! :D Fyrir utan það að nýta sundlaugina við hótelið mjög vel á hverjum degi, fara á ströndina, synda, kafa og sigla í sjónum. Þá var farið í Terra Mitica þar sem dvalið var frá opnun fram að lokun og öll tækin þrædd allt frá hægfara hestahringekjum að brjáluðustu rússíbönum. Öðrum degi eytt í Terra Natura sem er svakalega flottur dýragarður, með allt frá músum að fílum, einnig er þar þessi svakalega flotti vatnagarður með frábærum rennibrautum og ótrúlega flottu umhverfi (allt glænýtt og svakalega flott). Mundomar dýragarðinn þar sem við skoðuðum öll dýrin og horfðum á frábærar sýningar, t.d á meiriháttar höfrungasýningu. Farið í Aqualandia þar sem rennibrautirnar voru þræddar og garðurinn gjörsamlega þræddur þannig að okkur verkjaði öllum í fæturnar næstu daga. Festilandia tívolíið þar sem við lékum okkur. Go Gart þar sem gefið var vel í og já það sá meira á sumum en öðrum :P hehe.... margt margt fleira var gert en of langt að þylja allt upp.
Kom heim með heila afríska hljómsveit í farteskinu :P dýrka þessi frumstæðu hljóðfæri. Og ýmislegt fleira sem gaman er að fara í gegnum. Börnin ótrúlega stolt af því að hafa verið búin að vinna sér inn pening og hafa getað verslað sér heilan helling fyrir þann aur. Og ég ofboðslega sátt og sæl með nýju digital myndavélina mína sem ég fékk í síðbúna afmælisgjöf fyrir ferðina... Canon EOS 350D... klassagripur :D enda á ég góðar fylgigræjur fyrir hana... nokkrar linsur, gott flass og þ.h.
en nóg í bili... ta ta..


